Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 39
FRETTAPOSTUR
Fisksala og útflutningur
Til mikilla vandræða horfir nú á fiskmörkuðum í Þýska-
landi í kjölfar myndar sem sýnd var í þarlendu sjónvarpi. í
myndinni kom fram að oft væru lifandi hringormar í fiski
sem veiddur er í Norðursjónum. Þýskir neytendur hafa hins
vegar, að þvi er virðist, sett samasemmerki milli þess fisks
og alls annars sem til þeirra berst, þar á meðal íslensks
fisks. Eins og kunnugt er hefur Þýskaland lengi verið annar
af tveimur helstu ferskfiskmörkuðum okkar og kemur
þetta því mjög illa við islenska fiskseljendur. Fiskverð hefur
lækkaö á almennum markaði í Þýskalandi um allt að helm-
ingi. Þannig er stutt síðan að verðið á karfa var yfir 50 kr.
kilóið en siðast þegar selt var í Þýskalandi var verðið komið
niður fyrir S5 krónur. Þessi orðrómur hefur þó ekki borist
til hins markaðarins sem mikilvægastur er fyrir íslendinga,
Bretlands, því þar seldi Viðey RE nýlega 295 tonn fyrir 17,3
milljónir íslenskra króna, sem er sölumet. Þess má einnig
geta að þó að markaðurinn i Þýskalandi hafi leikið íslend-
inga grátt, þá hafa borist góðar fréttir af Bandaríkjamark-
aði. Þar er mikil eftirspurn eftir íslenskum flökum og lík-
legt er að verð hækki þar um 5—7% á næstunni, þrátt fyrir
að verðhækkanir hafi verið alltíðar að undanförnu. í lokin
má einnig nefna að ef til vill rætist úr þessum markaðsmál-
um i Þýskalandi þegar sýnd verður heimildarmynd sem
þýskir sjónvarpsmenn eru að gera um veiðiferð í togaranum
Vigra RE, en eftir því sem fregnir herma hafa þeir lýst því yf-
ir að fiskurinn sem þar um borð kemur sé sá hreinasti í
heimi hér.
Prjónastofur
Illa horfir i prjónastofurekstri á íslandi um þessar
mundir, sem er víst ekkert nýtt. Nýlega var starfsfólki sagt
upp í prjónastof u Borgarness og einnig hefur fólki verið sagt
upp í prjónastofunni Drífu á Hvammstanga. Það sem eink-
um gerir að verkum að rekstur þessara stofa hefur gengið
illa er að kostnaður hér heima við vinnsluna hefur aukist
mikið, á meðan verðið hefur staðið í stað á erlendum mark-
aði. Mikið hefur verið rætt um og reyndar er það þegar kom-
ið til hjá nokkrum aðilum, að flytja vinnsluna úr landi,
vegna þess að kostnaður við fullvinnslu hráefnis þykir vera
óeðlilega hár hérlendis og gerir að verkum að íslensk fyrir-
tæki verða ekki samkeppnishæf í verði þegar til sölu kemur.
Skák
Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák, vann það glæsi- ■
lega afrek að verða efstur á millisvæðamóti í skák sem ný-
lega lauk í Ungverjalandi. Jóhann hlaut 12 og hálfan vinn-
ing af 17 mögulegum, reyndar deildi hann efsta sætinu með
öðrum. Jóhann hafði lengst af mótinu forystu, fór að vísu
rólega af stað en komst síðan á skrið og lagði hvern andstæð-
inginn á fætur öðrum að velli þegar líða tók á mótið. Jóhann
komst þar með áfram á áskorendamót í skákinni og verður
á því móti í hópi u.þ.b. 15 sterkustu skákmanna i heimi, að
frátöldum heimsmeistaranum. Viðlíka árangur hefur að-
eins einu sinni fyrr náðst af hálfu íslendings, Friðrik Ólafs-
son komst áfram af millisvæðamóti fyrir u.þ.b. 30 árum.
