Helgarpósturinn - 08.10.1987, Page 34

Helgarpósturinn - 08.10.1987, Page 34
Á SEGLBRETTUM Þá er vetur konurigur alvarlega genginn í gard — þad er heldur kalt og hráslagalegt útivid. Viö slíkar ad- stæður skrída sumaríþróttamenn í hýöi og láta ekki á sér krœla. Þeir síöustu héldu íslandsmót sitt um helgina sem leiö í roki og rigningu og varö ekki meint af. Reyndar er þessi íþrótt stunduö nánast allt áriö um kring af þeim allra höröustu en aö sumarlagi af þorra þeirra er hana stunda. íslandsmótiö á segl- brettum fór sem sagt fram um síö- ustu helgi. ÞRÍFAST Á VINDI Seglbrettaíþróttin er ein af hinum ungu íþróttum á íslandi ásamt t.d. keilu og pílukasti. Hún á sér reyndar orðið þó nokkra fylgifiska, en kepp- endur á íslandsmótinu voru þó að- eins um 8—9. Reyndar var vindur allnokkur og sennilega hafa ein- hverjir helst úr lestinni við það eitt að líta út að morgni laugardags eða sunnudags. Þarna voru þeir hörðu semsagt mættir í sínum blautbún- ingum með eins konar „blautlamb- húshettur" og með „krókbleyju" um sig miðja til að hanga í seglinu. Ólgandi Atlantshafið var vettvang- ur keppninnar sem fólgst í að sigla í 8 á milli tveggja bauja. Það verð ég að segja þessum ungu mönnum til hróss að þér létu konungana Kára og Ægi ekkert á sig fá heldur börð- ust hetjulega við að hanga í seglun- um, sem voru af minni gerðinni í þessu veðri. Þarna skutust þeir áfram og stukku tignarlega þegar við átti á öldutoppunum en hurfu nánast þess á milli i öldudölunum. Eins og frímerki á illvígu hafinu skutust þessi litskrúðugu segl eftir vatninu og fannst manni sem þau gætu færst á bólakaf við næsta öldu- hramm. Dálítið aðrar aðstæður sem okkar siglarar búa við en kollegar þeirra í Suðurhöfum. Á Hawaii og Mallorka fleyta menn litadýrðinni um á stutt- buxum einum saman og þar er ald- an heit, stór og hrein. Við Islending- ar erum þó hörkuþjóð og höfum í aldaraðir mætt hrammi Atlantshafs- ins með hugprýði og seiglu. Reynd- ar oftar náð að nýta okkur eigin- leika úthafsins en að víkja fyrir ógn- um þess. Sennilega hafa litskrúðug- ar myndir í imbakassanum ruglað okkur svolítið í ríminu við að til- einka okkur seglbrettaíþróttina og menn haldið að líf og litir dygðu til að sigrast á Ægi konungi. Svo er þó ekki, heldur þarf bæði kjark og þor sem við íslendingar eigum nóg af. Það sannaðist hjá seglbrettaköpp- unum á íslandsmóti þeirra um síð- ustu helgi og víst er að þeir eiga eftir að ógna Ægi í stærri hóp en þá. AÐRIR VÍKINGAR Af öðrum víkingum af íslensku bergi er auðvitað rétt að nefna strandhögg þau er handknattleiks- lið Víkinga og Stjörnunnar hjuggu á Bretlandseyjum. Risasigrar á eyja- skeggjum urðu til þess að einhver varpaði fram þeirri spurningu hvort þessi lið frá enskum hefðu nokkuð að gera í Evrópukeppni í handknatt- leik. Skemmtileg spurning sem svara má með spurningunni: Hafa íslensk lið nokkuð að gera í Evrópu- keppni i knattspyrnu? Frammistaða Vals og Skagamanna í haust segir já en Frammarar draga þó seiminn í þessu jái. í fyrra þurftu öll íslensku liðin, reyndar þau sömu og þetta ár- ið, að draga meira en seiminn í já- inu. Þá varð rassskellingin algjör eins og hjá Bretunum í handknatt- leiknum. HVÍLÍK ÖRLÖG Handknattleiksvertíðin hófst í síð- ustu viku fyrir alvöru en þá voru reyndar tvö íslensk lið búin að tryggja sér sæti í annarri umferð Evrópukeppninnar en hið þriðja var skammað í Danaveldi og komst ekki áfram. íslandsmótið hófst með nokkrum spenningi þar sem nú voru mættir til leiks þrír af atvinnu- mönnunum okkar og vitað að bar- áttan