Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 28
Bókmenntahátíð 1987
Eins og mönnum mun kunnugt verður haldin hér á landi
heilmikil hátíð á sviði bókmennta í september. HP mun
leitast við að kynna nokkra af þeim höfundum sem hing-
að koma af því tilefni og fyrstur í röðinni er Klaus Rif-
bjerg hinn danski.
LISTVIÐBURÐIR
Árbæjarsafnið
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 10—18. M.a. eru í safninu sýn-
ing á gömlum slökkviliðsbílum, sýn-
ing á Reykjavíkurlíkönum og sýning
á fornleifauppgreftri í Reykjavík.
Tónleikar í kirkju safnsins sunnudag
kl. 15.00.
Ásgrímssafn, Bergstaöa-
stræti 74
Opið alla daga nema laugardaga frá
13.30 — 16.00. Yfir stendur sumar-
sýning á úrvali verka Ásgríms Jóns-
sonar.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar,
opið daglega frá 10—16.
Gallerí Borg
Japanska listakonan Teako Mori
sýnir leirverk frá 13.—23. ágúst.
Gallerí Gangskör
Frjálst upphengi meðlima gallerís-
ins. Opið frá 12—18 virka daga og
14—18 um helgar.
Gallerí Grjót
Samsýning aðstandenda. Málverk,
grafík, skúlptúr, silfur o.fl.
Gallerí Svart á hvítu
Á laugardaginn opnar Sveinn
Björnsson málverkasýningu sem
stendur til mánaðamóta.
Gallerí Langbrók Textíll
Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnað-
ur o.fl. á Bókhlöðustíg 2.
Gallerí Vesturgata 17
Sumarsýning Listmálarafélagsins.
Margir af okkar fremstu málurum
með sölusýningu á verkum sínum.
Opið virka daga frá 9—17.
Hafnargallerí
Haraldur Jónsson verður með skúlp-
túr, bókverk og myndband frá föstu-
deginum 8. til 15. ágúst.
Krákan
Unnur Svavarsdóttir sýnir akrýl- og
pastelmyndir.
Kjarvalsstaðir
Margrét Elíasdóttir opnar á laugar-
daginn málverkasýningu í vestursal
en í öðrum sölum stendur enn árviss
Kjarvalssýning. Hvor tveggja sýn-
ingin stendur til mánaðamóta.
Listasafn ASÍ
Sýning stendur yfir á verkum í eigu
safnsins og kennir þar margvíslegra
grasa og fróðlegra.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 13.30—16.00. Höggmynda-
garðurinn er opinn daglega frá kl.
10—17.
Norræna húsið
Frans Widerberg, norskur málari og
grafíker, sýnir málverk í kjallara og
grafík í anddyri. Sýningin verður
opnuð 8. ágúst og stendur út mán-
uðinn.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
Arngunnur Ýr opnar þann 14. einka-
sýningu á verkum sínum, sem
stendur til 23. ágúst.
Klaus Rifbjerg (f. 1931) er líklega
þekktasti núlifandi rithöfundur
Dana. Nafn hans, Rifbjerg, stendur
þó ekki einasta fyrir skáldid Rif-
bjerg, heldur líka fyrir goðsögn um
rithöfund 7da áratugarins. Upp-
reisnarmann sem er sjálfumglaður
og leggur mikla áherslu á eigið
nafn, skrifar huerja bókina á fœtur
annarri um málefni líðandi stundar
og mokar inn peningum. Þessi goð-
sögn loðir enn uið Rifbjerg og þrátt
fyrir að hún sé ekki allskostar rétt er
hún heldur ekki með öllu röng.
Höfundarverk Rifbjergs er mikið,
hann hefur skrifað einhvers staðar
nálægt 50 bókum og flestar þeirra
hafa selst vel. Hann er einn af fáum
rithöfundum Dana sem geta lifað
góðu lífi af skáidskap sínum. Hann
er næstum blaðamannslegur í efnis-
vali og hefur á 6. og 7. áratugnum
reynt fyrir sér í flestum gerðum frá-
sagnartækni og því bera verk hans
samtíð sinni sterkt vitni en eru samt
mjög sérstæð og persónuleg, oft á
tíðum virka þau sjálfsævisöguleg.
Rifbjerg las bókmenntir og ensku
við Princeton-háskólann í Banda-
rikjunum og einnig við Hafnarhá-
skóla en lauk aldrei námi, heldur
hóf að starfa við kvikmyndir og
gerðist síðar gagnrýnandi og rithöf-
undur. í nokkur ár var hann ásamt
öðrum ritstjóri bókmenntatímarits-
ins Vindrosen, en jafnframt hélt
hann áfram vinnu við kvikmyndir
og revíur. Þessi fjölhæfni hans gerði
að verkum að hann varð ímynd
ungra róttækra listamanna í Dan-
KVIKMYNDAHÚSIN
mörku, sem vildu leita á ný mið í
framsetningu á skáldverkum sínum.
