Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 34
MATKRAKAN
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
*
A stórstuttlegu sumri
Fátt er gjöfulla en ágústkvöld á þessum
litla, sæta lúpínubletti norður undir pólnum.
Þjóðin ógn svo sæl eftir að hafa fengið
þráða D-vítamínskammtinn sinn frá bless-
aðri sólinni sem hefur enn ekki sagt pass.
Téð vítamín er nauðsynlegt fyrir virka
vinnslu kalks úr fæðunni. An kalks værum
við duft. Beinahrúga. Þess vegna skapaði
Guð sólina.
Þunglyndi fyrir bí af sömu ástæðu, sólinni
semsé, og birtubrjálæðið sem grípur um sig
á vorin. Allt er þetta spurning um vítamín,
stein- og snefilefni. Nema hvað? Guð veit
alveg hvað hann syngur.
Því hefur þjóðin nú um stundir gnótt orku:
til að hlaupa eftir því skilyrðandi kallmerki
ÚTSALA! ÚTSALA!, gera við annað hvert
þak og aðra hverja götu. Bein í baki brýtur
hún niður bílskúra og byggir garðhýsi, bauta-
steina D-vítamíns og kalks. Ég veit ekki með
Guð.
íslenskt sumar er alltof stutt og stórkost-
legt til þess að fólk tími að eyða orku og at-
hygli í vesenið við Austurvöll. Tímanna tákn
að skeleggustu stjórnarandstæðingar sum-
arsins skuli vera þeir félagar Davið Scheving
Th., Vilhjálmur Egilsson og Gulli í Karnabæ.
„Þjóðin" þarf aftur á móti á sínu stórstuttlega
sumri að halda til að gleyma sér við fram-
kvæmdir, helst á mannamótum um leið, og
lokar því augunum fyrir bakreikningum
hinna fádæma hugmyndasnauðu neyslutoll-
heimtumanna sem nú eru reyndar flestir
farnir í lax. Haustið verður laglegt, lags-
menn! Vibbi! Mæli Thailendingar manna
heilastir: Hráki krabbans snertir ekki
fiðrildið.
Er á meðan er: sumar. Kringlusumarauki
fyrir þá sem vilja. Og þeir eru margir ef
marka má aðsóknina að Hard rock café sem
þjófstartaði fyrir formlega opnun neyslusam-
steypunnar í forarvilpu bernsku minnar og
unglingsára, Kringlumýrinni, sem ég fæ
seint fullgrátið. (Ég gjörsamlega tryllist ef þar
til gerð yfirvöld samþykkja að leyfa funakoll-
um frá fjarlægum löndum, sem hingað koma
með ofstopa í augum í þeirri von að fyrirhitta
sjálfar höfuðskepnurnar, að slá upp tjaldborg
í Öskjuhlíðinni. Allt er nú gert til að rústa
sveit okkar Reykvíkinga, gera okkur vita
náttúrulausa! í höfuðborg landsins finnast að
sönnu þríhöfða skepnur i bókstaflegri merk-
ingu, en fráleitt þær sömu höfuðskepnur og
þeir steinefnarýru gestir vorir vilja endilega
upp á dekk með. Þeir geta nú bara brutt sínar
kalktöflur uppi á jökli, brætt eld og spúð ísi.
Til þess koma þeir hingað.)
Að koma á Hard rock café — í Banakringl-
unni — er Islendingnum hins vegar talsvert
í líkingu við að fara í hópferð til útlanda: þar
kemur saman meðaltalslandslið i neyslufor-
vitni, allt frá fimm ára Hafnfirðingi upp í sjö-
tugan Seyðfirðing með viðkomu hjá aðskilj-
anlegustu Reykvíkingum, og virðist líða
giska vel; fílar sig alveg í botn glasa og salat-
fata; í flottu, samwestrænu umhverfi, hlust-
andi á samwestræna músík sem er hávær en
ekki hörð fyrir franska kartöflu; umkringt
samwestrænum góðkynja menjum; borð-
andi samwestrænan mat, t.d. bæði Tennes-
see- og Hickory-reyktan. Ekki tjóar að biðja
um taðreykta lambasperðla.
