Helgarpósturinn - 11.06.1987, Page 24
KVIKMYNDIR
*
Ovidjafnanlegt
Bíóhúsid: Blue Veluet (Blátt
flauel).
★★★★
Bandarísk. Árgerd 1986.
Framleiöandi: Richard Roth.
Leikstjórn/handrit: David Lynch.
Aöalhlutverk: Kyle MacLachlan,
Isabella Rossellini, Dennis
Hopper, Laura Dern, Dean
Stockwell o.fl.
Fáir hafa leikið brothætta sjálfs-
ímynd millistéttarameríkanans
viðlíka grátt og David Lynch í
þessari nýjustu og vægast sagt
undirfurðulegu kvikmynd sinni.
Hún er hvort tveggja í senn ægi-
fögur og hrikaleg í Ijótleika sínum
og afbrigðilegheitum. Hún er e.k.
skrumskæld nútíma dæmisaga,
véfrétt eða dómur yfir hrokafull-
um smáborgarahætti okkar vest-
rænu útborgamenningar, sem í
einfeldni sinni gengur að beislun
náttúruaflanna sem vísri og telur
sig hafa höndlað þúsundáraríkið,
paradís á jörðu. En hversu grunnt
er ekki á dýrseðlinu innra með
okkur. Hversu nálægir eru ekki
reginkraftar sjálfrar náttúrunnar,
þess albúnir að ná yfirhöndinni þá
er við linum á kverkatakinu um
stund... og skapa að því er okkur
þykir fullkominn glundroða í
vendilega tilklipptum og skornum
rósagarði okkar eigin vesæla sál-
arteturs.
Lynch lýsir ágætlega þessu
höfuðþema verks síns þegar í stór-
kostlega vel útfærðri upphafssenu
myndarinnar: Yfirnáttúrulega
gula túlipana og hvítmálað grind-
verk ber í einkar velkompóner-
aðri mynd við sjúklega heiðbláan
Technicolor-himininn. Eldri mað-
ur vatnar trjágarð sinn og úr hátöl-
urunum lekur gamli smjörslagar-
inn hans Bobby Vlntons, Blue
Velvet, út yfir salinn. Skyndilega
myndast lykkja á slöngunni,
vatnsrennslið stöðvast og sá. gamli
hnígur máttvana til jarðar þjakað-
ur af kransæðastíflu. Myndavélin
fylgir honum niður í shoðklipptan
grassvörðinn, hvar okkúr opinber-
ast fyrirvaralaust sjálf náttúran í
öllu sínu veldi kraumandi af lífi og
þess albúin að brjóta sér leið uppá
hið gljáfægða og gerilsneydda til-
verusvið mannskeppnunnar.
Sonurinn Jeffrey kemur heim
til að taka við rekstri fjölskyldufyr-
irtækisins. Dag nokkurn eftir að
hann hefur heimsótt örkumla föð-
ur sinn á sjúkrahúsið finnur hann
afskorið eyra á víðavangi. Verður
sá fundur upphafið að vægast sagt
hrottafenginni infernóreisu hans
sjáifs um einhverjar skuggalegustu
hliðar og öngstræti mannlegrar
tilVeru sem nokkurntíma hafa Ver-
ið gerð skil í kvikmynd.
Blue Velvet hefur allt það til að
bera er talist getur helsta prýði
góðra kvikmynda; ferskleika,
frumlega hugsun, afspyrnugott og
fagmannlega skrifað handrit,
markvissa leikstjórn, stórkostlega
vel unna leikmynd og kvikmynda-
töku og svo mergjaða hljóðvinnslu
að fáir núlifandi kvikmyndaleik-
stjórar komast þar að með tærnar
hvar Lynch hefur hælana. I mynd-
inni fer Dennis Hopper einnig á
þvílíkum kostum í hlutverki
Franks, staðgengils sjálfs djöfuls-
ins, að hann hefur líkast til aldrei
gert betur og er þá mikið sagt.
Rossellini blómstrar sem hin klass-
íska „good-bad-girl" og minnir um
margt á móður sína heitina, er
hafði á sínum yngri árum sérstakt
dálæti á slíkum hlutverkum. Og
aðrir leikarar komast sömuleiðis
betur en vel frá hlutverkum sínum
undir öruggri handleiðslu Lynch.
©ftir Ólof Angantýsson
I einu orði sagt: Stórkostleg
kvikmynd, sem enginn sannur
unnandi góðrar kvikmyndagerð-
arlistar hefur efni á að láta framhjá
sér fara.
Ford á réttri leiö
Bíóborgin: The Mosquito Coast
(Moskító-ströndin)
•kirk
Bandarísk. Árgerö 1986.
Framleiöandi: Jerome Hellman.
Leikstjórn: Peter Weir.
Aöalhlutverk: Harrison Ford,
Helen Mirren, River Phoenix,
Jadrien Steele, Andre Gregory
o.fl.
Þau liggja ófá gullkornin eftir
ástralska leikstjórann Peter Weir
og nægir í því tilliti að nefna perlur
á borð við Picnic at hanging Rock
(1975), The Last Wave (1977), The
Year ofLiving Dangerously (1982)
og svo að sjálfsögðu Witness frá
árinu 1985, sem líkast til er þekkt-
ust kvikmynda hans.
