Morgunblaðið - 14.05.1964, Blaðsíða 16
10
MORCUNBLAÐIÐ
Mmmtudagur 14. maí 1964
fHtrip$uMí^í§i
Útgefandi:
Kramkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar ög afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22430.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HUSNÆDISMÁL OG
VERÐBÖLGA
CHjórnmálaumræðurnar snú-
^ ast nú mjög um stöðvun
verðbólgunnar, og er það vel
farið, því að sannarlega er
nauðsynlegt að snúast gegn
þeim vágest og kveða niður
vxxlhækkanir kaupgjalds og
verðlags.
í útvarpsumræðunum sl.
mánudags- og þriðjudags-
‘‘kvöld var einnig allmikið rætt
um húsnæðismálin og lánveit-
ingar til húsbyggjenda, án
þess þó að því væri nægur
gaumur gefinn, að skortur á
lánsfé til íbúðabygginga er
einnig afleiðing verðbólgu-
þróunarinnar.
Fyrir einum áratug hafði
sem kunnugt er náðst sæmi-
legt jafnvægi í íslenzlcum
efnahagsmálum og afleiðingin
af því var sú, að þáv. ríkis-
stjórn, sem var samsteypu-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins, gat
tryggt stóraukið lánsfé til
íbúðabygginga og lánaði mán-
aðarlega úr hinu svonefnda
almenna veðlánakerfi nærri
9 milljónir króna.
En ný verðbólguþróun var
þá að hefjast í kjölfar verk-
fallanna miklu 1955, og á tím-
um vinstri stjórnarinnar má
segja, að húsnæðislánakerfið
allt hryndi til grunna og lán-
veitingar urðu þá að meðal-
tali á mánuði 3,9 millj. í stað
8,7 milljóna áður, þrátt fyrir
stórhækkaðan byggingarkostn
að.
í kjölfar viðreisnarráðstaf-
ananna skapaðist á ný tæki-
færi til þess að treysta lána-
sjóðí þá, sem aðstoða eiga hús
byggjendur, og svo leit út fyr-
ir 1—2 árum sem takast
,mundi að lána öllum þeim,
sem sóttu um til húsnæðis-
málastjórnar áskilin lán —
allt að 150 þús. kr. út á hverja
íbúð. Ef þetta hefði tekizt
hefði bráðlega verið hægt að
hækka lánin og styrkja þetta
kerfi.
En á síðasta ári fór þetta úr
böndunum, eins og svo margt
annað, vegna hinna miklu
kauphækkana, sem knúðar
voru fram. Af því stafa vand-
ræði þau, sem húsbyggjendur
eiga nú við að glíma.
Af þessu sést, hve fráleitar
*' eru kenningar, sem einstakir
ménn hafa innprentað sjálf-
um sér, að þeir græddu á verð
bólgu, þar sem þeir hefðu fest
fé í íbúðarbyggingum og
skulduðu þess vegna veru-
lega. Sannleikurinn. er auð-
vitað sá, að þetta fé verður
almenningur að borga — og
ekki sizt ienda erfiðleikarnir
á húsbyggjendum, sem ekki
fá jafn góð og mikil lán og
ella hefði verið. Verðbólgu-
þróunin er því bölvaldur hús-
byggjenda eins og annarra.
MIKIÐ BYGGT
í REYKJAVÍK
C*tjórnarandstæðingar halda
^ því stundum fram, að
alltof lítið sé byggt af íbúðum
í höfuðborginni. Sannleikur-
inn er samt sá, að engin leið
hefur verið að byggja meira
að undanförnu en raun hefur
á orðið, einfaldlega vegna þess
að meira vinnuafl hefur ekki
verið til.
Þess er einnig vert að geta,
að hér í Reykjavík hefur á síð
ustu árum verið byggt miklu
meira en svarar til íólksfjölg-
unar. Samt er það rétt að hús-
næðisvandræði eru í höfuð-
borginni, eins og lengst af hef
ur verið hér — og raunar má
segja að sé alþjóðlegt fyrir-
bæri í borgum í vexti.