kæmi til með að verða gífur- leg í fyrstu umferð eins og reyndar er reiknað með fram í þá síðustu. Aðalleikurinn var á milli Fram og Vals þar sem aðrir leikir voru eftir bókinni nema að þeir rassskelitu steinlágu fyrir KR-ingum, sem aldrei áður hafa verið í þeim sporum að búast ekki við neinu af sínum liðum. Af atvinnumönnunum er það skemmst að segja að Einar Þorvarð- arson stóð fyrir sínu þó nokkuð hafi hann vantað upp á getu kollega síns Kristjáns í marki Víkinga. Sigurður Gunnarsson átti náðugan leik gegn ÍR-ingum undir stjórn þjálfarans, ieikmannsins, gjaldkerans, fram- kvæmdastjórans og Guð má vita hvers Guðmundar Þórðarsonar. Atli Hilmarsson meiddist illa í viðureign Fram og Vals og á ekki af þeim blá- klæddu að ganga. Er virkilega hægt að leggja slíkt á eitt lið? Er þetta virkilegt. Hvílík hörmung. Eru guð- irnir svona vondir. Það er ótrúlegt að þetta lið skuli geta spilað hand- knattleik eftir að máttarvöldin hafa leikið það svona grátt. Það er nán- ast yfirnáttúrulegt hvernig þeir blá- klæddu ætla að ná sér eftir svona atvik og önnur lík. Verður ekki að leggja handknattleikinn niður hjá Fram? Ef marka má rauða blaðið með bláu íþróttaopnunni er ekki hægt að leggja meiri þjáningar á nokkurn hóp. Jafnvel gyðingar sluppu vel í seinni heimsstyrjöld- inni. Svo alvarlegt er ástandið að ástæða þótti til að ræða alvarlega við einn leikmann liðsins, mark- vörðinn, eftir að hann hafði varið víti í leiknum. Varði Kristján Sig- mundsson ekki fjögur? Fyrir utan þessi ragnarök hjá þeim blákiæddu virtist sem leik- menn iiða í íslandsmótinu kæmu vel undirbúnir til leiks. Óvæntu úr- slitin voru í Kópavogi en víst er að Blikarnir eiga eftir að ná sér betur á strik þegar þeir jafna sig í rasskinn- unum eftir Danmerkurförina. Að mínu viti verða Víkingar sigurveg- arar þessa móts. Þeir spila kerfis- bundinn handknattleik með snjalla menn í hverri stöðu á meðan t.d. Valsmenn eiga mest undir einstakl- ingsframtakinu og eru viðkvæmari eins og sást í viðureigninni við Fram. Frammarar áttu möguleika í mótinu en hörmungar sem dunið hafa á því liði eiga engan sinn líka. FH, Stjarnan og Blikar verða líka í slagnum ef að líkum lætur en þó nær enginn Víkingunum. Þetta mót verður eflaust mikið fjölmiðlamót. Stöð 2 ætiar að vera með tvo þætti í viku um handknatt- leikinn og búast má við að Gufan sýni leiki í heild sinni til að þurfa ekki að vera með fjölbreyttan þátt á laugardögum. Nú ef ekki verður um heilan handknattleiksleik að ræða á laugardögum þá má alltaf grípa í gamla golf-sjóðinn, sem talað var inn á í vor, svo og skautasýningar frá Brondby-höllinni. Morgunblaðið gaf út veglegan ,,kálf“ um íslandsmótið og rauða blaðið með bláu sportsíð- unni hefur verið með úttekt á hand- knattleiknum svona rétt fyrir mót. Þá var fjölmörgum síðum eytt undir íslandsmótið daginn eftir að það hófst og víst er að þær eiga eftir að verða ófáar síðurnar sem fjalla um handknattleik á þessum vetri. Má búast við að aðrar íþróttagreinar eigi undir högg að sækja á síðum blaðanna og ekki verða allir ánægð- ir. Miðað við það framboð sem þó er af íþróttum í ljósvökum og á prenti ættu „sportídjótar" þó ekki að þurfa að kvíða vetrinum. Tueir af okkar bestu seglbrettamönnum etja kappi uid Ægi konung og huor uid STJÖRNUSPÁ HELGINA 9.