Helgarpósturinn - 21.04.1988, Qupperneq 3
f í j J fff J « J J .< * .< ý #,* (UHfíHUMHHlMM
A
^^H^thygli hefur vakið að Kar-
vel Pálmason hefur lítt komið við
sögu á þingi upp á síðkastið og hefur
fyrir sig varamann inni, Björn
Gíslason frá Patreksfirði. Astæðan
mun vera sú að Karvel gengur ekki
heill til skógar. Samkvæmt heimild-
um HP rekja menn það til veikind-
anna, eða mistakanna sem gerð
voru á Karveli á sínum tíma í læknis-
aðgerð. Þá mun það mikla álag sem
þingmaðurinn hefur verið undir
vegna þess hve hart hann hefur
mátt sækja rétt sinn gagnvart
borgarlögmanni og bæjarfull-
trúum í Reykjavík vera farið að
segja til sín. Það er greinilega ekki
fyrir hvern sem er að standa uppi í
hárinu á yfirvöldum og ná rétti sín-
um...
Þ
eir eru til, sem ekki finnst að
lengra ætti að ganga í skattheimtu
en svo, að henni ætti að linna með
andlátinu. Einum slíkum hófsemd-
armanni brá því í brún, þegar hann
fór að skoða reikningana yfir and-
lát og jarðarför nákomins ættingja
og sá að hann yrði að standa ríkinu
skil á söluskatti af líkkistu og lík-
klæðum á 6 þúsund krónur. Allt í
lagi að leggja skemmtanaskatt á
flestar lífsnautnir, sagði hann, en að
skattleggja jarðarfarirnar finnst
mér einum um of nápínulegt — já
hreinlega nálykt af því...
||XFERDW
GÆÐI OG GLÆSILEIKI
OPIÐ LAUGARDAGA FRA KL. 10—16
DiRRA) )]•)].])
AUSTURSTRÆTI 14 • SU2345
BAUMLER
HEIMSINS BeSTA VCRBI
NÝKOMIN SENDING
AF SÉRLEGA VÖNDUÐUM
TÁGA HÚSGÖGNUM
HUSGAGNAVERSLUN
Strandgötu 7-9 Akureyri, símar 96-21790 og 21690.
HELGARPÓSTURINN 3