Astæðan til húsnæðisvand-
ræða, þrátt fyrir það að meira
er byggt en svarar til fólks-
fjölgunar, er auðvitað sú, að
menn nota nú meira íbúðar-
húsnæði en áður. Þeir, sem
áður leigðu frá sér hluta hús-
næðis síns, taka það til eigin
nota með batnandi afkomu o.
s. frv.
En þegar húsnæðisvand-
ræði eru og erfiðleikar
við útvegun lánsf jár til íbúða-
bygginga, er eðlilegt, að um
þetta vandamál sé rætt, og
ánægjulegt er, að það er nú
vaxandi skilningur á því, að
verðbólguna verður að stöðva
til þess að treysta lánasjóðina.
REYNSLA AF
VINSTRI
STJÓRNINNI
T^egar rætt er um húsnæðis-
* málin og árásir þær, sem
stjórnarandstæðingar gera á
Viðreisnarstjórnina, vegna
þess að henni hefur ekki tek-
izt að fullnægja lánaþörf hús-
byggjenda, verður ekki hjá
því komizt að minna á reynsl-
una af vinstri stjórninni í
þessu sambandi.
Mánaðarlegar lánveitingar
minnkuðu til húsbyggjenda
úr 8,7 miilj. í 3,9 millj. að
meðaltali á tímum vinstri
stjórnarinnar. Þar að auki
voru meðallán út á íbúð fyrir
viristri stjórn 55 þús. kr., en á
Profumo vinnur aö líknarstörfum
Profumo og írú.
I»EIR, sem mest komu við
sögu í Profumo-hneykslis-
málinu svonefnda í Bretlandi
s.l. sumar eru nú horfnir úr
sviðsljósinu. Fyrir skömmu
skýrðu blöðin }>ó frá því að
John Profumo, fyrrv. hermála
ráðherra, ynni nú að líknar-
starfsemi í fátækrahverfi
JL.undúna, Christine Keeler
saumar póstpoka í fangelsinu,
Mandy Rice-Davies syngi í
næturklúbbum á meginlandi
Evrópu og ívanoff, fyrrv.
flotamálaráðunautur sendi-
ráðs Sovétrikjanna, hefði
verið sýknaður af herrétti.
Herrétturinn kvað upp þann
úrskurð, að ívanoff hefði átt
vingott við Keeler samkvæmt
fyrirskipunum yfirmanna
sinna.
★
f»að var fyrir rúmum mán
uði, sem John D. ProiÉuimo
hringdi til Walters Birming
ham, forstöðumanns lílcnar
stofnunarinnar Toynbee Hatl
í fátækrahverfi Lundúna, og
spurði hvort þar væri nokkuð
að starfa fyrir hann.
„Kondu hingað. Við skul-
um ræða saman“, sagðist
Birmingham hafa sagt og
bætti við, er frttamaður
„The New York Teirnes"
ræddi við hann. „Ég er altltaf
þakklátur, þegar mér bjóðast
starfsmenn með hæfileika
Profumos."
„Profumo kemur hingað
fllesta daga vikunnar,“ hélt
Birmingham áfram, „hann er
að kynna sér starfseroina og
ég lít á hann sem sérlegan að-
stoðarmann minn, en sáðar
mun hann sennilega taka að
sér umsjón trieð einhverri sér
stakri grein líknarstarfsem-
innar.“
Profumo vinnur kauplaust
í Toynbee Hall, en það kem.ur
ekki að sök fyrir hann því
að hann er mjög vel efnaður
Hann og kona hans, leikkon
an Valerie Hobson, búa í sbóru
húsi á einum fegursta stað
Lundúna,
★
Svo vikið sé að Christine
Keeler, gleðikonunni, sem
kostaði Profumo ráðherraem-
bættið, þá situr hún í fang-
elsi. Það var í ha-ust, sem ung
frúin var handtekin og dærod
í níu mánaða fangelsi fyrir
meinsæri í máli eins elsk-
huga síns, Jamaikabúans
Keeler
saumar
póstpoka
Keeler
„Luey’* Gordon. Christine
hefur hagað sér mjög vel í
fangelsinu og unnið baki
brotnu við að sauma póst-
poka. Talið er að henni verði
sleppt í byrjun næsta mánað-
ar vegna góðrar hegðunar
en þá hefur hún aðeins setið
inni í sex mánuði.
