Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 4

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 4
YFIRHEYRSLA HEIMILISHAGIR: Fjögur börn, fráskilinn bifreið: Subaru station heimilisfang. Gnoðarvogur 24 áhugamál: Skák og pólitík laun: Þingfararkaup „Á allt undir lýðhylli“ oítir Gunnor Smáro Egilsson myndir Jim Smart Fyrir stuttu tékk Guðmundur G. Þórarinsson, þingmaður Framsóknar, ritstjóra Þjóðviljans dæmda í Borgardómi fyrir meiðyrði. Þessi dómur er sá þyngsti sem faliið hefur í slíku máii. Guðmundur hefur á undanförnum árum skrifað margar greinar í blöð þar sem hann vandar blaðamönnum ekki kveðjurnar. Vegna þeirra og dóntsins er Guðmund- ur í yfirheyrslu Helgarpóstsins. Gerðir þú þér grein fyrir því þegar þú hófst afskipti af stjórnmáium að tengsi þín við einstök mál kynnu að verða að frétt í sjálfu sér. Að þú nytir ekki sömu verndar og maðurinn á götunni? Ég geri mér mjög vel grein fyrir því. Ég skal verða fyrstur manna til þess að taka karlmannlega á því þó ég sé gagnrýndur fyr- ir skoðanir mínar. En ef settar eru á forsíður dagblaða upplýsingar sem ómögulegt er að skilja á annan hátt en ég hafi framið afbrot sem ekki varði aðeins fjársekt, heldur einnig tugthúsvist, þá er ég ansi hræddur um að ég taki við mér. En gerðir þú þér grein fyrir að þín helgi myndi skerðast við póiítísk af- skipti þín? Já, ég gerði mér grein fyrir því. Finnst þér ekki eðlilegt að dómurinn hefði tekið tillit til þess? Nei, ekki í svona málum. Þó að ég sé stjórnmálamaður, þá gefur það ekki blaða- manni tilefni eða rétt til þess að segja um mig hvaðeina sem honum dettur í hug. Alls ekki. Ef blaðamaður er ábyrgur gerða sinna getur honum verið stefnt fyrir meiðyrði af hvaða manni sem um er að ræða. Málið er kannski alvarlegra fyrir þá sök að ég er stjórnmála- maður. Þeir eiga allt sitt undir lýðhylli. Það er mitt starf að sitja á þingi. Það er vegið að því á þennan hátt. Auðvitað verð ég að hreinsa mig af þessu máli. Lítur þú alvarlegar á þetta mál fyrir það ad stutt var í prófkjörsslag hjá þér? Ég er ekki endilega að tengja það saman. En þetta hefði ekki síður getað haft mjög mikil áhrif á mína framtíð. Hugsaðu þér hvað gerðist. Einhver jólasveinn af Þjóðviljanum rýkur í það að skrifa einhverja frétt á forsíðu þvert ofan í þær upplýsingar sem hann fær. Hann gat fengið öll gögn í firmaskrá um hvernig málum var í raun háttað. En hann gerir það ekki. Því segi ég: þetta er ágætt fyrir blaða- menn. Þeir geta spilað frítt og umgengist æru manna eins og skít á götunni. Þeir geta birt eitthvað á forsíðu um mig og sagt svo: ég er alveg hissa á manninum að fara fram á dóm í þessu máli. Þessir menn bera enga ábyrgð. En nú er búið að sanna að menn bera ábyrgð á því sem þeir eru að gera. Þú ert nú ekki svo miklu vandaðri í greinaskrifum þínum en þeir sem þú gagnrýnir. í Dagblaðinu á mánudaginn segir þú „...að ég hefði heyrt þá undar- legu sögu að í stétt blaðamanna hefðu þyrpst menn sem hvergi fengju vinnu annars staðar, ekkert gætu og enginn vildi hafa. Blaðamenn vildu þeir vera vegna þess að til þess þyrfti enga mennt- un og þar bæru þeir enga ábyrgð á því sem þeir gerðu en gætu vegið úr laun- sátri að ýmsum mönnum í þjóðfélaginu". Hvað er þetta? Gróusaga? Atvinnuróg- ur? Níð? Ég er að segja þarna að ég hafi heyrt þessa undarlegu sögu. Ég hef skrifað þetta áður í blaðagrein og þá