Morgunblaðið - 14.03.1971, Page 4
4
MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1971
1 22 0-22- I
[RAUPARÁRSTÍG 3lJ
-^—25555
-14444
WfUHÐIfí
I3ILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabi freið-VW 5 manna-VW sveínvagn
VW 9maona*Landroveí 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Biialeigan
ÞVERHOLTI 15 SÍMI15808 (10937)
Pjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleíri varahlutir
i rrsargar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 - Sími 24180
Schannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis vetðskrá.
Ö Farimagsgade 42
Köbenhavn Ö
J0H\S - VIAIUILLE
glerullareinangmnin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareínangrunina
með álpappírnum, enda eitt
bezta einangrunarefnið og
jafnframt það langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4" J-M
glerull og 3" frauðplasteinangr-
un og fáið auk þess álpappir
með. Jafnvel flugfragt borgar
sig. Sendum um land allt —
Jón Loftsson hf.
@ Til Benedikts frá Hof-
teigi frá Jóni frænda:
Betra er vothey en
þurrhey
„Sæll, Benedikt, frændi
minn!
Ég .vil byrja á að þakka þér
öll þín fræðistörf. Þá vil ég
þakka þér fyrir framtak þitt,
er þú bendir bændum á nýjar
leiðir og möguleika við þurrk-
un á heyi. Fleira mætti þakka
þér, en ég sleppi því og sný
mér að óánægju minni.
Þú segir í viðtali við Morg-
unbiaðið nýlega, að súrhey sé
ónotandi vegna vondrar lykt-
ar, sem sé af því.
Ég verka allt mitt gras í vot-
hey, og ég held, að þú vitir
hvernig ég fer að því.
Veturinn ’69—'70 komu marg
ir í hlöðuna til mín, og voru
allir sammála um, að þar væri
engin vond lykt.
® Engin styhba íannst
af Jóni
Ég gerði það að gamni mínu
tvisvar sinnum að sitja æði-
tima á brikinni í heyinu, án
hlífðarfata, þegar ég var bú-
inn að taka heyið og gefa grip
um mínum. Fór siðan í jeppann
og ók inn 1 kaupstað og fór í
fín hús í fötunum, sem ég var
í í hlöðunni. Ég settist inn í
stofu og sat þar, í annað skipt-
ið í einn klukkutíma, en í hitt
skiptið í tvo tíma. Ég spurði
fólkið á heimilinu, hvort það
fyndi súrheyslykt af mér og
bað það að segja mér, eins og
væri, en enginn sagðist géta
fundið neina slíka lykt af mér.
Ég endurtek þakkir mínar
til þín fyrir framtak þitt, en
ég er jafnviss um, að þín að-
ferð á enga framtið í íslenzk-
um landbúnaði, eins og ég er
alveg viss um, að min aðferð
er framtíðar heyverkunarað
ferð íslendinga.
Lítum á vinnustundir við
heyskapinn.
Lítum á kostnaðinn.
Lítum á fóðurgildi.
Lítum á allt véladraslið, sem
þinni aðferð fylgir.
0 Fáránleg uppfinning
Nei, Benedikt, hér er ekki
um samanburð að ræða, heldur
hitt, að þín aðferð tröllriður
efnahagi bænda, en mín aðferð
gefur þeim möguleika á áð
verða ríkir, en þeir geta þó
framleitt búvöru, sem neytend
ur hafa efni á að kaupa.
Að síðustu þakka ég þér fyr
ir að leiða það i ljós, að. heý-
þurrkun er gamaldags aðferð
og óhugsandi, nema með þinni
fáránlegu uppfinningu, og því
er ekkert annað, sem kemur til
greina en vothey.
Með frænda- og vinarkveðju.
<Ión tjlfarsson,
Eyri, Fáskrúðsfirði.“
Þakkað fyrir
æskulýðsguðsþjónustu
Dr. Þórir Kr. Þórðarson,
prófessor, skrifar:
„Mig langar að koma á fram-
færi héðan úr guðfræðideild-
inni þakkarorðum til þess
Óska eftir að taka á leigu
2-3 herbergja íbúð
(helzt i Vesturborginni).
Sverrir Kristjánsson,
sagnfræðingur,
sími 11935.
unga fólks, sem stóð fyrir og,
flutti æskulýðsguðsþjónustu
í Hallgrímskirkju s.l. sunnu-
dag, og útvarpað var. Við hér
í deildinni fáumst við marg-
vísleg vísindi, sem sum hver
kynnu við fyrstu sýn að vera
æði fjarlæg vaxtarbroddum
æskunnar á vettvangi dag-
legra anna. En einmitt vegna
starfs okkar að þessum fræð-
um er okkur ljós nauðsyn
þess, að endurnýjandi og líf-
gefandi andblær fari um
kirkju þessa lands.
Það var hrífandi að heyra
hinar ungu raddir flytja lof-
gjörð og boðskap I fersku
formi og með nýstárlégum blæ
s.l. sunnudag, og var guðsþjón-
ustan öll áhrifarík. Það er ein-
kenni réttrar guðsþjónustu, að
hún verkar þannig á huginá,
að menn fyllast lofgjörð og
gleði, jafnframt því sem þeir
finna til neyðar heimsins, já
okkar allra.