Vinkona Christine Keeler,
Mandy Rice Davies, sem
kvaðst æbla að verða önnur
„Lady Hamilton”, syngur nú
á næturklúbbuim í V.-Þýzka-
landi og Frakklandi. Hún trú
lofaðist nýlega greifa einuim,
en sá ljóður er á ráði hans,
að hann er kvæntur og hefur
ekki einu sinni látið sér
detta í hug að sækja um skéln
að. En Mandy líkar vel að
skemmta á næturklúbbunum
og stórfé græddi hún á endur
minningum sínum, sem komu
út um áramótin.
★
Af aðalpersónum Profumo-
málsins hefur minnst verið
ræbt um sovézka flotamála-
ráðunautinn Eugen ívanaff,
enda var hann kallaður heim
til Sovétríkjanna skömmu
áður en hneykslimátið komst
í hámæli. Fregnir hermdu, að
hann hefði verið lokaður inoi
á geðveikrahæli, en síðar
voru þær bornar til baka og
haft eftir áreiðanlegum heim
ildum, að ívanoff hefði verið
rekinn úr flotanum og laun
hans lækkuð um helming með
an rannsókn stóð í máli hans
Þann bíma var hann skipstjóri
á listisnekkju á Kaspíahafi.
Fyrir skömrou kvað her-
réttur í Leningrad upp úr-
skurð í máli ívanoffs og var
hann sýknaður af ákærum
varðandi Profumo-málið. í úr
skurði réttarins segir m.a. að ■
ívanoff hafi fengið fyrirsikip
un um að eiga vingott við
Christine Keeler og yfirmenn
hans hafi vitað um samband
þeirra. Talið er að með aðstoð
Keeler og vinar hennar Step
hens Wards, hafi ívanoff átt
að reyna að kynnast brezkum
ráðherrum og heldri mönn-
um. Rétturinn í Leningrad
slær þvi föstu, að ívaiwyff
hafi ekki varpað skugga á
heiður Sovétríkjanna með
framferði sínu í London
ívanoff hefur nú aftur tekið
við stöðu sinni í flotanum og
verið á ný sæmdur heiðurs-
merki, sem bekið var af hon-
Ur féll í máli hans stvbti hann
London.
ívanoff
sýknaður
af herrétti
tímum vinstri stjórnarinnar
aðeins 36 þús. kr.
Byggingarkostnaður 100 fer
metra íbúðar hækkaði á tím-
um vinstri stjórnarinnar úr
280 þús. kr. í 375 þús. kr. Af
þessu öllu leiddi minnkandi
byggingarframkvæmdir, en í-
búðarframkvæmdir höfðu
stóraukizt árin áður en vinstri
stjórnin tók við völdum.
Árið 1954 var byrjað á 596
íbúðum umfram þær, sem lok
ið var, árið 1955: 922 og 1956:
335 íbúðum. En árið 1957 var
svo komið, að byrjað var á
færri íbúðum en árið á undan.
Tala íbúða í smíðunrx lækk-
aði jafnt og þétt á tímabili
vinstri stjórnarinnar. Það
skal játað að enn minnkuðu
byggingafraimkvæmdir nokk-
uð á fyrsta ári Viðreisnar-
stjórnarinnar, en síðan hafa
framkvæmdir aukizt eins og
kunnugt er.
Áframhaldandi verðbólgu-
þróun mundi þó vafalausí
draga úr byggingarfram-
kvæmdum á ný, og þess vegna
er brýn nauðsyn að stöðva
yíxlhækkanir kaupgjalds og
verðlags.