Verk Rifbjergs bera einkum tvö
einkenni, annarsvegar hlið sem
snýr út á við og tekur til þess sem er
að gerast í samtíðinni hverju sinni
og hinsvegar mjög ríkur hæfileiki til
að rifja upp atvik úr æsku og barn-
dómi. Bæði þessi einkenni eru þeg-
ar greinileg í fyrstu ljóðabók hans,
Under uejr med mig selu (1956).
Meginviðfangsefni Rifbjergs hefur
hinsvegar alla tíð verið samspil for-
tíðar og nútíðar þar sem hann fjallar
gjarna um það þegar sakleysi ungs
fólks glatast og það þarf að meta
heiminn og veruleikann upp á nýtt
í Ijósi nýrrar og oft skelfilegrar
reynslu. Þetta fléttast síðan saman
við frásagnartæknina oft á tiðum
þar sem átök verða milli þess gamla,
hefðbundna og örugga og tilraunar
til að losna við hömlur minning-
anna og hefðbundið form. Um þetta
efni hefur Rifbjerg skrifað margar
skáldsögur, bæði sem fjalla um ungl-
inga og fólk sem er að komast á full-
orðinsaldurinn. Þekktastar þeirra
eru sennilega Den kroniske uskyld
(1958), En hugorm i solen (1974) og
Tak for turen (1975).
Eins og sagði í upphafi er Klaus
Rifbjerg sennilega einn þekktasti
núlifandi höfundur Dana og með
margbreytilegu og enn þann dag í
dag tilraunakenndu höfundarverki
sínu hefur hann á afgerandi hátt
tekið þátt í næstum allri nýsköpun
sem prýðir danskar nútímabók-
menntir.
KK.
★★★★
B/áa Betty (Betty Blue)
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 í Bíóhúsinu.
Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnd kl. 5,
7.30 og 10 í Bíóhöllinni.
Herbergi með útsýni (Room with a
View). Notalegur sjarmi kl. 7 í Regn-
boganum.
Herdeildin (Platoon). Nánast óþarfi
að dásama hana öllu frekar. Kl. 3,
5.20, 9 og 11.15 í Regnboganám.
★★★
Krókódila-Dundee (Crocodile
Dundee). Létt ævintýri kl. 5, 7, 9 og
11 í Bíóborg.
Þrir vinir (Three Amigos). Hrein og
bein fyndni. Kl. 3.10, 5.10 og 7.10 i
Regnboganum.
Angel Heart
Yfirþyrmandi blóðstraumar og
galdraviðbjóður i einni mögnuðustu
hrollvekju siðari tíma. Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.05.
Óvænt stefnumót (Blind Date).
Notalegur húmor í Stjörnubíói kl. 5,
7, 9 og 11.
Logandi hræddur (The Living Day-
lights). Nýjasta Bond-myndin og er
bara vel heppnuð þó hann sé hættur
við fjöllífi blessaður. Sýnd i Bíóhöll-
inni kl. 5, 7.30 og 10.
Ottó lOtto: Der Film) Endursýnd
mynd, full af fyndni og skemmtileg-
heitum. Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
Villtir dagar (Something Wild)
Bráðskemmtileg mynd sem er í senn
spennandi og fyndin. Ærslafull.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.10 í Háskólabíói.
★★
Dauðinn á skriðbeltunum (Wheels
of Terror) kl.9.10og 11.10 í Regnbog-
anum.
Wisdom. Hasarmynd, unglinga-
stjarnan Emilio Estevez farinn að
skrifa og leikstýra sjálfur. í Stjörnu-
bíói kl. 5 og 9.
Morgan kemur heim (Morgan
Stewart's Coming Home). Unglinga-
og/eða foreldravandamál afgreitt á
fjörugan hátt. Sýnd kl. 5 og 7 í Bió-
höllinni.
Sérsveitin (Extreme Prejudice).
Plottið spillir fyrir annars ágætri
spennumynd. Kl. 5, 7, 9 og 11 í 8íó-
borg.
Hættuförin (Florida Straits). Sæmi-
legur þriller. Sýnd í Regnboga kl. 3, 5,
7, 9 og 11.15.
Innbrotsþjófurinn (Burglar). Grín-
mynd með Whoopi Goldberg í Bíó-
höllinni kl. 5, 7, 9 og 11.
★
Hættuástand (Critical Condition),
grínmynd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og
11.15 í Regnboganum.
Meiriháttar mál (Terminal Expos-
ure). Ljósmyndarar reyna að leysa
morðgátu. Kl. 5,7,9 og 11 i Laugarás-
bíói.
Gustur (The Wind). Hryllingsmynd
um ungan rithöfund sem finnur ekki
næði til starfa. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
í Laugarásbíói.
Andaborð Hryllingsmynd kl. 5, 7, 9
og 11 í Laugarásbíói.
Hættulegur leikur (Deadly Game).
Sýnd kl. 7 og 11 í Stjörnubíói.
Hættulegur vinur (Deadly Friend).
Sýnd kl. 9 og 11 í Bíóhöllinni.
