Helgarpósturinn - 21.04.1988, Síða 39
FRETTAPOSTUR
Verkfail verslunarmanna
Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur fellt í
atkvæðagreiðslu nýgerða kjarasamninga félagsins
við atvinnurekendur. Trúnaðarráð félagsins, sem
kom saman er þessi úrslit lágu ljós fyrir, ákvað að
fresta verkfalli sem hef jast átti í stórmörkuðum og
matvöruverslunum á fimmtudaginn síðasta en
boða í þess stað til allsherjarverkfalls meðal félags-
manna VR. Verkfallið kemur til framkvæmda á
föstudaginn og mun hafa víðtæk áhrif. Fyrir utan
það að verslanir verða lokaðar að miklu leyti lam-
ast öll almenn skrifstofuvinna í borginni svo og
flug til Reykjavikur og frá. Verslunarmannafélag
Suðurnesja hefur einnig fellt nýgerða kjarasamn-
inga með yfirgnæfandi meirihluta og heimilað
stjórn og trúnaðarráði að boða til verkfalls. Fjöldi
annarra verslunarmannafélaga hefur einnig fellt
samningana og ihugar verkfallsboðun. Þunglega
horfir um nýja samninga og fólk hefur hamstrað
matvörur úr verslunum. Muna elstu verslunar-
menn vart annað eins kauþæði.
Bjórinn
Bjórfrumvarpið var samþykkt eftir þriðju um-
ræðu í neðri deild Alþingis og vísað til efri deildar.
Allar breytingatillögur utan ein voru felldar. Mest
spenna ríkti þegar greidd voru atkvæði um hvort
efna ætti til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið og
tvístruðust þar fylkingar bjórsinna og bjórand-
stæðinga. Tillagan var felld með 19 atkvæðum gegn
18. Samþykkt hennar hefði getað sett málið í hnút
en nú eru taldar líkur á samþykkt frumvarpsins
frá Alþingi í vor.
Fréttapunktar
• í sakadómi Reykjavikur hefur verið kveðinn upp
dómur yfir 22 ára gömlum manni sem kveikti í
íbúð á Barónsstíg 25 í mai á siðasta ári. Maðurinn
var dæmdur til tveggja og hálfs árs fangavistar og
segir í dóminum að honum hefði átt að vera ljós sú
hætta sem hann stofnaði sofandi fólki i. Sakadóm-
ur hefur einnig fellt dóm í máli 39 ára gamallar
konu sem stakk sambýlismann sinn i brjóst og
háls með hnifi. Hún var dæmd í 4 ára fangelsi.
• Bankaráð Landsbanka íslands hefur ráðið tvo
aðstoðarbankastjóra til starfa. Þeir eru Jóhann
Ágústsson, framkvæmdastjóri afgreiðslusviðs, og
Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs bankans. 27 umsóknir bárust þegar stöð-
urnar voru auglýstar.
• Borgardómur hefur dæmt veitingastaðinn
Broadway til þess að greiða 26 ára gömlum manni,
er slasaðist mjög alvarlega þar, 8 milljónir króna í
bætur. Maðurinn datt aftur fyrir sig um handrið
og féll um 3,5 metra niður í stiga. Tjón mannsins
var metið á 16 milljónir en dómari skipti sök að
jöfnu milli málsaðila þar eð i veitingahúsinu hafði
verið fjarlægð upphækkun á handriðinu og mað-
urinn þótti hafa gerst sekur um gáleysi.
• Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, tók
fyrstu skóflustunguna að ráðhúsi við Tjörnina á
föstudaginn. Við það tækifæri sagði hann að sjald-
an eða aldrei hefði bygging hér á landi verið undir-
búin eins vel.
• Fyrstu þrjá mánuði ársins var 22 milljóna
rekstrarafgangur af rekstri Rikisútvarpsins, 5,2
milljóna króna hagnaður af rekstri sjónvarpsins
og 16,5 milljóna króna hagnaður af rekstri hljóð-
varpsins. Stefnt er að hallalausum rekstri á þessu
ári.
