Helgarpósturinn - 21.04.1988, Side 24
UM HELGINA
Nú er sumarið að koma, sam-
kvæmt almanakinu, en úti skín sólin
í blekkingarleik — villir mönnum sýn
og telur þeim trú um að sér fylgi
þessi hiti sem íslendingar hafa alla
tíð og alltaf verið sjúkir í og veikir fy r-
ir. í raun og veru er nepja, kaldur
gjóstur og gróöurinn löngu búinn að
gefa upp alla von um að hann teygi
anga sína til himins i takt við alman-
akiö. Á sumardaginn fyrsta býður
Stöð-2 upp á tvær kvikmyndir sem
vert er að gefa gaum. Annars vegar
er það myndin A Star Is Bom með
þeim Kris Kristofferson og Barböru
Streisand í aðalhlutverkum. Myndin
fjallar um skemmtara sem er á niður-
leið meðan ástkona hans er á upp-
leið og eins og allir vita skapar það
alltaf „dilemma" í samböndum. Hin
myndin sem vert er að nefna er grín-
mynd og sem slik næstum geðveik-
islega fyndin. Blazing Saddles eftir
Mel Brooks. Eins og venjulega leitar
Brooks í kvikmyndahefðina sem
hann dregur síðan sundur og saman
í háði, þarna eru það vestrarnir sem
fá fyrir ferðina. Um leið gerir Brooks
grin að því hvernig kvikmynd verður
til, blekkingum kvikmyndavélarinnar
og sviðsmyndanna. Stjörnumyndin
er á dagskrá upp úr 10.00 en hin strax
á eftir. Á sunnudaginn, um miðjan
dag reyndar, er á dagskrá stöðvar-
innar ein af skemmtilegri ævintýra-
myndum síðari tíma, nefnilega Leit-
in aö týndu örkinni (Raiders of the
Lost Ark) eftirSteven Spielberg með
Harrison Ford íaöalhlutverki. Sýning
myndarinnar hefst tiu mínútum fyrir
klukkan þrjú. Svo má að lokum
minna á Leiðara Jóns Óttars Ragn-
arssonar, sem verður á dagskrá á
mánudagskvöldiö rétt fyrir 21.00.
Ekki er enn Ijóst um hvað Jón ætlar
að fjalla, vonandi verður það vit-
rænna en síðast...
Þá vindum við okkur yfir í hina
sjónvarpsstöðina, Ríkisútvarpið
sjónvarp. Þar er afskaplega fátt um
fína drætti. Á sumardaginn fyrsta er
reyndar athygliverður sænskur þátt-
ur um persónunjósnir og hefst hann
kl. 22.30. Þessi þáttur fjallar um það
hvernig yfirvöld í Svíþjóð njósna um
fjölda einstaklinga þar í landi, hafa
gert það í mörg ár í einstaka tilfellum
eftir því sem segir í kynningu á þætt-
inum. Á föstudagskvöldið er loka-
þáttur spurningakeppni framhalds-
skólanna á dagskrá kl. 21.15 og bíó-
mynd kvöldsins er hvorki meira né
minna en hálfrar aldar gömul, heitir
Destry skakkar ieikinn. Með aöal-
hlutverkin fara heimsfrægir leikarar,
James Stewart og þýska þokkagyðj-
an Marlene Dietrich. Þetta er vestri
og fjallar um lögreglustjóra sem er
leiöur á því hvað vondu kallarnir í
smábænum eru rosalega vondir og
ákveður að uppræta þá með marg-
hleypuna að vopni. Það kannast
enginn við þennan þráð er það? Á
laugardagskvöldiö er hins vegar
boðiö upp á mun nýrri mynd, aðeins
tveggja ára gamla, Siöasta sakra-
mentið heitir hún og er sakamála-
mynd. Eftir lýsingunni að dæma er
hún spennandi, enda er hún bresk
og þeir eru snjallir á þvi sviði. Sýning
myndarinnar hefst laust fyrir hálf-
tólf. Á sunnudaginn munu síðan
sparkaðdáendur sitja límdir við skjá-
inn þegar enska knattspyrnan er á
dagskrá. Sýndur verður i beinni út-
sendingu, sem hefst klukkan 14.00,
úrslitaleikur um enska deildarbikar-
inn. Arsenal og Luton leika. Bjarni
Fel. lýsir því miður en hann stenst
engan veginn ensku þulunum snún-
ing enda voru það Ijótu mistökin að
banna að þeir mættu lýsa leikjunum
í íslensku sjónvarpi. Eins og fólk
haldi athygli að hinum talaða texta
þegar knattleikurinn er annars vegar.