Helsta einkenni hinna nokkuð
svo sérstæðu stílbragða Weirs er
sá þéttriðni og dulúðugt spennu-
mettaði undirtónn er svo gjarnan
dynur í öllu sínu veldi undir yfir-
borðinu, án þess þó að fá nokk-
urntíma þá kynngimögnuðu útrás,
sem áhorfendum þykir þó sem
þeim hafi verið Iofað gegnum
framvindu sjálfs plottsins. Það sem
löngum hefur verið talið hvað eft-
irtektarverðast við verk þessa
ágæta ástralska höfundar er
hversu eindregið honum tekst
jafnan að hliðra sér hjá óskoraðri
pólitískri afstöðutöku. Og þá eink-
um í Ijósi þess hversu oft hann hef-
ur gegnum tíðina valið sér við-
fangsefni, sem aðrir hefðu að
óreyndu ætíað að ómögulegt væri
að taka til meðferðar án þess að
tekin yrði ákveðin pólitísk afstaða
í málinu. Gallipoli frá árinu 1981
og The Year of Living Dangerously
eru dæmigerðar fyrir þessa stöð-
ugu viðleitni Weirs til éinkar per-
sónulegra'r, en þó samtímis óhlút-
lægrár skráningar á raunveruleik-
anum. Þessarar viðleitni gætir einn-
ig að verulegu marki í þeirri mynd
hans sem hér er til umræðu.
The Mosquito Coast byggir á
margfrægri og samnefndri skáld-
sögu Paul Theroux, er fjallar um
hugvitsmanninn og þúsundþjala-
smiðinn Allie Fox, sem fengið hef-
ur sig fullsaddan af því er hann
kallar sora vestrænnar siðmenn-
ingar. Tekur hann sig því ásamt
konu og börnum alfarið upp og
flyst með þeim búferlum til Mið-
Ameríku, þar sem hann hyggst
reisa þeim eigið fyrirmyndar-
ríki. .. paradís á jörð og allsendis
ómengað af forkastanlegri úrkynj-
un ofneyslusamfélagsins. Hann
kemst þó að því um síðir að
draumsýnin sú mun öllu erfiðari í
framkvæmd en hann upphaflega
hafði ætlað. Mannlegt eðli er og
verður samt við sig og e.t.v. stend-
ur rót þeirrar meinsemdar er hann
hyggst flýja öllu nær honum sjálf-
um en hann vill vera láta.
Afbragðsgóð kvikmynd og þá
einkum fyrir sakir stórgóðra leik-
tilþrifa Fords. Meðferð hans á hlut-
verki Allie Fox tekur endanlega af
allan vafa um það að lofsverð
frammistaða hans í Witness var
engan veginn hendingum háð,
heldur óræk vísbending þess að
hann er fullkomlega verðugur
þess að honum hlotnist í framtíð-
inni bitastæðara hlutskipti en að
daga uppi holdtekin ímynd per-
sónugervinga á borð við Indiana
Jones og Han Solo úr stjörnu-
stríðsmyndum þeirra George
Lucas og félaga.
LISTVIÐBURÐIR
Þjóðleikhúsið
Yerma, föstudag og laugardag
k1. 20.00. Síðustu sýningar.
Leikfélag Reykjavíkur
Dagur vonar, föstudag kl. 20.00.
Djöflaeyjan, fimmtudag, föstu-
dag og laugardag kl. 20.00.
Alþýðuleikhúsið
Eru tígrisdýríKongó? Föstudag
kl. 12.00 og laugardag kl. 13.00.
Ásmundarsalur
Kristján Kristjánsson opnar á
sunnudaginn sýningu á mál-
verkum og collachrome (graf-
klipp) myndum.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveins-
sonar, opið daglega frá 10—16.
FÍM-salurinn v/Garðastræti
Björgvin Pálsson opnará laugar-
daginn sýningu á Ijósmyndum.
Gallerí Borg
Frjálst upphengi að hætti húss-
ins, gamlir meistarar v/Austur-
völl og nýir v/Austurstræti.
Gallerí Svart á hvítu
Steingrímur Eyfjörð Krist-
mundsson opnarálaugardaginn
sýningu á málverkum, teikning-
um og skúlptúr.
Gallerí Gangskör
Finnsku grafíklistamennirnir
Heikke Arpo og Marjatta Neu-
reva sýna grafíkverk.
Kjarvalsstaðir
Graphica Atlantica, alþjóðleg
grafíksýning.
IMorræna húsið
Norskur grafíker og málari,
Yngve Zakarias, í kjallaranum og
í anddyri hússins samnorræn
skúlptúrsýning.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
„Sænskt KEX", skiptisýning
ungra myndlistarmanna sem
hingað koma frá Svíaríki, einnig
sýnt í MÍR-salnum við sömu
götu.
KVIKMYNDAHUSIN
★★★★
Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnd
kl. 5, 7.30 og 10 í Bíóhúsinu.