í sambandi við grein sem birtist í Tímanum. Þá skrifaði ég grein um þessar greinar sem skrifaðar eru í blööin, ýmist nafnlausar eða undir dulnefni.Jjar sem vegið er úr launsátri að mönnum. I þessari grein var sagt að sumir segðu að Jóhannes Nordal seðlabankastjóri hefði fengið gjafir frá Alusuisse og allt eftir þessu. Þetta var allt eins svívirðilegt og hægt var. Þá greindi ég frá þessari sögu sem ég hafði heyrt. Þú telur þig þá geta notað þau vopn sem þú fordæmir aðra fyrir að beita? Nei. En þegar svona er skrifað, þurfa þá blaðamenn ekki að geta tekið gagnrýni? Á þennan hátt er hægt að tala um blaðamenn. Það er það sem ég er að segja með greininni. Ég tók eftir því þá og líka þegar ég var að skrifa um Omar Valdimarsson, að blaða- menn eru viðkvæmir. Um leið og eitthvað er sagt utn þá er heiður þeirra að yeði. Þá er atvinnurógur kominn af stað. Ég hélt að menn sem leyfðu sér að tala og skrifa um aðra, eins og blaðamenn gera, yrðu ekkert hissa á því að þeir fengju eitthvað á sig í svip- uðum dúr. Og þú hefur ekki fyrir því að nafn- greina þá sem þú gagnrýnir, heldur Iæt- ur eitt yfir alla stéttina ganga. Nei. Eins og kom fram í þessari grein þá tek ég fram að í stéttinni séu mjög margir færir og góðir menn. En það þarf ekkert að segja mér um það eftir það sem ég hef séð skrifað, að innan um eru margir svartir sauðir líka. Ég vil gjarnan taka opna umræðu upp um starf blaðamanna, siðferði þeirra og vinnu- brögð, þegar við stöndum frammi fyrir þess- ari fjölmiðlabyltingu. Freistingin er að auk- ast og ég held að það sé mjög nauðsynlegt fyrir blaðamenn að hugsa um á hvaða leið þeir eru. Það er nauðsynlegt að blaðamenn haldi fast á sínum málum. Þetta er miklu iengra mál en þessi eini dómur. Glíma þín við blaðamannastéttina? Já. Það getur vel verið að ég noti dálítið tímann á þinginu til þess að höggva dálítið að blaðamönnum, ef þeir vinna áfram eins ónákvæmtega og þeir hafa gert. Ég er annars vegar að gagnrýna þessar nafnlausu greinar með svívirðilegum ásök- unum þar sem menn geta á engan hátt varið sig. Vita ekki einu sinni hvert þeir eiga að snúa sér vegna þess að það veit enginn hver skrifaði greinina. Hins vegar þegar blaða- menn gera eins og Þjóðviljinn gerði í þessu máli. Skrifa gegn betri vitund. Ég er alveg til- búinn í slaginn. Ég er tilbúinn til þess að gagnrýna blaðamenn fyrir hvernig þeir skrifa og þeirra vinnubrögð á sama hátt og þeir gagnrýna aðra. Þið voruð fijótir á ykkur varðandi Albert, Guðmund J. og Stefán Benediktsson að segja: þarna er stjórnmála- maður, hann á að segja af sér. En sjáið ykkur sjálfa. Þarna eruð þið með formann ykkar félags sem hefur einn af þyngstu dómum siðanefndar og sjálfsagt þyngsta dóm í meið- yrðamáli sem dæmdur hefur verið á bakinu. Þú varst að tala um að þú værir tilbú- inn í slag við blaðamenn í þinginu. Hvað áttu við? Það getur verið að það sé nauðsynlegt að gera það með tilliti til þessara aðstæðna. Hvað ætlar þú að gera? Reyna að fá sett Iög á blaðamenn? Hvað heldur þú að þú fáir út úr því að gagnrýna stjórnmálamann? Þú telur það nauðsynlegt þjóðfélaginu. Kannski ráða stjórnmálamenn ekki eins miklu nú og fjöl- miðlamenn. Fjölmiðlamenn eru orðnir meira afl í þjóðfélaginu en nokkurt annað afl. Og það er sjálfskipað afl. Það hefur eng- inn kosið þetta afl. Það hefur enginn vaiið það. Það eru kannski ekki einu sinni