Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 28
EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR z'. annan að hann sé „kvennagull" eða „kvennamaður" má oft greina dulitla öfund eða a.m.k. virðingu í rómnum. Noti konur sömu orð get- ur hins vegar brugðið fyrir hneyksl- an eða fyrirlitningu, þó ef til vill sé grunnt á kitlandi spennu ef vel er að gáð. Eða hvað? SKEMMTILEGIR SKÚRKAR Þær konur, sem blaðamaður spurði álits á svokölluðum kvenna- bósum, voru ótrúlega samdóma. Þegar skoðanir þeirra hafa verið hnoðaðar saman í eina formúlu hljóðar hún í þessa veru: Alræmd- um kvennamönnum tekur maður með mikilli varúð, a.m.k. í fyrstu. Hætt er við að þeir séu einungis að bæta einni konunni enn í safnið. Margir þeirra hafa líka svo ofvaxið sjálfsálit að það er hreinlega ekki hægt að vera nálægt þeim lengur en í örfáar mínútur. Sumir kvensamir menn eru hins vegar ljómandi skemmtilegur fé- lagsskapur, með megináherslu á orðið „skemmtilegur“. Þegar sú teg- und verður á vegi manns (þ.e.a.s. koriu) fjúka stundum út í veður og vind allar fyrri áætlanir um að snúa hann af sér. Það gleymist þá oft fljótt hvað náunginn er „alræmdur", enda uppgötvar konan skyndilega hvað það var, sem allar hinar stelpurnar sáu við hann. Létt og skemmtileg lund býr líka yfir þeim yfirnáttúru- Iega mætti að geta breitt allsnarlega yfir hrukkur, skalla, háan aldur, líkamslýti og annað, sem sam- kvæmt Iögmálum yfirborðs- mennskunnar þykir ekki heppilegt til árangurs í ástamálum. GULL- OG TÖFRATYPPI Konurnar, sem ræddu við blaða- mann HP, töldu orðróm um mikla bólfimi ákveðinna karlmanna ails ekki geta haft nokkur áhrif á sig. Þær þekktu hins vegar flestar dæmi um aörar konur, sem féllu fyrir svo- leiðis! Einhverja rullu spilar þessi hlið mála þó, því viðurnefni eins og „gulltyppi" og „töfratyppi", sem Hvad finnst konum um KVENNABOSA Það er með ólíkindum hvað sumir menn heilla konur meira en aðrir. Stundum eru þetta sérlega myndarlegir karlar, háir og herðabreiðir, vöðvastæltir og vaskir. Kvennagull eru þó alls ekki undantekningarlaust mikið augnayndi. Fagurt útlit er nefnilega síður en svo gull- trygging fyrir kvenhylli... Þótt það saki kannski ekki! Nóg er til af orðunum yfir karl- menn, sem gera það gott í kvenna- málum. Sagt er að þeir séu kvenna- bósar, flagarar, tælarar, kvenhollir, upp á kvenhöndina, kvenelskir, kvensamir, kvensælir, kvenskir, kvennamenn, kvennagull, kven- loddar og kvensnatar, svo eitthvað sé nefnt. Einnig eru þeir stundum kenndir við Don Juan, Casanova, Valentino og fleiri. En hafa þessi orð jákvæða merkingu eða neikvæða? Eflaust er slíkt mat afar persónu- bundið, en það fer líka töluvert eftir því hvort það er notað af karli eða konu. Þegar karlmaður segir um rf • f ■ Við hjá Lumex gerum fleira en að selja listræn- an Ijósabúnað, kaupun- um fylgir fagleg ráðgjöf um val og uppsetningu á réttri lýsingu. Gerðu kröf- ur og leitaðu til Lúmex. VERSLUN-RAFVORUR-TEIKNISTOFA f-:W, ... 'm , V;-: Wé Swumúlal2-simi91-688388-108Reykjavík 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.