Koss kóngulóarkonunnar (Kiss
of the Spiderwoman). Afbragðs-
leikur kl. 9 í Bíóhöllinni.
Herbergi með útsýni (Room
with a View). Notalegur sjarmi
kl. 5, 7, 9 og 11.15 í Regnboga.
★★★
Moskító-ströndin (The
Mosquito Coast). Sýnd kl. 5,
7.05, 9.05 og 11.15 í Bíóborginni.
Litla hryllingsbúðin (The little
Shop of Horrors). Gaman gaman
kl. 5, 7, 9 og 11.
Æskuþrautir (Brighton Beach).
Kl. 9 og 11 í Laugarásbíói.
Krókódíla-Dundee (Crocodile
Dundee). Létt ævintýri kl. 5, 7, 9
og 11 í Bíóbörginni.
Þrírvinir (Three Amigos). Hrein
og bein fyndni. Kl. 3, 5, 7, 9 og
11.15 í Regnboga.
Guð gaf mér eyra (Children of a
lessér God). Hugnæm og sæt kl.
9.
Morguninn eftir (The morning
after). Áfengisvandamál kl. 5, 7,
9 og 11 í Bíóborginni.
Svona er lífið (That's Life).
Huggulegheitahúmor kl. 7 í
Stjörnubíói.
Hrun ameríska heimsveldisins
(The Decline of the American
Empire). Yndisleg kynlífsum-
ræða kl. 5, 7, 9 og 11 i Laugarás-
bíói.
Milli vina (Just Between
Friends). Kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
★★
Paradísarklúbburinn \ (Club
Paradise). Meðalgaman kl. 5,7,9
og 11 í Bíóhöllinni.
Litaður laganemi (Soul Man).
Notalegur húmor í Laugarásbíói
kl. 5 og 7.
Gullni drengurinn (The Golden
Child) Murphy-tæknibrella kl. 5,
7, 9 og 11 í Háskólabíói.
Með tvær í takinu (Outrageous
Fortune). Kvennasprell í Bíóhöil-
inni kl. 5, 7, 9 og 11.
Fyrsti apríl (April fool's day).
Gasa hrollurkl. 5.10,7.10, 9.10 og
11.10 í Regnboganum.
★
Blóðug hefnd (Armed
Response). Ofbeldismynd kl. 7 í
Stjörnubíói.
Ógnarnótt (Night of the
Creeps). Hrollur kl. 5, 7, 9 og 11 í
Stjörnubíói.
Fyrr ligg ég dauður (Death
before dishonor) kl. 5, 7, 9 og 11
í Laugarásbíói.
Nýjar
Á toppinn (Over the Top). Með
Sylvester Stallone kl. 5,7,9 og 11
í Háskólabíói.
Leyniförin (Porject X). Ævintýra-
mynd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöll-
inni.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
MYNDBAND VIKUNNAR
Missing ★★★★
7/7 útleigu hjá m.a. Vídeómeist-
aranum og Myndbandaleigu
kvikmyndahúsanna.
Bandarísk. Árgerö 1982.
Leikstjórn: Costa-Gavras.
Aöalhlutverk: Jack Lemmon,
Sissy Spacek, John Shea,
Melanie Mayron, David Clennon,
Janic Rule o.fl.
Hversu lengi sem þetta af-
bragðsgóða meistaraverk Costa-
Cavras hefur annars gengið á
myndbandaleigunum þykir full
ástæða að minna þá á, er af ein-
hverjum ástæðum hefur ekki enn
gefist að berja gripinn augum, að
hér er um að ræða einn af kjarn-
fyllri valkostunum á hillum leig-
anna í dag.
Þessi rúmlega tveggja tíma
langa og kynngimagnaða infernó-
reisa Gavras um blóðidrifna bak-
garða og öngstræti herforingja-
byltingarinnar í Chile í september
1973 er tvímælalaust í hópi þess
besta er þessi ókrýndi meistari
pólitíska þrillerformsins hefur lát-
ið frá sér fara um dagana.
í myndinni vinnur Jack Lemm-
on aukinheldur einn af mikils-
verðari leiksigrum ferils síns í hlut-
verki föðurins sem kemur til Chile
dagana eftir byltingu, til að grafast
fyrir um afdrif sonar síns. Sá hafði
starfað þar sem blaðamaður um
nokkurra ára skeið, en jafnframt
horfið líkt og svo margir aðrir
sporlaust af yfirborði jarðar í kjöl-
far valdaránsins.
Myndin, er byggir á sögulegum
heimildum, lýsir á einstaklega
áhrifaríkan og umfram allt átakan-
legan hátt píslargöngu föðurins
um blóði drifna stigu þessa stríðs-
hrjáða lands, ásamt stigvaxandi
meðvitund hans um hversu óbæri-
lega meðsekur hann er í raun sjálf-
ur um ófarir þessarar ógæfusömu
þjóðar... sökum beinnar íhlutunar
hans eigin stjórnvalda og umfram
allt sökum pólitísks afskiptaleysis
hans sjálfs. Ó.A.
24 HELGARPÓSTURINN