0
Lögregluskólinn 4. Langþreytt grín-
mynd kl. 5, 7, 9 og 11 i Bióhöllinni.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miölungs
★ þolanleg
O mjög vond
KVIKMYNDIR
Enn blómstrar Edwards
eftir Óiaf Angantýsson
Sljörnubíó: Blind Date (Óvœnt
stefnumót) ★★★
Bandarísk. Árgerð 1987.
Framleiðandi: Tony Adams.
Leikstjórn: Blake Edwards.
Handrit: Dale Launer.
Kuikmyndun: Harry Stradling.
Tónlist: Henry Mancini.
Aðalhlutuerk: Bruce Willis, Kim
Basinger, John Larroquette,
William Daniels o.fl.
Eftir bandaríska kvikmynda-
framleiðandann, leikstjórann og
handritshöfundinn William Blake
McEdwards liggja í rás tímans ekki
svo fáar perlur amerískrar farsa-
hefðar. Árið 1947, þá er hann var að-
eins 25 ára að aldri, var fyrsta
sinni gerð kvikmynd eftir handriti
hans, Panhandle, og fór hann jafn-
framt með lítið hlutverk í þeirri
kvikmynd. Á sjötta og sjöunda
áratugnum leikstýrði hann ótrú-
legum fjölda kvikmynda, þar á
meðal perlum á borð við Operat-
ion Petticoat (1959), Days of Wine
and Roses (1962) og The Great
Race (1964), en þekktastur er
hann þó sem framleiðandi, hand-
ritshöfundur og leikstjóri kvik-
myndasyrpunnar um lögreglufull-
trúann óviðjafnanlega, Inspector
Clouseau, öðru nafni Bleika
pardusinn.
Eftir nokkurra ára lægð í kjölfar
velgengninnar með Bleika pard-
usinn sneri Edwards um síðir til
baka á toppinn á liðnu ári með
That’s Life (Svona er lífið), hvar
eiginkonan, Julie Andrews, og
Jack Lemmon fóru á kostum i
ágætis ærslaleik. Og nú hefur
hann enn bætt rós í hnappagatið
með Blind Date, því hér er um að
ræða Edwards-farsa eins og þeir
gerast bestir.
Myndin fjallar um Waiter nokk-
urn Davis (Bruce Willis), sem er
iðjusamur meö eindæmum og hef-
ur komið ár sinni nokkuð vel fyrir
borð innan ráðgjafarfyrirtækisins
hvaðan hann nýtur lifibrauðs síns.
Dag nokkurn ber að garði mikil-
vægan japanskan viðskiptaaðila,
sem yfirmönnum fyrirtækisins er
mikið í mun að sleikja vendilega
upp og það í þeirri von að hreppa
milljóndollarasamninginn. Er því
kauða boðið til veislu einnar mik-
illar ásamt starfsfólki fyrirtækisins
og hefjast þar með raunir Walters,
því sár skortur virðist vera á fram-
bærilegum borðdömum þá helg-
ina. Bróðir hans, með eindæmum
forhertur sölumaður notaðra bíla,
útvegar honum þó um síðir eina
slika, en þó með þeim varnaðar-
orðum að hann skuli ekki undir
neinum kringumstæðum veita
henni áfengi að drekka. Slíkt gæti
haft miður æskilegar afleiðingar í
för með sér. Walter verður þegar
við fyrstu kynni yfir sig hrifinn af
Nadiu (Kim Basinger), en gleymir
þeim mun fljótar varnaðarorðum
bróðurins. Hann gefur henni í glas
og veit því næst ekki orðið af fyrr
en hún hefur hleypt hinum virðu-
lega kvöldverði fyrirtækisins upp i
fullkomið kaos, svipt hann vinn-
unni og lifibrauðinu, Iagt bílinn
hans í rúst, dregið hann því næst
út á lífið hvar þau hitta fyrir morð-
óðan og að sama skapi snarvit-
lausan fyrrverandi kærasta Nadiu,
sem eltir þau á röndum um þvera
og endilanga borgina í æðis-
gengnum bílaeltingaleik, sem
lyktar ekki fyrr en veslings Walter
er stungið í grjótið fyrir ótíma-
bæra skotárás og á hann af þeim
sökum yfir höfði sér allt að tíu ára
fangelsisdóm.
Sem sagt: Dæmigerður Ed-
wards-farsi og engu síðri að gæð-
um en þeir hinir ágætustu frá gull-
aldarárum hans. Handritsgerð
Dales Launer (Ruthless People) er
að vanda í alla staði með eindæm-
um dæmalaust skemmtilega unn-
in, leikstjórn Edwards traust og
hlutverkaskipan hans óaðfinnan-
leg. Einkum blómstrar John
Larroquette í hlutverki hins morð-
óða kærasta Nadiu. Það eru ár og
aldir síðan Edwards, þessum
ókrýnda konungi Hollywood-fars-
ans, hefur tekist viðlíka vel upp og
einmitt í Blind Date.
28 HELGARPÓSTURINN