Sjónvarpinu öllu lokið.
Yfir i hljóðvarpið og þá það í eigu
ríkisins. Á laugardaginn er á dagskrá
rásar eitt leikritiö Jekyll læknir og
herra Hyde eftir Robert Louis Stev-
enson í leikgerð Jill Brooke Leíkstjóri
er Karl Ágúst Úlfsson en Arnar Jóns-
Helgi og Sigurður
sýna í nýju
safni í Malmö
opna eitt stœrsta einkasafn Európu,
Rooseum-safniö
BfÓ
O farðu ekki * sæmileg ★★ góð ★★★ ágæt ★★★★!
Regnboginn Síðasti keisarinn (The Last Emperor) ★★★★ Bless krakkar (Au revoir les enfants) ★★★ Hættuleg kynni (Fatal Attraction) ★★★ Brennandi hjörtu (Flamberede hjerter) ★★ Kínverska stúlkan (China Girl) ★
Bíóhöllin Spaceball ★★★ Þrír menn og bam (Three Men and a Baby) ★★ Nútímastefnumót (Can't Buy Me Love) ★
Bíóborgin Fullt tungl (Moonstruck) ★★★ Nuts ★★
Wall Street ★★
Stjörnubió Skólastjórinn (The Principal) ★ Einhver til að gæta mín (Someone To Watch Over Me) ★★
Laugarásbíó Hróp á frelsi (Cry Freedom) ★★★★ Trúfélagið (The Believers) ★★
Háskólabíó Stórborgin (The Big Town) ★
son fer með hlutverk þessa sér-
kennilega karakters sem klofnar, sál-
rænt séð, i tvennt. Flutningur leik-
ritsins hefst kl. 16.30. Skömmu áður
en leikritið hefst, rétt fyrir klukkan
eitt, er rétt að stilia á rós 2 — þar er
á ferðinni þátturinn Léttir kettir í
umsjá Jóns Ólafssonar. Jón fer ekki
troönar slóðir, hreint ekki, gluggar i
heimilisfræðin, hver andsk... sem
þaö er. Á sunnudaginn klukkan 13.30
er á dagskrá rásar eitt þáttur um
þýska skáldið Rilke í umsjá Kristjáns
Árnasonar, en hann er endurfluttur
frá 1985. Og méiri bókmenntir taka
síðan við klukkan 18.00 þegar
Ástráður Eysteinsson sér um þátt-
inn Örkina, sem fjallar um erlendar
nútímabókmenntir. Eru þetta oftast
nær hinir fróðlegustu þættir og bók-
menntaáhugamönnum hér með á
hann bent séu þeir ekki fyrir löngu
orðnir kunnugir tilvist hans. Á rás 2 á
sunnudaginn er þáttur sem hefst
klukkan 17.00 og er í umsjá Kristjáns
Sigurjónssonar. Þessi þáttur heitir
Tengja, og fyrir áhugamenn um svo-
lítið öðruvísi popp og aðra flytjendur
en óma og hljóma hversdags er
þetta kjöriö tækifæri til að víkka að-
einssjóndeildarhringinn. Eitt augna-
blik er rétt að hoppa yfir á Bylgjuna
og benda þar á lágfreyðandi sápu-
óperu Bylgjunnar. Hún er á dagskrá
á miðvikudagskvöldum, endurtekin
í hádeginu á þriðjudögum. Það er
auðvitað Þorsteinn J. Vilhjálmsson
sem hefur haft veg og vanda af gerð
þessarar sápuóperu og eftir þvi sem
frést hefur er þar talað öllum tung-
um, eða a.m.k. nokkrum. Ekki meira
útvarp.
