Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 29

Helgarpósturinn - 08.10.1987, Blaðsíða 29
nefnd voru til sögunnar, festast ef- laust ekki við menn að tilefnislausu. Aðdráttarafl slíkra uppnefna, ef það hefur á annað borð einhvern tím- ann verið til staðar, hlýtur líka að minnka ört á tímum alnæmisplág- unnar. En þó frásagnir af kynlífsafrekum kvennabósa hafi ef til vill ekki úr- slitaáhrif á hið svonefnda veikara kyn, er ekki þar með sagt að töfrar karlanna liggi eingöngu í jafn- óáþreifanlegum eiginleika og léttri lund. Veraldlegri hlutir hafa óneit- anlega einnig áhrif, eins og mýmörg dæmi sanna. Þrjú atriði virðast t.d. hafa fleytt mörgum flagaranum langt: Völd, peningar og frægð. Við- mælendur okkar tóku þó ákveðið fram, eins og varðandi bólfimina, að þær hefðu persónulega aldrei séð sjarmann við svona nokkuð. Allar höfðu konurnar þó grun um að sum- ar kynsystur þeirra gætu verið gin- keyptar fyrir karlmönnum, sem annaðhvort væru valdamiklir, ríkir eða frægir. Hvað þá þeim, sem gætu státað af þessu öllu! FÉ í STAÐ FEGURÐAR Völd, peningar og frægð fara oft saman og virðast afar kynæsandi blanda, a.m.k. ef viökomandi hefur snefil af áhuga á að nýta sér slíkt. Símon heitinn Spies var einn þeirra, sem alltaf höfðu úr hirð kvenna að velja, þó svo hann hafi ekki bein- línis verið fjallmyndarlegur útlits. Hann var hins vegar moldríkur og frægur í sínu heimalandi, og víðar. En hver veit — kannski var karlinn hann Spies með skemmtlegri mönn- um og sjarmeraði smástelpurnar alveg upp úr skónum? Þekktir rokktónlistarmenn hafa líka margir hverjir skipt um föngu- lega förunauta eins og aðrir skipta um sokka. Það sama er að segja um kunna kvikmyndaleikara, stjórn- Útlit og aldur hafa minna aö segja varöandi árangur kvensamra manna en kímnigáfa og skemmtilegheit. Peningar, frœgd og völd mega fylgja. málamenn, iðnjöfra og aðra slíka. Olíklegt er að auðugir, frægir og valdamiklir kvennabósar séu allir hressir og skemmtilegir brandara- karlar. Þess vegna má gera ráð fyrir að hægt sé, a.m.k. í sérstökum til- vikum, að kaupa sér hreinlega kvenhylli. Auralausir og óþekktir kvennamenn geta hins vegar eftir sem áður huggaö sig við það, að all- ir viðmælendur HP töldu skopskyn, hressleika og riddaramennsku það eina, sem fengið gæti þær til að líta stimamjúka atvinnutælara hýru auga. Kjwbók Landsbankans-Góð bók lyrir bjarta framtlð i Landsbanki íslands Banki allra landsmanna HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.