Algjör goðgá að sletta dönsku: Sádan gár
det nu bare. I Banakringlunni er nú gloria
mundi. Er það ekki það sem fólkið vill? Sic
transit. . .
Hard rock café: Leifur heppni, hinn þriggja
metra hái, sá sem fyrstur fann hina samwest-
rænu slagæð, kunnandi sér ekki fram-
kvæmdalæti svo fullur mjólkur og lýsis, trón-
ir fyrir miðjum sal með gítarinn á bakinu.
Krossinn sem hann heldur sér að brjósti með
vinstri hendi minnir á hálfétinn banana, sem
er að sönnu orðinn hið óumflýjanlega sam-
westræna tákn: London — N.Y.C. — Stock-
holm — Tokyo — Dallas — Reykjavík. God
bless the big apple, London town, Jackson
Tennessee and Reykjavík eins og segir aftan
á matseðli staðarins.
Ekki veit ég frekari deili á helsta for-
sprakka þessarar nú í dag alþjóðlegu veit-
ingakeðju, Isaac B. Tigrett, en nokkur spak-
mæla hans eru gullletruð stórum stöfum í
harða rokkkaffinu i Banakringlunni. Svo
sem:
LOVE ALL — SERVE ALL
ALL IS ONE
SAVE THE PLANET
Lýsandi dæmi þess að ísak hefur verið
maður slyngur og hreint ekki plánetufjand-
samlegur. Heldur ekki húmorlaus. Ekki
nema gott um það að segja. En sem matar-
fílósóf finnst mér kötturinn Garfield honum
slyngari. Og þar sem samhengið krefst sam-
westrænu vitna ég orðrétt í nokkur spak-
mæla hans:
— Never eat anything that's on fire (eins og
talað út úr mínu hjarta)
— Eat every meal as though it were your
last
— Chew your food at least once.
Ekki var ætlunin að segja neitt ljótt á
ágústkvöldi. Blessunarlega er ég jafnfull og
gjörvöll þjóðin af mjólk, ís, sól, lýsi og fram-
kvæmdagleði í þessum litla, sæta lúpínureit
yst á almáttugs litla fingri. So how could I?
Nei. Nú treinum við okkur sumarið hvert
með sínum hætti, í félagi við aðra þó. Allt
spurning um vítamín og snefilefni. Lengjum
sumarið t.d. með samneyslu sem byggist á
eigin framlagi eða samlagi. Það er ekkert
sem heitir einu sinni á ágústkvöldi. Ágúst-
kvöld eru eilíf. Spurningin er bara hvernig
megi ljúfga þau áður en ágústnóttin fellur.
Stílhrein.
Tillaga að ágústkvöldi — fyrir eða eftir mat
— jafnvel án frekari tilburða.
APPELSÍNUBOLLA
OG ANANASS
Ávextir eru hollir. Romm er líka hollt. Sykur-
reyrinn er úðaður miklu minna en kornið
sem fer í þið vitið hvaða vín. Uppskriftin
gerir tvo lítra.
6 appelsínur
1 sítróna
1 dós niðursoðinn ananas, u.þ.b. 800 g
1 glas rauð kokteilber, u.þ.b. 120 g
2—3 dl dökkt romm
2 flöskur þurrt hvítvín
Kælið hvítvínið. Afhýðið þrjár appelsínur,
skerið í sneiðar og sneiðarnar í fernt. Leggið
í stóra skál. Pressið safann úr hinum appel-
sínunum og sítrónunni og hellið í skálina.
Skerið ananasinn í bita og setjið út í, kokteii-
berin með leginum sömuleiðis. Þá rommið.
Kælið í að minnsta kosti hálftíma. Hvítvininu
er hellt út í rétt áður en bollan er borin fram.
GUACAMOLE
Þessi mexíkanska avókadóídýfa er hreint
frábær. Hún er borin fram ásamt grænmetis-
strimlum og kartöfluflögum. Þessi skammtur
ætti að nægja 8—10 manns.