gerðar kröfur um hæfni þessara manna eða þekk- ingu. Iðulega eru þeir sáralítið inni í þeim málum sem þeir eru að fjalla um. Við stjórn- málamenn ráðum ekki við einhverja bylgju úti í þjóðfélaginu sem blaðamenn vekja. Ef það er rétt að fjölmiðlamenn eru orðnir slíkt afl í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að gagn- rýna þá. Verk blaðamanna liggja fyrir allra augum, öfugt við stjórnmálamenn í sumu af því sem þeir taka sér fyrir hend- ur. Verk blaðamanna eru því í raun lögð undir dóm þjóðarinnar... Ég veit ekki hvaða dómur það er. Mér finnst þeir nú sleppa ansi létt frá því. Ég get ekki séð að blaðamenn séu vandir á einn eða neinn hátt. Það er gamalt máltæki sem segir: eyrun fýsir iilt að beyra. Það getur gengið að birta hitt og þetta sem alls ekki er rétt. Ég er enginn krossfari, en ég tel þetta vera mjög alvarlegt mál. Ég hef ekki gefið mér tíma til að fara ofan í það hvaöa starfsgrund- völl blaðamenn hafa almennt, hvaða mennt- un þeir hafa og rey nslu áður en þeir koma og gerast sjálfskipaðir dómarar í ákveðnum málum. Ráðast á ákveðna einstaklinga í þjóðfélaginu. Hefur þú einhverja innsýn í hvernig störfum á ritstjórnum blaðanna er hátt- að. Hefur þú hugmynd um hvernig ákvarðanir eru teknar þar og hvað það er sem stýrir því hvað er birt og hvað ekki? Nei, ég hef sáralitla hugmynd um það aðra en þá að ég les blöðin og dæmi þau af verk- unum. Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá. Ávextina þekki ég og dæmi tréð eftir því. Þú talar um vald blaðamanna og fjöl- miðlamanna. Finnst þér kominn tími til að skerða þessi völd? Nei, fréttir eru nauðsynlegar. Opið þjóðfé- lag er nauðsynlegt. Það er nauðsynlegt að við höfum blaðamenn sem eru duglegir og skilja gang mála. Þjóðin á að fá að vita hvað er um að vera í þjóðfélaginu. En einmitt vegna þess að málin eru flókin þá gera þau alveg gríðarlegar kröfur til blaðamanna. Það er mitt mat að fjölmargir fjölmiðiamenn rísi ekki undir þeirri kröfu. Þá er spurningin hvaða kröfu á að gera til þeirra... Og hver á að gera þessar kröfur? Já, og hver? Kannski verður hver að gera það fyrir sig vegna þess að það er enginn standard til um þetta. Ef þú ætlar að stunda lögfræði þá verður þú að taka lögfræðipróf. Ef þú ætlar á þing verður þú að láta kjósa þig. í þessari manneklu sem varð þegar fjölmiðl- arnir sprungu út er kannski verið að ráða menn sem alls ekki hafa þroska eða skyn- bragð til að fást við það sem þeir eru að fjalla um. Og hvað vilt þú gera? Ég sé það helst fyrir mér að blaðamenn sjálfir ásamt þeim sem eru þeim velviljaðir, eins og ég, taki upp opna umræðu um starfs- svið og ábyrgð blaðamanna. Þeir verði sjálfir sér meðvitaðir um það afl sem þeir hafa til þess að þeir geti tekið á málinu. Varðandí dóminn i Borgardómi. Víða erlendis er í dómsmálum af þessu tagi beinlínis gert ráð fyrir því að blaða- mönnum geti orðið á mistök, eins og öðru fólki... Því er ég alveg inná. Það er enginn okkar fullkominn. Við gerum allir skekkjur. Sumir reyndar fleiri en aðrir. Það sem ég tel hins vegar alvarlegast í frétt Þjóðviljans er að þar eru birtar fullyrðingar þvert ofan í þær upp- lýsingar sem viðkomandi aðilar fengu. Kjarninn á bak við þessa frétt í Þjóðviljanum er pólitík. Það er mjög alvarlegt þegar menn sniðganga sannleikann í svona alvarlegum málum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.