Helgarpósturinn - 11.06.1987, Page 4
eftir Jónínu Leósdóttur
ÞAÐVAR FYRIR
„Það var fyrir atta arum“, segir 1 þjoðkunnu og sívin-
sælu kvœði, en öll vitum við að ýmislegt breytist á þeim
tíma — og þó styttri vœri. Barn, sem ekki var komið í
heiminn árið 1979, er t.d. núna byrjað í skóla og spjarar
sig þokkalega í veröldinni. Tískulitir og fatasnið ársins
1979 hafa farið og jafnvel komið aftur. Hársídd og pils-
faldar hafa styst og síkkað á vt'xl. Fyrir átta árum kom
Helgarpósturinn líka fyrst á þrykk.
Við gerðum það að gamni okkar að blaða í árgangi
1979 og líta á myndir af þekktum einstaklingum — sér-
staklega úr stjórnmálalífinu — og athuga hvaða hönd-
um tíminn he fur farið um þá á þessum árum. Sumir bera
þess auðvitað merki að hafa elst um tœpan áratug.
Nema hvað. Þaö er víst lífsins gangur. Hitt er þó merki-
legra; aörir virðast nefnilega hafa yngst.
0
Jón Óttar Ragnarsson er vissu-
lega þekktur fyrir annað en stjórn-
málaþátttöku, þó hann hafi reyndar
nýverið verið auglýstur sem frum-
mælandi á fundi Sjálfstœdisílokks-
ins um kosningaúrslitin. Hann fékk
þó að fljóta með, vegna þess að árið
1979 birtist af honum auglýsingar-
mynd í Helgarpóstinum þar sem
hann er með þykk gleraugu og á all-
an hátt ólíkur glæsimenninu, sem
nú veitir Stöd 2 forstöðu. Fyrir átta
árum hafði líffræðidoktorinn nýgef-
ið út bókina Nœring og heilsa. Það
var ,,ný bók fyrir nútimafólk", eins
og segir í auglýsingunni. Nú er Jón
Óttar hins vegar á allt öðru róli, bú-
inn að fá sér linsur, breyta um hár-
greiðslu og hvaðeina. Enda árið
1987 runnið upp hjá honum, sem og
öðrum.
Ragnar Stefánsson þekkjum við í
dag sem jarðskjálf tafræðing og einn
af forystumönnum sósíalista. I nóv-
ember 1979 var hann yfirheyrður í
Helgarpóstinum, þá titiaður veður-
fræðingur. Ragnar skipaði á því ári
fyrsta sæti á lista Fylkingarinnar í
vetrarkosningum til Alþingis.
Skegglaus í den-tíð, en núna hressi-
lega loðinn í framan. Skeggið er líka
mjög svo grásprengt, enda liðin
hvorki meira né minna en átta ár.
Gráa sprengingin virðist þar að auki
hafa teygt sig upp á höfuðið. Hár-
prúður maður, Ragnar Stefánsson,
og virðist ekki þurfa að hafa miklar
áhyggjur af kollvikunum. Þau hagg-
ast ekki, fremur en hinar róttæku
pólitísku skoðanir.
Birgir ísleifur Gunnarsson, flokks-
bróðir Friðriks, var mun dekkri yfir-
litum fyrir átta árun en hann er nú.
Gráu hárunum hefur sem sagt fjölg-
að. Það er líka greinilegt að síðir
bartar hafa verið mjög svo í tísku ár-
ið 1979. Birgir ísleifur og flestir aðrir
karlmenn, sem myndir birtust af í
fyrsta árgangi HP, virðast hafa verið
loðnir langt niður á kjálka. Hvað
klæðnaðinn áhrærir virðist borgar-
stjórinn fyrrverandi hins vegar hafa
gerst óformlegri með árunum.
Kominn í fallega peysu í stað hins
hefðbundna jakka og skyrtu. Að
vísu glittir bæði í skyrtuna og bindið
innan undir...
Ásmundur Stefánsson hefur heil-
mikið breyst frá árinu 1979, þegar
Helgarpósturinn birti mynd af hon-
um með grein um valdatafl innan
verkalýðshreyfingarinnar. í þá
gömlu góðu daga var Ásmundur
með síðan makka, festur á HP-filmu
í köflóttri skyrtu og ljósri peysu.
Verkalýðsforkólfurinn og Alþýðu-
bandalagsmaðurinn Asmundur
gengur hins vegar ekki lengur með
síða lokka. Hann myndast núna þar
að auki iðulega í jakkafötum, skyrtu
og með bindi. A5/-forsetinn hefur
ekki losað sig við gleraugun og
fengið sér linsur, eins og sjónvarps-
stjórinn, en nýjar umgjarðir eru þó
það minnsta... ekki satt?
Karvel Pálmason, verkalýðsfröm-
uður og stjórnmálamaður, var í
opnuviðtali Helgarpóstsins í júlílok
1979. Þá hafði hann dottið út af
þingi og „sat á friðarstóli" í Bolung-
arvík, eins og það var orðað. Það
hefur ekki lítið drifið á daga Karvels
Pálmasonar á þeim átta árum, sem
nú eru liðin. Lífsreynslu þingmanns-
ins í kjölfar hjartauppskurðar í
Bretaveldi þekkja lesendur HP
mætavel. Karvel verður aldrei sam-
ur eftir, en hann ber sig karlmann-
lega.
Eftir veikindin er Vestfirðingurinn
greinilega grennri, hársíddin hlítir
einnig öðrum tískustraumum en
fyrr og það sama má segja um slifs-
ið. Það þekur ekki jafnstórt svæði og
árið 1979. Enn ein breyting hefur
líka orðið á Karvel Pálmasyni á
þessu tímabili, þó tæpast sjáist hún
á mynd. Hann er nefnilega ekki
lengur „óháður", heldur orðinn
krati!
Þorsteinn Pálsson er greinilega
íhaldssamur maður. Við sjáum
a.m.k. ekki betur en gleraugun
anno domini 1979 séu nákvæmlega
eins og fjármálaráðherragleraugun
átta árum síðar. Framkvæmdastjóri
VSÍ hefur ekki fylgt síðhærðu tísk-
unni, fremur en ráðherrann. Ein-
ungis bartarnir eru lengri þá en nú.
Annars er Þorsteinn heilmikið
breyttur, þótt reyndar sé ekki gráum
hárum fyrir að fara í glansandi hár-
inu, sem svo margar konur dásama
þegar eiginmennirnir heyra ekki til.
Þorsteinn Pálsson er líka orðinn
flokksformaður og ber ábyrgð á hin-
um erfiða og sítóma ríkiskassa. Það
hlýtur að taka sinn toll.
4 HELGARPÓSTURINN