-11. OKTÖBER ITURINN 121 /3—20/41 Einhvers misskilnings gætir í peninga- málum á föstudag og þú ættir aö fara afar varlega í þær sakir. Maki eöa ástvinur tekur af skarið á laugardag, ef til vill í tengslum viö útiveru eða samkvæmislíf. Faröu ekki óvar- lega með tíma þinn og orku á sunnudag. Veikindi annarra gætu sett strik í reikninginn varðandi áætlanir um helgina. NAUTIÐ(21/4-21/51 Þú munt hafa mikiö aö gera á næstu vik- um og þær ráöa úrslitum varðandi vel- gengni þína i starfi. Horfurnar eru fremur já- kvæðar, en þú verður aö losa þig úr sam- starfi við ótrausta eöa ósamvinnuþýða að- ila. Hugaðu að framtíðaráformunum, en mikið veltur á hlutum, sem koma í Ijós eftir 23. október. Settu markið hátt. TVÍBURARNIR (22/5-21/61 Haltu samningaviðræðum áfram og sýndu öðrum fram á að þér er treystandi. Hættu að hafa áhyggjur af viðbrögðum ást- vina og ættingja. Lífið framundan er mun meira spennandi en það hefur verið undan- farið og nú er tíminn til að huga að heilsufari og hollustu, sem þú hefur vanrækt á ný- loknu erfiðleikatímabili. KRABBINN (22/6—20/7] Reyndu ekki að blánda saman rómantík og vináttu. Þú gætir átt í erfiðleikum, sem tengjast barni eða unglingi, en lykillinn að því er að koma í veg fyrir samskiptaörðug- leika. Þessi helgi hentar til einveru og þú ættir ekki að láta undan kröfum annarra. Vertu hlýlega klæddur á sunnudag, svo þú ofkælist ekki. LJÓNIÐ (21/7-23/81 Þú hefur ákveðnum skyldum að gegna og þarft að axla töluverða ábyrgð. Áhersla er á fjölskyldulíf og eignir og þú ættir að athuga hvort þú getur tekið á þig frekari byrðar. Ekki tefja tímann, heldur taktu af skarið og sann- aðu stjórnunarhæfileika þína. k Innst inni veistu að breytingar verða að eiga sér stað í einkalífi þínu. Vertu fyrri til og lýstu þig reiðubúinn, þvi ekkert er til bjargar. Þú hefur eflaust aldrei verið jafnóviss í þinni sök og nú, jafnvel varðandi eigin tilfinningar, en komdu a.m.k. fjármálunum á hreint. ITITFnTIiWggWr!—— Fjármál, sérstaklega er þau snerta aðra en sjálfan þig, valda þér erfiðleikum þessa dag- ana og minna verður úr að spila en þú vildir. Sýndu ákveðni og gerðu það sem samvisk- an býður þér. Sunnudagurinn gæti orðið erf- iður vegna máls, sem kemur upp innan fjöl- skyldunnar. SPORÐPREKINN (23/10—22/11 Öll samvinna gengur vel á föstudag, en þú ættir ekki að standa einn að neinu verkefni. Vertu jákvæðari og láttu það sjást á þér. Ekki brydda upp á viðkvæmum málum við. ást- vini þína á sunnudag og deilur um peninga- mál eru tilgangslausar. BOGMAÐURINN (23/11-21/12] Nú þarftu að gera grein fyrir fyrri hegðun þinni, en upp frá þessu verður þú líka hrein- skiptnari einstaklingur. Gakktu úr skugga um hverjir standa með þér og breyttu ekki gömlum áætlunum, þó mótrökin hljómi sannfærandi. Taktu enga áhættu í fjármál- um. EnnEMHMEsmwMm Föstudagurinn gæti verið betri, því ýmiss misskilningur er á ferðinni og þú ættir að sýna fyllstu aðgát á öllum sviðum. Þetta breytist hins vegar til batnaðar strax á laug- ardag. Þér hættir til að færast of mikið í fang á sunnudag og það leiðir til ofþreytu. r n 11 irin'irrrtwnM Þú ert á einhverju flakki, eða a.m.k. að ráð- gera slíkt. Eftir 23. október byrjar nýtt tíma- bil i lífi þínu og þú mátt ekki láta neitt halda aftur af þér. En þú verður líka að taka af skar- ið og hætta að vernda aðra. Það er mun bjartara framundan en verið hefur að und- anförnu. FISKARNIR (20/2-20/3; Láttu engan standa í vegi fyrir því að þú náir eins langt og hægt er í vinnunni. Það verður nægur tími síðar til að takast á við til- finningaflækjur og fjármálavanda. Mikið hefur gerst að undanförnu, en þú hefur þó ekki verið fullkomlega ánægður. Nú skaltu treysta eigin hæfileikum og flýta þér að ganga vandlega frá öllum hnútum. 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.