Irúmál
Miklar umræður hafa vaknað upp á síðkastið um trú og
trúarhreyfingar i kjölfar yfirlýsinga nokkurra þeirra um
réttmæti þess að fólk velji sjálft hvort það sefur hjá strákum
eða stelpum og telji sig í sömu mund kristið. Öllum almenn-
ingi hafa þótt þessir trúflokkar nokkuð dómharðir og hrein-
lega öfgafullir og undarlegir en forsvarsmenn þeirra hafa
vitnað stíft til Biblíunnar og varið mál sitt með tilvitnunum
þaðan. Einnig hafa þeir gagnrýnt þjóðkirkjuna fyrir að vera
ekki í takt við tímann, ekki sé nóg fjör í messum og að auki
fái fólk ekki að taka þátt í tilbeiðslunni eins og það ætti að
gera. Öll þessi umræða spratt af þvi að þjóðkirkjan sendi frá
sér ályktun þar sem skorað var á alla kristna menn, sam-
kynhneigða og gagn-, að taka höndum saman í baráttunni
gegn eyðni. Þessu gátu bókstarfstrúarmennirnir ekki unað.
Fréttapunktar
• íslenska landsliöið í bridge hefur staðið sig afar vel á
Evrópumótinu sem haldið er í Brighton um þessar mundir.
Lengst af hefur sveitin verið í efstu sætum, stundum í öðru
og sem stendur er hún í þriðja sæti.
• Valsmenn halda enn forystu á SL-mótinu, 1. deild. Þeir
hafa þriggja stiga forskot á næsta lið, sem er KR. Akurnes-
ingar eru í þriðja sæti, Þórsarar frá Akureyri í því fjórða og
Fram í fimmta. Langt er síðan í næstu lið sem öll eru í fall-
baráttu.
• Nýr saksóknari hefur verið skipaður i Hafskipsmálinu
og varð Jónatan Þórmundsson fyrir valinu. Hann mun
byrja á að yfirfara öll gögn málsins og taka síðan ákvörðun
um framhaldið.
• íslendingar hafa verið í sviðsljósinu að undanförnu á
skandinavíska eiturlyfjamarkaðinum. Fjöldi þeirra hefur
verið handtekinn, bæði í Kaupmannahöfn og í Málmey, m.a.
hálfsextugur maður sem tekin var með 1,3 kg af amfetamíni
í fórum sínum.
• Kringlan, stærsta verslunarmiðstöð landsins og væntan-
lega sú glæsilegasta, var opnuð í dag, fimmtudag, við mikla
viðhöfn. Áfengi var þó ekki á boðstólum, heldur voru um
1200 manns í morgunkaffi.
• Tveir akureyrskir bræður unnu það afrek að synda þvert
yfir Eyjaf jörðinn á laugardaginn var. Þá voru liðin áttatíu ár
síðan slíkt var síðast gert.
• Mosfellssveit er ekki lengur sveit, heldur hefur hún nú
breyst í bæ, með viðeigandi nafnaskiptum, og heitir Mos-
fellsbær.
• Veðrið í júlí var sólarlítið og rigning meiri en í meðalári,
og það á við um allt landið.
• Sikorsky-þyrlufyrirtækið vill fá þá Jón Helgason land-
búnaðarráðherra og Þorstein Pálsson forsætisráðherra til
að mæta við yfirheyrslur vegna þyrluslyssins sem varð í
Jökulfjörðum 1983.
Andlát
Guðmundur Pálsson leikari andaðist í vikunni, tæplega
sextugur að aldri.
Smokkur
Hann gœti
reddad þér
GEGN EYÐNI
Til sölu
Traktorsgrafa
Massey Ferguson 70
árgerð 1975
í mjög góðu standi.
Upplýsingar í síma 83151.
BILALEIGAN
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræöraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiöslukorta
þjónusta
Sími 688177
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags fslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstööum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar': 99-1031 og 99-1030
HELGARPÓSTURINN 39