Helgarpósturinn - 13.08.1987, Side 29
s
^^^tarfandi lögmenn eru dálítið
sárir út í Jón Sigurðsson dóms-
málaráðherra fyrir að hafa skipað
Jónatan Þórmundsson laga-
prófessor saksóknara í Hafskipsmál-
inu. Jónatan er embættismaður og
því þykir starfandi lögmönnum að
gengið hafi verið framhjá hinu
frjálsa atvinnulífi. Þetta ætti þó ekki
að koma á óvart. Enginn núverandi
ráðherra hefur komið nálægt sjálf-
stæðum rekstri. Þeir eru allir upp-
aldir í embættiskerfinu eða hlið-
stæðum möppustörfum hjá öðrum.
Eina hugsanlega undantekningin er
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra, ef menn telja bændur til sjálf-
stæðra atvinnurekenda en ekki
ríkisstarfsmanna, eins og kannski er
eðlilegra.. .
hvorki hér á landi né annars staðar,
að forsetar riti formála að barna-
bókum. Slíkt gerist þó hér á landi nú
þegar Vigdís Finnbogadóttir ritar
formála að bók hins ástsæla skálds
Jóhannesar úr Kötlum. Hér er
reyndar um kvæði að ræða og auk
Vigdísar leggur Ragnheiður
Gestsdóttir höfundinum lið með
my ndskreytingum.
gy
M ú íhugar Albert Guð-
mundsson málshöfðun á hendur
Jóni Baldvin Hannibalssyni, ný-
orðnum fjármálaráðherra. Astæðan
er sú, að gömlu flokkarnir skiptu á
milli sín öllum blaðastyrk til þing-
flokkanna fyrir árið 1987 eftir þing-
mannastyrk fyrir kosningarnar í
vor, svo ekkert var eftir handa hin-
um nýja flokki Alberts. Albert bygg-
ir kröfu sína á því að eðlilegt sé að
miða við þingmannastyrk á öllu ár-
inu 1987, þar sem kosningar voru á
miðju fjárlagaárinu. Samkvæmt því
á Borgaraflokkurinn enn inni um-
talsverða fjárupphæð og sömuleiðis
Kvennalistinn og Alþýðuflokk-
urinn, sem bættu við sig í kosning-
unurn. Sjálfstæðisfiokkurinn og
Alþýðubandalagið ættu því sam-
kvæmt þessu að hafa fengið alltof
háan styrk, að ógleymdu Banda-
lagi jafnaðarmanna. Jón Baldvin
hefur nú greitt út eina milljón króna
í blaðastyrk til Borgaraflokksins.
Albert telur hins vegar að flokkur-
inn eigi að fá þrjár til sex milljónir
króna. Albert tók þó við þessari
einu milljón, en tók fram að hann liti
svo á að hér væri einungis um inn-
borgun að ræða. . .
að gekk ekki andskotalaust
hjá Jóni Sigurðssyni dómsmála-
ráðherra að skipa saksóknara í Haf-
skipsmálinu. Það þarí hugaðan
mann til að stinga hausnum inn í
þann ljónskjaft, sem þetta mál er.
Enda fór svo, að um leið og Jónatan
Þórmundsson lagaprófessor lét
undan fóru skrattar á kreik við að
grafa eftir hugsanlegum tengslum
hans við málið, þó enginn efaðist um
hæfni hans og reynslu. Það sem hef-
ur komið upp er að Jónatan er
nokkuð tengdur Hallvarði Ein-
varðssyni, hinum vanhæfa ríkis-
saksóknara. Jónatan og Hallvarður
eru góðir vinir og Jónatan því
kannski ekki heppilegur til að end-
urvinna verk Hallvarðs. Hallvarður
kennir refsirétt og opinbert réttarfar
í Háskólanum í umboði Jónatans.
Þeir vinir unnu líka saman hjá
embætti saksóknara. Þó þetta geri
Jónatan ekki vanhæfan vona menn
að þetta geri hann a.m.k. tortryggi-
legan!...
v
ið heyrum að Hraðfrysti-
hús Stokkseyrar hafi verið að
ráða nýjan framkvæmdastjóra. Sá
er Björn Eysteinsson sem undan-
farið hefur starfað hjá Berki hf. í
Hafnarfirði. . .
Sveitarfélög. verktakar. lóöareigendur
tokum aö okkur aö steypa götukanta hvar sem
er a landinu.
Fullkominn tækjabunaöur, vönduó vinna.
Leitið hagstæöra verötilboöa.
Bil m/PM!
VANTAR
ÞIG
götukant?
Skeifan 3F-108 Reykjavík
Sími 687787
í þessu sannkallaða sumarveðri,
er ósköp gott að minnka matseldina
og matbúa eitthvað sem er í senn
gimilegt ogfljótlegt.
Nú koma í verslanir Frönsk Sœlkera
Eplapie og Súkkulaðipie.
, j
Matseldin getur ekki verið einfaldari:
Bara að taka úr frystinum og
baka í ofninum í hálftíma.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmBmm
Eplapie og Súkkulaðipie
má nota sem aðalrétt eða eftirrétt
eða bara með kafftnu.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Eplapie og Súkkulaðipie
er ódýr ög góður matur hversdags
og til hátíðarbrigða.
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÓS
veitir eftirtalda þjónustu:
tjöruþvott, djúphreinsun teppa og
sceta, mótorþvott. Mössum lökk,
bónum og límum ö rendur.
Opið virka daga kl. 8—19.
Opið laugardaga kl.
10-16.
Bón- og þvottastööin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177
HELGARPÓSTURINN 29