Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 13
'ft hafa starfsmenn Ríkisút-
varpsins kvartað yfir að Stöð-2
gangi fyrir allri þjónustu Póst- og
símamálastofnunarinnar. Þegar
leiðtogafundurinn stóð sem hæst í
október á síðasta ári unnu starfs-
menn stofnunarinnar baki brotnu
við að leggja örbylgjuleiðara frá
stöðinni að Vatnsenda, á sama tíma
og Ríkisútvarpið varð að sitja á hak-
anum. Þjónustu Símans við Stöð-2
virðast fá takmörk sett. Nýverið
fékk Stöðin aðgang að varaör-
bylgjuleið stofnunarinnar svo hún
gæti sent beint út. Þegar Stöðin er
að senda út búa símnotendur við
skert öryggi. Það er því ekki hægt
að segja annað en frjáls samkeppni
njóti mikillar velviidar hjá þessu
ríkisfyrirtæki. . .
B
' u Hendriks „Binna“
Berndsen hefur loks verið gert upp
eftir að fyrirtæki hans, Blóm og
ávextir, fór á hausinn. A sínum tíma
skrifaði HP um gjaldþrotamál þetta
og benti á hvernig aðstandendur
virtust skipulega koma eignum und-
an hamrinum. Síðar fór Hendrik út
í Von-Veritasævintýrið í Dan-
mörku með Björgúlfi Guðmunds-
syni fyrrum Hafskipsstjóra og virð-
ist það ætla að enda heldur illa. í
Lögbirtingablaðinu má lesa að þeg-
ar bú Hendriks var gert upp fengust
engar greiðslur upp í lýstar kröfur,
sem hljóðuðu upp ánær 17 milljónir
króna fyrir utan vexti og kostnað. . .
likill vöxtur er nú í bóka-
forlaginu Vöku sem að hluta til má
rekja til kaupa þess á Helgafelii
með höfunda á borð við Laxness
og Davíð innanborðs. Skipulags-
breytjngar hafa orðið hjá fyrirtæk-
inu; Ólafur Ragnarsson, stofnandi
Vöku og einn helsti eigandi forlags-
ins, hefur dregið sig töluvert til baka
í daglegum rekstri þess, en við tekið
Viðar Gunnarsson, sem m.a. er
kunnur af óperusöng. Þá var Ragn-
ar Gíslason ráðinn útgáfustjóri
Vöku-Helgafells fyrr á þessu ári sem
nú um þessar mundir er að stækka
við sig húsnæði. Einn stærsti þáttur-
inn í væntanlegri útgáfu félagsins
verður bókaröðin Icelandic Saga
eftir Magnús Magnússon, sjón-
varpsmann hjá BBC, en fyrsta bindi
hennar kom út í Englandi á síðasta
ári. Magnús mun einnig hafa yfir-
umsjón með þýðingu bókarinnar yf-
ir á íslensku og útgáfu hennar hér
heima. Fyrsta bindi þessarar bókar
fjallar á aðgengilegan hátt um
fyrstu aldir Islandsbyggðar og í
næstu bókum mun Magnús rekja
sögu okkar allt til nútíðar. Allt útlit
er því fyrir að þarna séu Aldirnar
og íslenskur annáll að fá sam-
keppni um sagnfræðiþrysta lesend-
ur. Aður óbirt greinasafn eftir Hall-
dór Laxness er einnig væntanlegt
frá Vöku fyrir næstu jól.. .
FISHER
: BORGARTÚNI 16
| REYKJAVÍK. SÍMI 622555
SJÓNVARPSBÚDIN
■ JÉiIéL -'IÉr'' •
mm\ jm 11
* J JEJ8
w' w''w-
,
VERÐHRUNAHAMBORGURUM
A GRILLSTOÐUM
Tomma staðir auglýsa hamborgarann á 87 krónur! Verðið stendur frá 8. ágúst
til 5. september — Risaglas af Pepsí, getraunir og uppákomur
„Þetta er náttúrlega alger
geggjun," sagði Gissur Krist-
insson i Tomma borgurum
þegar TT leilaði skýringa á
þessari stórkostlcgu verð-
lækkun, „en þegar ég vaknaði
í morgun var ég svo glaður að
mér fannst ég verða að gera
eitthvað fyrir þjóðina og land-
búnaðinn og allt það. Þeir
hafa verið að veita einhverja
málamyndaafslætti kollegár
mínir í grillbransanum. En af
hverju þetta hálfkák, af hverju
að tækka þá ekki almenni-
lega? Ég vil bara leggja mitt af
mörkum til að hamla gegn
verðbólgunni!"
