Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 15
starfar Víðir hins vegar við hugbún- aðar- og tölvuþjónustufyrirtækið Kerfi hf, enda búinn að afla sér þekkingar bæði í starfsþjálfunar- skólanum og síðar í starfsnámi hjá /BM-fyrirtækinu. Vinnuna hjá Kerfi fékk Víðir einmitt í framhaldi af veru sinni hjá IBM. „Ég varð eigin- lega hrifinn af tölvunni við fyrstu sýn,“ sagði hann í viðtali við blaða- mann HP. „Hún greip mig strax.“ Eftir slysið var Víðir fluttur í Borg- arspítalann í Reykjavík, þar sem hann var hinn brattasti þrátt fyrir mikil meiðsl. Hann var m.a. kominn með bæði sjónvarpstæki og segul- band við rúmstokkinn á gjörgæslu- deildinni! En hann var marinn í framan, krúnurakaður, með lóð föst við höfuðið og liggjandi á mjóum „Hvers vegna má ekki hafa skóla, þar sem aðgengið er fínt? Hvað hefði ég að gera t.d. inn í fjölbrauta- skóla, þar sem allt er keyrt á fullu? Sumir okkar, sem vorum þarna í upphafi, höfðu ekki komið í skóla í mörg herrans ár. Margir voru þar að auki með hendurnar í algjöru ólagi og urðu að læra að skrifa upp á nýtt með sérstökum hjálpargræjum. Við þurftum sérstaka kennslu og höfð- um nákvæmlega ekkert að gera inn í almenna skólakerfið." Raunar þjálfaði Víðir sig síðar í að skrifa án hjálpartækja, þó svo hann geti ekk- ert frekar hreyft fingurna núna en þegar hann var í skólanum. Starfi hans fylgja fylgja nefnilega tölu- verðar skriftir og honum tókst þetta með hörkunni. Tveir ungir sjómenn, sem lömuöust eftir bílslys, segja frá því hvernig þeir ventu sínu kvœöi í kross og helguöu sig tölvutœkninni bekk, svo lífið eftir bílslysið hefur sannarlega ekki verið dans á rósum. Víðir yppti hins vegar öxium og sagði: „Maður varð eiginlega strax samdauna þessu." Núna býr Víðir í einu herbergi í Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún, um- kringdur nýjustu tækni. Þarna var t.d. bæði tölva, sjónvarp, afruglari, kassettu- og myndbandstæki. Víðir ætlar síðar meir að flytja úr Hátún- inu, en hann taldi þó ómetanlegt að húsnæði af þessu tagi stæði fólki til boða sem eins konar stökkpallur út í lífið. 1 samtali við Helgarpóstinn sagð- ist Víðir mæla eindregið með skóla fatlaðra, hvort heldur væri sem und- irbúningi undir hið almenna skóla- kerfi eða vinnumarkaðinn. ÞorJeif- ur Kristmundsson hafði einmitt svarað á sömu lund, þegar blaða- maður spurði hann hvort rétt væri að einangra fatlaða í skólakerfinu á þennan hátt: Nú hefur námsgreinum við skól- ann verið fjölgað, en þegar Þorleifur og Víðir voru þar við nám voru kennslugreinarnar sex; íslenska, enska, stærðfræði, bókfærsla, tölvu- fræði og hagfræði. Upphaflega unnu kennararnir kauplaust og þakklæti fyrrverandi nemenda í þeirra garð var augljóslega ómælt. Þorleifur hafði verið atvinnulaus í átta ár áður en hann lauk námi frá þjálfunarskólanum, þó hann hefði ítrekað sótt um vinnu. „Það var eins og að ganga ... ég meina keyra ... á lokaðar dyr að sækja um starf á þessum tíma,“ segir hann. Að nám- inu loknu gekk honum hins vegar greiðlega að fá starf við sitt hæfi, enda búinn að fá þjálfun í tölvufræð- um og öðru, sem eftirsótt þykir á vinnumarkaðnum. Sjómaðurinn var sem sagt orðinn sérhæfður skrifstofumaður og hafði þar með ákveðna hæfni og þekkingu, sem Víðir Þorsteinsson: „Tölvan greip mig strax." hentaði manni með skerta