Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 5
Ibúðirfyrir aldraða í parhúsum við Hjallasel iDóöimar enj um 69 tm ab stæri oc tv’utoe iC i sameiOimeon loð og loöamiuti ti> einKaafnota Þe.r cn,r oe:a neyc: iOu5 r oq öuiö i Deim sem eru orömr 63 ara oamur. oc nara veró bjsetv i P.ewiavi», a m k 3 unaantann ar. Ibúöareipenaur eipa rer a aó mo;a bionustu semveittveröuriovaiameimu.acraöraa5H,a.ase 65. Ibuöimar eru Doönar tii soij a Kostnaöarverö Dena BORGARSTJORINN I REYKJAVIK m Atnygii e' vakm a bvi aö moauiept e< aö taka ibuð upp i kaupverðtð. Soluskiimalar og greiðslukjor asamt uppdrattum og lysmgu á ibuöunum liggia trammi a sKntstotu Reykiavikur- j Tgge borgar. Austurstræti 16. 2. hæö Ibuöimar eru til syms alla úaaa tra kl. 13-15. <I> Auglýsing frá borgarstjóranum í Reykjavík birtist í Morgun- blaðinu 6. maí 1986. Verö á ibúöunum var ekki gefið upp í auglysingunni. Verö á íbúöum aldraöra ekki í neinu samhengi viö fasteignamarkaöinn Fyrir borgarstjórnarkosningarnar í fyrra uoru auglýslar til sölu íbúdir fyrir aldraða við Hjallasel. Stœrð þeirra íbúða var 69 fermetrar og verðið 3,2 milljónir, eða rúmlega 46.000 krónur á fermetra. Á sama tíma kostuðu 3ja herbergja raðhús tœpar 25.000 krónur á fermetra. Þetta verð er ekkert einsdœmi. Það er daglegt brauð aö okrað sé á íbúð- um fyrir aldraða. Það er Ijóst að verð á íbúðum fyrir aldraða er ekki í nokkru samhengi við það fasteignaverð sem tíðkast. í samtali HP við fasteignasala kom fram að það er markaðslögmálið sem ræður hinu háa verði. Eftir- spurn eftir hentugum íbúðum er svo mikil að „börn" hinna öldruðu láta sér fátt um finnast þótt láta þurfi 140 fermetra hæð ásamt bílskúr fyrir litla tveggja herbergja íbúð fyrir for- eldrana. I þessum íbúðarbyggingum geta foreldrarnir fengið þjónustu, s.s. læknisþjónustu, og þau geta fengið keyptan mat. Sú þjónusta sem veitt er í þessu húsnæði skýrir þó engan veginn verðmismuninn. Dæmi um fokdýrar íbúðir fyrir aldraða eru íbúðirnar við Hjallasel, byggðar á vegum borgarinnar, íbúð- ir Samtaka aldraðra við Bólstaðar- hlíð og íbúðir Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur í Kringlunrii. FJOLSKYLDUR CERÐAR EIGNALAUSAR Pað þykir ijóst að ráðist er í bygg- ingu á þessum húsum án þess að menn geri sér nokkra grein fyrir endanlegu verði. „Þetta er slysadæmi," sagði mað- ur vel kunnugur þessum málum. ,,í þessu máli vildu allir vel. VR vildi vei og fór út í þessar byggingar að vel íhuguðu máli. Kaupendurnir voru að huga að ellinni, nokkuð sem hafði ekki tíðkast hér á landi. Að vandlega íhuguðu máli voru þarna nokkrar fjölskyldur gerðar eignalausar." Annar tók undir þessi orð og benti á að um leið og íbúðir VR hefðu ver- ið auglýstar hefðu strax milli 200 og 300 manns verið komnir á biðlista: „En þegar kom að því að flytja inn kom í ljós að íbúðirnar voru ekki all- ar seldar. Það voru sem betur marg- ir sem sáu hvert stefndi og hættu við.