4 vel þroskaðir avókadóávextir
3 tómatar
4 msk. smátt saxaður laukur
2 marin hvítlauksrif
3 msk. ólífuolía
chilipipar og kóríander eftir smekk
1 tsk. salt
safi úr hálfri sítrónu
1 harðsoðið egg, smátt saxað
Afhýðið avókadóana og stappið, saxið tóm-
atana og hrærið öllu saman.
HVAÐ ÆTLAR ÞU AÐ GERA UM HELGINA?
LILJA EIRÍKSDÓTTIR
MEINATÆKNIR
,,Á laugardaginn verð ég að
vinna, en ég vinn sem meinatæknir
í Landspítalanum og það er vakta-
vinna. Ég þarf að vinna svona þriðju
eða fjórðu hverja helgi. Ég er annars
í sumarfríi þessa dagana en við er-
um að byggja þannig að ég tímdi
ekki að láta eftir vaktirnar mínar. Ég
á svo frí á sunnudaginn og ætla að
nota hann til þess að hvíla mig eða
ef til vill byggja. Ég nota frídagana
mína oft til þess. Ég fór um síðustu
helgi í Skaftafell og það er eiginlega
það eina sem við höfum farið í
sumar.“
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 14.-16. ÁGÚST
Þú gætir orðið einhverrar heppni aðnjótandi á
föstudag og þá er líka hugsanlegt að alvara hlaupi í
ástamálin. Laugardagurinn er ekki jafnrósrauður og
Hrútar verða að gæta þess að vera samvinnuþýðir.
Ella eyðileggja þeir ánægju, sem þeir gætu annars
orðið aðnjótandi. Óhófleg eyðsla á laugardag verður
ekki peninganna virði og þá verða tilfinningamál á
viðkvæmu stigi. Best er því að taka enga áhættu i
peninga- eða ástamálum.
Taktu ekki áhættuna á að geyma öll eggin í sömu
körfunni, eins og sagt er, núna þegar nýtt tímabil er
að hefjast, sem gæti umturnað lífi þinu. Mundu, að
þeir ná árangri, sem eru reiðubúnir til að bíða og
fylgjast með, en neita að láta þvinga sig til ákvarð-
anatöku. Það er líka tímabært að endurskipuleggja
hluti i heimilisiífinu i takt við núverandi þarfir. Og
vertu ákveðnari við þá sem gera kröfu til tíma þíns
og fjármuna.
TVÍBURARNIR (22/5-21/6]
Þér tekst að halda bjartsýninni, þó svo (vinnu-)fé-
lagi þinn afskrifi algjörlega eitthvað, sem þú hefur
lagt þig fram við. Það líður heldur ekki á löngu þar til
náinn samstarfsmaður snýr algjörlega við blaðinu og
styður þig með ráðum og dáð. Þú ættir að losa þig
við það, sem þú þarft ekki lengur á að halda. Ný sam-
bönd munu innan tíðar hafa í för með sér spennu og
fjör.
r 11 'i i ii i iii .............................
Þú getur átt von á góðum fréttum snemma á
föstudag og flókið dæmi gengur þá líka skyndilega
upp. Áherslan er hins vegar á fjármálin á laugardag
og það í fremur neikvæðum skilningi. Stilltu eyðsl-
unni í hóf og fáðu fólkið í kringum þig til að gera slíkt
hið sama. Á laugardag skaltu ennfremur forðast
mannmergð. Þú kemst síðan að því á sunnudag, að
ekki er gott að blanda saman fjármálum og vináttu.
LJÓNIÐ (21/7-23/8;
Þú hefur fundið fyrir andúð að undanförnu og hlot-
ið nokkur áföll, en fólki tekst ekki að varna því að þú
byggir líf þitt á þeim grunni, sem þú kýst sjálfur. Um
næstu áramót verður þú farinn að skilja, að núver-
andi aðstæður eru eins konar hreinsun. Það, sem eft-
irstendur, erþaðsem máli skiptir í lífinu. Framundan
er afar bjart tímabil og þér mun verða kleift að sigrast
á öllum hindrunum.