Leikhús. Það er allt vaðandi í frum-
sýningum um þessar mundir. Eða
eins og þaö getur verið vaðandi á ís-
landi. I gærkvöldi, miðvikudags-
kvöld, frumsýndi Pars pro toto
dansleikverkið ...en andinn er veikur
í Hlaðvarpanum. Næstu sýningar
verða svo í kvöld, fimmtudagskvöld,
og sunnudagskvöldið og hefjast
klukkan 21.00. Kvöldið eftirfrumsýn-
ir Þjóöleikhúsið á Stóra sviðinu Lyg-
arann eftir Carlo Goldoni. Leikhús-
inu hefur borist styrkur frá stigvéla-
landinu viö uppsetninguna, því leik-
stjóri og sviðsmyndarhönnuður eru
ítalskir. Næstu sýningar á Lygaran-
um eru á sunnudags- og þriðjudags-
kvöld. Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir svo Hamlet á sunnudags-
kvöldið í leikstjórn Kjartans Ragnars-
sonar. Önnur sýning á Hamlet verð-
ur á þriöjudagskvöld. Þetta er þó
ekki eina frumsýningin sem veröur á
sunnudagskvöldiö því á Hótef ís-
landi sýnir Gríniðjan hf. gamanleik-
inn N.Ó.R.D. Eða þetta er væntan-
lega gamanleikur en ekki vitað
hverrar geröar hann er. Næstu sýn-
ingar á þessu fyrirbrigði eru á mánu-
dags- og þriðjudagskvöldið og hefj-
ast klukkan 21.00.
Annað sem vert er að minna á í
leikhúsunum er til að mynda barna-
sýningarnar, annars vegar Sæta-
brauðskarlinn sem sýndur er i Fé-
lagsheimili Kópavogs. Á sunnudag-
inn klukkan 15.00 er síðasta sýning á
leikritinu. Hin barnasýningin sem er
i gangi er hjá Leikfélagi Hafnarfjarð-
ar, en það félag sýnir, við gríðarlegar
vinsældir, Emil í Kattholti. Næstu
sýningar eru á laugardag og sunnu-
dag en uppselt er á þær báðar og að
auki uppselt á sunnudaginn eftir
viku. Hugleikur er enn að sýna Hið
dularfulla hvarf á Galdra-loftinu í
Hafnarstræti, sýning á þessum
rammíslenska gamanleik er t.d. í
kvöld, og Gránufjelagið sýnir eins
og kunnugt er á Laugavegi 32b
Endatafl eftir Beckett, einkar vönd-
uð sýning sem full ástæða er til að
vekja athygli á og hvetja fólk til að
sjá.
Þá er það myndlistin. Valgerður
Bergsdóttir sýnir í Gallerí Svörtu á
hvítu. Ásta Guðrún Eyvindardóttir
er í Hafnargalleríi, en þar sem það
gallerí er rekið í tengslum við versl-
un, bókaverslun Snæbjarnar reynd-
ar, verður hún lokuð þegar djöf...
verslunarmannaverkfallið skellur á.
Opnuð hins vegar aftur þegar því
lýkur. Björg Þorsteinsdóttir er í
Norræna húsinu. Á Kjarvalsstööum
er verið að opna alls fjórar sýningar
um helgina. Fyrsta skal þar fræga
telja franska grafíksýningu úr hinu
svokallaða Sorlier-safni. Þessi sýn-
ing er hingað komin fyrir milligöngu
franska sendiráðsins og þarna er
stiklaö á stóru í sögu steinprentsins
í franskri 20. aldar myndlist, en Sorli-
er þessi fann einmitt upp tækni sem
nota má við steinprent. Sýningin
kemur frá frönsku safni sem heitir
Musée des Sables d'olonne, en
þangað gaf Sorlier myndir þær sem
hann hafði eignast á ferlinum. Þarna
eru til sýnis verk eftir marga heims-
þekkta myndlistarmenn. Önnursýn-
ing, sömuleiðis erlend, er komin
hingaö frá Svíþjóð fyrir milligöngu
sænska sendiráðsins og það er yfir-
litssýning yfir sænskan textíl frá
aldamótum til okkar tíma. Þessi sýn-
ing er samtímis í Listasafni ASÍ og
Glugganum á Akureyri. Hinar tvær
sýningarnar sem opnaðar verða á
laugardaginn á Kjarvaisstöðum eru
annars vegar í Kjarvalssalnum, sam-
sýning fjögurra ungra myndlistar-
manna, Svanborgar Mattíasdóttur,
Söru Vilbergsdóttur, Guðbjargar
Jónsdóttur og Leifs Vilhelmssonar.