líkam- lega burði. Þó Þorleifur sé nú í góðu starfi og allt virðist leika í lyndi, miðað við aðstæður, er ekki þar með sagt að þetta hafi allt gerst átakalaust. Hann reynir hins vegar greinilega að velta sér ekki upp úr fortíðinni og því, sem óumbreytanlegt er: „Ég man hreinlega ekki hvernig mér leið, þegar mér var upphaflega sagt að ég væri lamaður. Eiginlega trúði maður þessu aldrei, fyrr en komið var á Grensásdeildina. En fyrstu ferðirnar út í heiminn voru hrika- lega erfiðar, skal ég segja þér. Við þessar aðstæður er ákaflega mikilvægt að halda sér opnum og loka sig alls ekki af frá öðru fólki. Ég reyndi að gera þetta eftir fremsta megni. Aðeins fjórum mánuðum eftir slysið fór ég meira að segja vestur í jólafrí. Þar ætlaði ég m.a. á ball, en var ekki hleypt inn í sam- komuhúsið. Það varð líka blaðamál á sínum tíma. Verra var hins vegar að horfa á bátana í höfninni. Þá leið mér hrylli- lega illa. Lengi vel átti ég líka bágt með að fara í bíltúr út á Granda. Það togar í mann að sjá skipin. Núna hef ég ekki komið á skipsfjöl í tíu ár og ég efast um að ég fengi nokkuð út úr því að fara t.d. með Akraborginni. Ég fengi ekki réttu tilfinninguna." Þessar kenndir í tengslum við sjóinn talaði Víðir Þorsteinsson líka um, enda víst ekki ofsögum sagt af að- dráttarafli hafsins. Þrátt fyrir þetta sagðist Þorleifur ekki vera bitur á þessari stundu. Sú kennd hvarf, þegar hann kynntist konunni, sem nú er lífsförunautur hans. „Það skiptir öllu máli að eiga góða að og hafa vinnu," sagði hann með áherslu, en bætti síðan við að sjálfur væri hann farinn að vinna í mínus. Með því átti Þorleifur við það, að fjárhagslega kæmi hann bet- ur út með því að lifa á tryggingabót- um og lífeyrisgreiðslum. Hann sýndi mér fram á þetta með tölum og reyndist niðurstaðan sú, að hann hefði tveimur þúsundum meira upp úr því að liggja heima í sófa en drífa sig daglega á fætur klukkan sex og sækja vinnu. wm ÍSLANDS 27644 box 1464 121 Reykjavík Handmenntaskóli Islands hefur kennt yfir 1250 Islending- um bæöi heima og erlendis á síðastliðnum sex árum. Hjá okkur getur þú lært teikningu, litameðferð og skrautskrift - fyrir fullorðna - og föndur og teikningu fyrir börn í bréfaskólafomi. Þú færð send verkfæri frá okkur, sendir okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka. Þeim, sem minni tíma hafa, bjóðum við uppá stutt hæfileikapróf á þessum sviðum. - Biddu um kynningu skólans með því að snda nafn og heimilisfang til okkar eða hringdu I síma 27644 núna strax, símsvari tekur við pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeið- anna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt, hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hór er tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra teiknun og skrautskrift á auðveldan og skemmtilegan hátt. Þú getur þetta líka. ÉG 'ÓSKA EFTIR AD FA SENT KVNNINOARftlT HMÍ MER AD KOSTNADARLAUSU 1 1 ^^HEIMILISF. bíleic l/p BODD ÚDÝR TREFJAPLAST AR GERÐIR BfLA, STAI BILPLAST Vkgnhoföa 19, •Iml 6M233. PóstMndum. iENDUR fgá ÍHLUTIR! ^ BRETTI O.FL. Á FLEST- ÁSETNING FÆST Á )NUM. Ódýrir srurtubotnar. Tökum að okkur tmfjaplastvinnu. VWjW Wwiakt. KÉR^SIASE FRÁ L’ORÉAL PARÍS ATT ÞU í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ, LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.