Ég hefi ekki um þetta fleiri
orð, en þakka þessu unga fólki
fyrir það fyrirheit, sem það
vírðist gefa framtið landsins
okkar og æskufólksins.
Virðingarfyllst,
Þórir Kr. Þórðarson.“
@ Þetta er verk aldraða
fólksins
Séra Jón Tliorarensen
skrifar:
„Hr. Velvakandi!
Rabbgrein Styrmis Gunnars-
sonar i Lesbók Morgunblaðs-
ins 31. janúar s.l. var bæði
merkileg og vel skrifuð. Það
voru svo góð orð í tíma töluð,
að helzt þyrfti að prenta
greinina aftur í blaðinu.
Hann talaði um aðbúnað
gamla fólksins í landinu, sem
borið hefur hita og þunga dags
ins frá aldamótum, stritað und-
anfarna áratugi og breytt
þjóðarhag úr fátækt og basli
í þau lífskjör, sem jafnast á
við hið bezta i veröldinni, og
svo spyr greinarhöfundur, og
tek ég með leyfi hér upp kafla
úr grein hans:
0 En hvernig búum við
að því?
„En hvernig búum við að þvi
fólki, sem þetta hefur gert?
Til er fólk og kátm&ld býsna
stór hópur, sem hefur ekkert
að lifa af annað en ellilaun-
in. —
Það hlýtur að vérá eitthvað
bogið við þjóðfélag, sem okíkar,
sem nú á dögum telur sig ekki
geta tryggt öldruðu fólki
áhyggjuláusa elli. Á sama tíma
ög gamla fólkið fær 4.900 kr.
í ellilaun á mánuði eru greidd-
ar stórar fjárfúlgur í formi
fjölskyldubóta til fólks á bezta
aldri.
Ég legg til, að þessu fráleita
fyrirkomulagi verði breytt.
Fjölskyldubætur til þeirra,
sem þessa þurfa með, en mis-
munurinn, gangi til þess að
hækka ellilaunin.“
Þetta eru orð, sem ekki er
er hægt að gleyma. Ég þekki
dæmi, þar sem gamalt fólk
kvíðir hverjum nýjum degi
vegna bláberustu lífsnauð-
synja.
Ég þekkti verkamann hér
í borg. Hann var mikill starfs-
maður og heilsugóður en fá-
tækur alla ævi. Á seinustu
æviárum hans voru launin orð-
in aðeins skárri en vinna mik-
il, svo að afkoma hans mátti
teljast svona sæmileg. En hann
var skattlagður miskunnar-
laust alveg fram í andlátið,
87 ára gamall.
Það ætfcu að vera tak-
mörk fyrir því, hve lengi fólk
er skattlagt fram eftir ævi, þar
sem eignir eru engar, bláber
ellistyrkurinn einn, og allir
vita, hve illa hefur verið
farið með sparifé þeirra, sem
hafa ætlað sér að nota það. á
elliárum.
Þá má geta þess, að Skúli
Jóhannesson skrifaði gréin,
sem birtist hjá Velvakanda 7.
febrúar s.l. um fjölskyldubæt-
ur og ellilaun. Það var ágæt
grein, þar sem hann vitnaði til
hinna ágætu orða Styrmis
Gunnarssonar. —
Og að lokum: Er nokkur al-
þingismaður, sem treystir sér
til þess að lifa af kr. 4900 á
mánuði, þótt hann fái að auki
ferðir og risnu greiddar?
Nú líður að kosningum, og
er það von allra, að alþingis-
mönnum farist vel við þá öldr-
uðu. Jón Thorarensen.“
77/ sö/u
2ja herbergja Ibúð við Hlíðarveg.
3ja herbergja íbúð við Hlíðarveg
2ja herb. íbúð við Rauðarárstíg.
4ra herbergja góð jarðhæð, sérhiti, sérinngangur.
120 fm efri hæð í Austurborginni, sérhiti.
Húseign á eignarlóð í Miðborginni, með tveimur íbúðum.
170 fm einbý.ishús á einum eftirsóttasta stað í Austurborginni.
Mjög góð eign.
Um 200 fm raðhús á bezta stað i Fossvogi.
Hef kaupendur að
Einbýlishúsi eða raðhúsi, útborgun um 2 millj. kr:
4ra—5 herbergja góðri hæð, útborgun um 1 200 þús. kr.
4ra—5 herbergja hæð I Vesturboginni, útb. allt að 1.400 þús
Eignaskipti
5 herbergja hæð í Hlíðarhverfi I skiptum fyrir 3ja herb. ibúð
I Háaleitishverfi, eða þar um kring.
4ra—5 herbergja hæð á góðum stað í skiptum fyrir 3ja her-
bergja, helzt í Laugarneshverfí.
Upplýsingar aðeins í skrifstofu minni, ekki í síma.
KRISTINN EINARSSON hrl.,
Búnaðarbankahúsinu við Hlemm.
— FIAT 850 COUPÉ -
Til sölu Fiut 850 Coupé
(Fastbock) drgerð 1967
LITUR : i' Dökkgrár utan, rauður innan
Vél : Nýupptekin
DEKK : Nýleg, nagladekk að aftan
Ástand : Mjög gott
Greiðslukjör : Samkvæmt samkomulagi
Skuldabréf korha til greina
Upplýsingar í síma 3 5 7 1 4.