Hins vegar er það sýning á olíumál-
verkum og vatnslitamyndum eftir
tékkneskan listamann, Rastislav
Michal. Allar þessar sýningar standa
til 8. maí.
íslenska hljómsveitin heldur tón-
leika í Bústaðakirkju á laugardag 23.
apríl kl. 14.00. Þar veröur frumflutt
tónverkið Sturla eftir Atla Heimi
Sveinsson viö samnefnt frumort
Ijóð Matthíasar Jóhannessen.
Stjórnandi er Guömundur Emilsson.
Á sumardaginn fyrsta heldur Sin-
fóníuhljómsveit íslands svokallaöa
fjölskyldutónleika. Þeir hefjast klukk-
an 15.00. Þetta eru fjölskyldutónleik-
ar í tvennum skilningi. Það er að
segia efnisskráin er tiltölulega af létt-
ari gerðinni og ætti því að höfða til
margra. Hitt er að á tónleikunum
spilar eitt stykki fjölskylda. Fimm
manns í það heila, hjónin Ketill og
Úrsúla Ingólfsson, bæði píanóleikar-
ar, og svo dætur þeirra þrjár, Bera,
Mirjam og Judith — 12,13 og 14 ára
gamlar, sú yngsta leikur á hörpu,
næsta á selló og elsta á fiölu. Þær
hafa allar leikið á hljóðfæri frá
tveggja ára aldri, stunda nám í
Bandaríkjunum þar sem þæreru bú-
settar.
Sumardagurinn fyrsti klukkan 15.00.
/ lok aprí! verdur í Malmö í Sví-
þjód oprtad safn sem ber nafnid
Rooseum. Safnid heitir eftir eiganda
þess, Fredrik Roos, en ad öllum
líkindum á hann eitt stœrsta og
besta einkasafn málverka í Evrópu.
Forríkur náungi sem hefur byggt
grídarmikid safnahás yfir verk sín.
Vid opnunina verdur mikil sýning,
fimm listamönnum hefur veriö út-
hlutaö gríöarlegu sýningarplássi
hverjum um sig. Tveir þeirra eru fs-
lendingar, Helgi Þorgils Friöjónsson
ogSiguröur Guömundsson. HPsló á
þráöinn til Helga og spuröi hann lít-
illega út í fyrirbrigöiö.
„Svíar segja mér að Roos þessi
eigi eitt besta einkasafn af myndlist
sem til er í Evrópu. Ég veit í sjálfu
sér ekki hvort það er rétt. Hann á
mikið af Norðurlandalist og svo líka
mikið af þessum stóru alþjóðlegu
nöfnum."
— Er þetta maður sem kaupir
verk viðurkenndra listamanna eða
veðjar hann á óþekkt nöfn?
„Það er bæði og. Hann er t.d. með
menn á launum við að skoða sýn-
ingar um allar trissur og síðan gefa
þeir honum ábendingar. Hann hef-
ur hins vegar alltaf síðasta orðið
sjálfur."
— Hvernig stendur á veru ykkar
Sigurðar á þessari opnunarsýningu?
„Ég held að það sé vegna þess að
honum líkar við okkar verk, a.m.k.
veit ég að það er tiifellið með mín
verk. Hann hefur keypt fleiri þeirra
en nokkur annar og ég býst við að
hann eigi líka mikið af verkum eftir
Sigurð og hina þrjá sem verða á sýn-
ingunni."
— Er langt síðan Roos kynntist
þínum verkum?
„Ég eiginlega veit ekki nákvæm-
lega hvenær hann sá þau fyrst, en
elstu verkin sem hann á eftir mig
eru frá ’82.“
— Fyrir þá sem eiga leið um Svía-
ríki í sumar, hvenær verður sýning-
in opnuð?
„Hún verður opnuð 27. maí og
mér skilst að safnið eigi aðeins að
vera opið yfir sumartímann, fimm
mánuði á ári, og þessi sýning verður
þarna uppi í allt sumar."
KK
Helgi Þorgils og Sigurður Guðmundsson munu ásamt þremur öðrum Noröur
landabúum sýna verk sín við formlega opnun Rooseum-safnsins í Malmö.
24 HELGARPÓSTURINN