Það fer of mikill timi í tilfinningamál þessa dagana
og þú þarft kannski að skamma einhvern fyrir að
vera of neikvæður. Sýndu viðkomandi líka fram á að
þú getir ekki veitt alla þá aðstoð, sem hann krefst.
Gleymdu fortíðinni og einbeittu þér heldur að fram-
tíðinni. Sættu þig við gerð mistök og hafðu i huga, að
sú reynsla á sinn þátt í að gera þig að þeirri persónu,
sem þú ert núna.
kii»icJi>! ímBwmmmm
Snemma á föstudag ættirðu að notfæra þér tæki-
færi, sem á eftir að vera til góðs í framtiðinni. Hafn-
aðu a.m.k. ekki tilboðum, án þess að kynna þér þau
vel. Á laugardag er best að taka enga áhættu i tilfinn-
ingamálum, því þá ertu svolítið viðkvæmur. Þú gætir
lent í útistöðum við kunningja, þó það verði ekki til
að eyðileggja daginn. Taktu ekki á þig ábyrgð á hópi
fólks á sunnudag. Ættingi kemur þér líklega á óvart
daginn þann.
SPORÐDREKINN (23/10 22/11
Fyrri hluti föstudags er einkar hentugur til að biðja
um launa- eða stöðuhækkun, eða taka mikilvæga
ákvörðun um framtíðina. Viðskipti við annað fólk
reynast erfið á laugardag og sunnudag og ástvinir
geta verið eigingjarnir eða mjög viðkvæmir. Þetta
leiðir kannski til ósættis og hjónabandserfiðleika,
sem eiga rætur sínar að rekja til þess að of mikill tími
hefur farið í áhugamál utan heimilisins.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12;
Gættu þess að koma öllum mikilvægum skilaboð-
um áleiðis og taktu af skariö varðandi framkvæmdir.
Settu fram úrslitakosti, ef þú telur þig ekki hafa næga
tryggingu frá samstarfsaðilum. Þú finnur, að breyt-
inga er von, en staða þín er mjög sterk. Flestir Bog-
menn njóta þess að takast á við erfið verkefni og
þess vegna ættir þú að vera í essinu þínu í næstu
viku. Þetta er mjög mikiivægt tímabil fyrir þig.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Á föstudag hefur einhver samband við þig, sem
þú hefur ekki heyrt frá í langan tíma, og fjölskyldu-
meðlimir eru þér mikill styrkur þann dag. Annars
ættirðu að nota daginn til að undirbúa helgina og
láttu leiðindapúka ekki eyðileggja fyrir þér ánægj-
una. Þú verðurfyrireinhverjum vonbrigðum á lauga-
rdag, annaðhvort með kunningja eða í tengslum við
fjármál. Forðastu fals, því það kemst strax upp um
þig-
VATNSBERINN (22/1-19/2
Nú er tími til kominn að láta til skarar skríða og
koma fólki i skilning um að þú ert ekki úr leik. Þú skalt
krefjast þess að mikilvægum breytingum sé hrundið
í framkvæmd, þvi þú hefur sýnt biðlund nægilega
lengi og veist núna hvaða stefnu þú vilt taka í lífinu.
Gerðu þér grein fyrir því, að hægt er að breyta öllu
sem þú kærir þig um í vinnunni. Og hikaðu ekki við
að vera með hávaða, ef nauðsyn krefur.
FISKARNIR (20/2-20/3!
Þetta er rétti tíminn til að ráða fram úr öllum mis-
skilningi og ósætti, sérstaklega í tengslum við yfir-
boðara. Mikið happatímabil gengur nú yfir í lífi þínu
og því ættirðu að nýta þína einstöku sköpunargáfu
til fulls. Treystu hugboðum þínum og sýndu þor, því
það er ekki oft sem allt verður að gulli í höndunum
á manni.
34 HELGARPÓSTURINN