• Nú eru i undirbúningi reglur um stýringu fersk-
fiskafla inn á Bretlandsmarkað en mikið offram-
boð og lágt verð hefur verið þar undanfarið vegna
þess að íslendingar hafa mokað fiski inn á markað-
inn. Reglurnar verða settar af sjávarútvegsráðu-
neytinu í samráði við hagsmunaaðila i sjávarút-
vegi.
• Bjartsýnisverðlaun Bröstes koma í hlut rithöf-
undarins Einars Más Guðmundssonar í ár. Þetta er
i áttunda sinn sem verðlaunin eru veitt og nemur
verðlaunaféð 180 þúsund krónum. Einar Már hef-
ur sent frá sér 3 skáldsögur og 3 ljóðabækur.
• Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu frá og með 1.
september. Berglind er 33 ára gömul, lögfræðingur
að mennt og hefur starfað í utanríkisþjónustunni,
nú síðast sem sendiráðunautur í Stokkhólmi. Hún
er fyrsta konan til þess að gegna embætti ráðu-
neytisstjóra hér á landi. 9 manns sóttu um stöð-
una.
• Milljónatjón varð þegar hús Hjólbarðasólunar
Hafnarfjarðar við Drangahraun brann til kaldra
kola aðfaranótt mánudags. Vatnsskortur háði
slökkvistarfi verulega en lágur þrýstingur er á
vatni í hverfinu. Þurfti því að flytja vatn á staðinn
með tankbílum. Talið er að kviknað hafi í út frá raf-
magni.
• Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur sagt
Ingva Hrafni Jónssyni, fréttastjóra sjónvarpsins,
upp störfum. Taldi útvarpsstjóri það óhjákvæmi-
legt vegna hagsmuna stofnunarinnar og segir
ástæðuna vera röð atvika sem orðið hefðu á meðan
Ingvi gegndi störfum fréttastjóra.
• Jón H. Bergs hefur sagt starfi sinu sem forstjóri
Sláturfélags Suðurlands lausu. Ástæðan mun vera
ágreiningur um framtíðarstefnu. í framtíðinni eru
fyrirhugaðar ýmsar áherslubreytingar í rekstri
félagsins.
• Gísli Ólafsson forstjóri sagði af sér sem banka-
ráðsmaður í Útvegsbanka íslands á fyrsta fundi
hins nýkjörna bankaráðs. Hallgrímur Snorrason
hagstofustjóri var kosinn formaður bankaráðsins.
• Haukar úr Hafnarfirði urðu á þriðjudagskvöldið
íslandsmeistarar í körfuknattleik karla er þeir
sigruðu Njarðvíkinga í æsispennandi, tvifram-
lengdum úrslitaleik með 92 stigum gegn 91. Þetta
er í fyrsta skipti sem Hafnfirðingar vinna íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik.
EFNAGERÐIN
KJÖRLAND HF. FLÓRA
ninif
HÖFUM OPNAÐ
SÖLU- OG
DREIFINGARMIÐSTÖÐ
Vöruborg hf. hefur opnað sölu- og
dreifingarmiðstöð að Smiðjuvegi 11 a í
Kópavogi. Kappkostum að veita snögga
og góða afgreiðslu ö um 220 vörutegund-
um. Margar af okkar vörum eru œttaðar
að norðan og mö þar nefna:
Braga kaffi og fleira frö Kaffibrennslu
Akureyrar hf.
Flóru smjörlfki frö Smjörlfkisgerð KEA.
Niðursuðuvörur frö K. Jónsson og Co. hf.
Kjöt frö Kjötiðnaðarstöð KEA.
Fransman kartöflur frö Kjörlandl hf.
Allar vörur frö Efnagerðinni Flóru.
Fiskur frö Fiskilandi.
Rœkjur frd Söltunarfélagl Dalvíkur hf.
Blanda frö Akva sf.
Plastvörur frá Akoplast.
Vonumst eftlr ánœgjulegum viðskiptum
við sem flesta.
VÖRUBORG - BORG f BÆNUM
HELGARPÓSTURINN 39