Þetta sagði Gissur í Tomma
borgurum en TT tókst ekki að
ná sambandi við aðra grill-
staði. Þar virtist allt vera í
steik.
Gissur sagði að þessi tombólu-
prís á hamborgurum yrði frá
og með deginum í dag og allt
til laugardagsins 5. september
nk. Allir Tomma staðir á höf-
uðborgarsvæðinu selja ham-
borgarann á 87 krónur þennan
tíma. Auk þess verður hægt að
fá franskar á góðu verði og
risaglas af Pepsí fyrir sama
verð og lítið glas kostar venju-
lega. Tomma hamborgarar eru
á Grensásvegi 7, Hólina-
seli 4, Laugavegi 26,
Lækjartorgi og Reykja-
víkurvegi 68 Hafnarfirði.
Kunnur maður úr fjármála-
heiminum, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, tjáði TT að
þetta verð gæti einfaldlega
ekki staðist, Tomma hamborg-
arar hlytu að fara á hausinn.
Gissur var ekki sammála þeg-
ar blaðið bar þetta undir hann.
„Þar fyrir utan eru Tomma
hamborgarar alveg jafn góðir
þótt þeir standi á haus,“ sagði
Gissur, „en við ætlum líka að
vera með getraun í gangi og
ýmsar uppákomur. M.a. höf-
um við fengið algjöran töfra-
mann til að heimsækja alla
Tomma staðina. Það er nú all-
ur galdurinn!“ Gissur vildi
ekki tjá sig nánar um þetta,
málið væri á viðkvæmu stigi,
en hann sagðist geta fullyrt að
verðlaunin í getrauninni yrðu
vegleg.
T.
Tomma hamborgarar fásl á Grensásvegi 7, Hólmaseli 4,
Laugavegi 26, Lækjartorgi og Reykjavíkurvegi 68 Hafnar-
firði.
1
segir Steini
TT hitti Steina blaðburðar-
strák á förnum vegi og spurði
liann hvað honum fyndist um
vcrðlækkunina á Tomma
hamborgurum. Hann sagði að
það skipti í sjálfu sér ekki
miklu máli fyrir hann, hann
borðaði hvort sem er alltaf
Tomma borgara þcgar hann
borðaði á skyndibitastöðum á
annað borð.
„Mér finnst Tommi vera besti
bitinn í bænum,“ sagði hann,
„en það er auðvitað lofsvert
fordæmi að Iækka svona verð-
ið. Þetta ættu ailir að gera en
það verður bara að koma i Ijós
hvort þeir gera það.“ Þar með
var hann horfinn þessi ungi og
glaðbeitti athafnamaður.
wm
mm
i
Steini blaðburðarstrákur var
ekki í vafa um að Tomrna ham-
borgarar væru bestir.
TT reyndi árangurslaust i gær
að ná sambandi við ráðherra í
ríkisstjórninni til að heyra álit
þeirra á frumkvæði Tomma
hamborgara í efnahagsmál-
um. Starfsmaður í fjármála-
ráðuneytinu sagði að ráðherra
lægi undir feldi og kyrjaði
braggablús en bað okkur i
guðanna bænum að hafa þetta
ekki eftir sér. Ónafngreindur
heimildamaður blaðsins sagði
hins vegar að ríkisstjórnin
hefði verið úli að aka í allan
gærdag og langt fram á nótt.
Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar vildi hvorki játa né neita
þegar þetta var borið undir
hann seint í gærkvöldi.
Ekki tókst heldur að ná tali af
efnahagssérfræðingum, það
var engu líkara en jörðin hefði
gleypt þá. TT tókst þó að króa
Dr. Hagbarð Eiríksson hag-
fræðing af á einum Tomma
staðanna um kvöldmatarleyt-
ið í gær og spurningin var auð-
vitað: HVERNIG ER ÞETTA
HÆGT? „Þetta er enginn
vandi. Það er 100% ungnauta-
kjöt í Tomma hamborgurum
og engin aukaefni svo að þetta
er hreinasta lostæti sem rennur
ljúflega niður. Ekki cr það
heldur verra að hafa franskar
og Pepsí með. Auðvitað dregur
þetta úr verðbólgu — það segir
sig sjálft. Hitt er svo annað
mál að hjöðnun á einum stað
hefur ævinlega í för með sér
þenslu á einhverjum öðrum
stað. En maður þarf þá ekki að
herða sultarólina á meðan,“
sagði Dr. Hagbarður Eiríks-
son hagfræðingur.
T.
mldos auQlýslngaþlónusta
HELGARPÓSTURINN 13
i