Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 40
safns íslands hefur nú verið aug-
lýst laus til umsóknar í kjölfar frá-
falls dr. Selmu Jónsdóttur sem
gegnt hafði þeirri stöðu um árabil.
HP hefur fregnað að myndlistar-
menn vilji gjarna fá einn úr sínum
röðum í starfið og áður en ljóst var
að það yrði auglýst til umsóknar
voru í gangi undirskriftalistar þar
sem skorað var á Einar Hákonar-
son, listráðunaut Kjarvalsstaða,
að falast eftir stöðunni. Eftir því sem
sagan segir munu myndlistarmenn
telja hag safnsins vel borgið í hönd-
um Einars og binda vonir við að
hann geti fengið meira fé til þess, en
safnið hefur búið við fjárskort á und-
anförnum árum. Á fjárlögum fyrir
árið 1987 voru til að mynda aðeins
þrjár milljónir áætlaðar til lista-
verkakaupa. Einar mun ekki vera
fráhverfur hugmyndinni að sögn
heimildarmanna, en ljóst er að sam-
keppnin um stöðuna verður hörð.
Bera Nordal, listfræðingur, lengi
starfsmaður safnsins og settur for-
stöðumaður sem stendur, er einn
líklegra kandidata og að auki hafa
heyrst raddir þess efnis að listfraeð-
ingarnir Gunnar Kvaran og Aðal-
steinn Ingólfsson renni til stöð-
unnar hýru auga.
M,„_,
Jóns Baldvins Hannibalssonar á
Karli Th. Birgissyni í fjármála-
ráðuneytið fyrir skemmstu og þótti
orðið fullmikið um pólitískar
mannaráðningar krata að undan-
förnu. Eins og kunnugt er hefur
Stefán Benediktsson fengið starf í
menntamálaráðuneytinu og Guð-
mundur Einarsson orðinn hæst-
ráðandi á flokkskontórnum og þeg-
ar Karl kom í ráðuneytið hafði verið
séð fyrir öllum BJ-krötunum, nema
einum. Kolbrún Jónsdóttir hefur
ekki þegið neina pólitíska aðstoð
heldur rekur verslun við Laugaveg-
inn algjörlega óstudd ög óháð. Al-
þýðuflokknum. Heimildir innan
flokksins halda því hins vegar fram,
fjármálaráðherra til varnar, að alls
ekki hafi verið búið að ganga frá
ráðningu Karls Th. Birgissonar þeg-
ar tilkynningar um hana birtust í
fjölmiðlum, hvernig sem á því
stendur. . .
Góða
helgi!
Þú átt
þaö skilið
SS PIZZ4HISI1)
Grensásvegi 10, 108 R.
S:39933
s
^^^á orðrómur gengur nu fjöli-
um hærra að forysta Alþýðu-
bandalagsins hafi átt einhvern
svo hann væri gjaldgengara leið-
togaefni innan verkalýðssamtak-
anna. Sem kunnugt er verður for-
mannskjör í Verkamannasam-
bandinu í haust og hjá ASÍ ári
síðar. . .
iflnginn botn er kominn í mál
Karvels Pálmasonar alþingis-
manns á hendur Reykjavíkurborg.
Það nýjasta á þeim vettvangi er, að
lögfræðingar borgarinnar hafa
formlega neitað skaðabótaskyldu
borgarinnar í málinu. Lögfræðingur
Karvels bregst nú við með því að
undirbúa stefnu sem lögð verður
fram í borgardómi í byrjun septem-
ber. . .
þátt í því að Guðmundur J. Guð-
mundsson sagði sig úr flokknum.
Rökin eiga að hafa verið þau að
skynsamlegra væri fyrir Guðmund
að varpa frá sér flokksstimplinum
að stefnir í metár í bókaút-
gáfu og kennir þar venjulegra grasa
sem óvenjulegra. Til stórtíðinda á
bókamarkaði ætlum við að muni
teljast stórbók eða sýnisbók sem
Árni Ibsen leikhúsmaður og rithöf-
undur hefur tekið saman og þýtt.
Hún inniheldur veglegt sýnishorn af
verkum írska nóbelsverðlaunahaf-
ans Samuels Beckett, sem hér hef-
ur verið færður upp í leikhúsi en
aldrei settur á prent. Bókin inniheld-
ur meðal annars nýjar þýðingar
Árna á þeim frægu leikritum Beðið
eftir Godot og Endatafli, þýðingar á
nýrri leikritum, smásögum, prósa-
brotum og Ijóðum. Það er Svart á
hvítu sem gefur út. . .
Eins og kunnugt er hefur
Kaupfélag Berufjarðar barist í
bökkum á undanförnum árum og
hefur nú verið gleypt af Kaupfélagi
Austur-Skaftafellssýslu. Þegar
reikningar félagsins eru skoðaðir
skal engan undra aö Guðjón B.
Ólafsson, forstjóri SÍS, skuli hafa
lýst yfir áhuga á að fækka þeim
kaupfélögum sem verst standa. Árið
1986 nam velta Kaupfélags Beru-
fjarðar rétt rúmlega 21 milljón
króna. Hallinn á rekstrinum varð
tæplega helmingi meiri, eða tæp-
lega 42 milljónir króna. Bókfært
verð eigna félagsins var aðeins
hærra en tapið, eða um 46 milljónir
króna. Bókfærða verðið gefur þó
ekki rétta mynd af verðmæti eign-
anna. Markaðsverð þeirra er miklu
lægra, ef eitthvað fengist fyrir þær.
Þegar skuldir félagsins eru skoðað-
ar koma hærri tölur í ljós. Skamm-
tímaskuldir félagsins námu 80 millj-
ónum króna um síðustu áramót.
Heildarskuldir tæplega 115 milljón-
um. Það undrar sjálfsagt fáa að upp
úr áramótum hætti framkvæmda-
stjórinn og fljótlega fóru fleiri lykil-
menn í fyrirtækinu á eftir honum.
Eftir sat SÍS með kaupfélagið og af-
skrifaði um 25 milljón króna skuld
þess. Nú standa yfir nauðungar-
samningar við aðra lánardrottna.
Þeim eru boðin 30% af skuldinni. . .
40 HELGARPÓSTURINN