“ Fasteignasalar í höfuðborginni segjast hafa þekkt VR-fólkið úr öðr- um seljendum „vegna þess að þetta fólk fór fram á svo liátt verð fyrir sínar íbúðir. Ekki vegna þess að það vildi græða svona mikið heldur tók það mið af því sem það var að kaupa. Eðlilega ætlaði fólk ekki að selja stærri eignir á lægra verði en það var að kaupa litla íbúð fyrir". ÍBÚÐIRNAR HÆKKA UM MILLJÓN Verð á íbúðum í VR-blokkinni varð endanlega 3,2 milljónir fyrir 2ja herbergja íbúðir, 60 fermetra að stærð. í dag myndu þessar íbúðir kosta 3,4 milljónir, en VR sendi loka- uppgjör til kaupenda í sumar, nokkrum mánuðum fyrr en kaup- endur í Bólstaðarhlíðinni fengu sitt lokauppgjör. Það barst þeim í síð- ustu viku. Mörgum þeirra brá í brún, svo ekki sé meira sagt. Ibúð, sem sagt var að myndi kosta 2,4—2,6 milljónir þegar hún var auglýst fyrir hálfu öðru ári, kostar nú milljón krónum meira, eða 3,5—3,6 milljón- ir. Þetta kemur sér að vonum ákaf- lega illa fyrir íbúana sem flestir eru löngu búnir að selja skuldiausar íbúðir á lægra verði en þeir þurfa nú að greiða fyrir litlu íbúðirnar í Ból- staðarhlíðinni. Féð sem nota átti til að njóta þægilegra daga í ellinni er uppurið. EKKI í SAMHENGI VIÐ ALMENNAN MARKAÐ „Þessar íbúðir voru aldrei boðnar út á föstu verði. Samningarnir Bólstaöarhliö 45. Hús sem Samtök aldraðra stóðu fyrir byggingu á. íbúðir þar hafa hækkað um milljón frá upphaflegri áætlun. kváöu á um að uppgefið verð væri áœtlað kostnaöarverð og bundið byggingarvísitölu," sagði einn fast- eignasalinn í samtali við HP. „Bygg- ingarvísitalan hefur hækkað um 1—1,5% á mánuði. Verð á þessum íbúðum er þess vegna ekki í nokkru einasta samhengi við það verð sem tíðkast á almennum markaði." Hann nefndi sem dæmi að í dag er hægt að selja litlu DAS-íbúðirnar í Hafnarfirði, sem eru 53 fermetrar að stærð, á 3,2 milljónir eða rúm- lega 60.000 krónur á fermetra: „Eft- irspurnin er svo mikil eftir þessari stærð af íbúðum að seljandi getur auðveldlega farið fram á 3,4 milljón- ir fyrir hana — og fengið svo hátt verð — og allt borgað út á einu ári. Til samanburðar má geta þess að verð á 4ra herbergja íbúðum (110 fermetra) í Breiðholti og Hraunbæ er í dag í kringum 4 milljónir og í Seljahverfi í Breiðholti er verð á 110 fermetra íbúðum með bílskýli 4,0—4,2 milljónir. VR-blokkin. Milli 200 og 300 manns voru á biðlista eftir að kaupa íbúöir í þessu húsi þegar þær voru auglýstar. Margir sáu hvert stefndi og hættu viö. 10—15.000 MEIRAÁ FERMETRA HJÁ ÖLDRUÐUM Tveggja herbergja íbúðir eru reyndar alltaf með dýrasta fer- metraverðið og í dag fæst ekki góð 2ja herbergja íbúð undir 2,8 milljón- um. Pað gerir rúmar 50.000 krónur á fermetra, eða allt frá 10—15.000 krónum lægra verð en tíðkast á íbúðum aldraðra. Þeir fasteignasal- ar sem rætt var við bentu á að þeir sem hygðu á húsnæðiskaup fyrir aldraða skyldu hafa í huga að það verð sem gefið er upp í dag yrði minnst milljón krónum hærra þegar upp yrði staöið og flutt inn í íbúðirn- ar. „Spennan og þenslan í þjóöfélag- inu eru miklu meiri nú en nokkurn tíma fyrr," sagði fasteignasalinn. „Þenslan byrjaði í mars og hefur aukist með hverjum mánuðinum. Þetta á enn eftir að versna." -AKM a HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.