Morgunblaðið - 14.03.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLA£>IÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1971
11
Ráðstefna
um geð-
heilbrigðismál
FÉLAG læknanema hefur i sam
ráði við Geðverndarfélag íslands
hafið undirbúning að ráðstefnu
um geðheilbrigðismál. Upphaf-
lega var ráðgert að ráðstefnan
færi fram um næstu helgi, en
af ýmsum ástæðum reyndist
nauðsynlegt að fresta ráðstefn-
unni um nokkrar vikur. Nú hef-
ur verið ákveðið, að hún fari
fram 17.—18. april n.k.
Á ráðstefnu þessari verða teikn
ir til meðferðar ýmsir þættir geð
heilbrigðismála, m.a. ástand og
framtiðarskipan samfélagslækn-
inga (community theraphy) og
geðtruflanir hjá börnum. Fengn-
ir hafa verið sérfræðingar til
að flytja inngangserindi um
hina ýmsu málaflokka, en að
þeim loknum fara fram umræð-
ur í smærri hópum. Ráðstefnan
verður öllum opin og mun nán-
ar verða sagt frá henni í fjöl-
miðlum innan tíðar.
(Frá Félagi læknanema).
Ræningj-
ar hand-
teknir
Zurich, 11. marz AP.
SVISSNESKA lögreglan hand
tók í dag 6 manns, sem grun
aðir eru um að hafa rænt
skartgripum að verðmæti um
300 milljónum líra frá skart-
gripasala í MHanó á Italíu í
vikunni. í hótelherbergjum
hinna handteknu fundust
ferðatöskur, fullar af skart-
gripum og taldi svissneska lög
reglan að þar væri um um-
rætt þýfi að ræða. Ræningj-
arnir brutust Inn í fyrirtæk-
ið, bundu og kefluðu 6 starfs-
menn eftir að hafa neytt þá
til að taka inn svefnlyf.
Flugfélagið býður
tíðustu og fljótustu ferðirnar
með þotuflugi til
Evrópulanda og nú fara í
hönd hin vinsælu
vorfargjöld Flugfélagsins.
Við bjóðum yður um 30% afslátt af
venjulegum fargjöldum til helztu
borga Evrópu í vor með fullkomnasta
farkosti nútímans. Það borgar sig að
fljúga með Flugfélaginu.
Hvergi ódýrari fargjöld.
FLUCFELACISLANDS
ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI
II
TOPttíik
ER
TIPP-TOPP -CóbhU
FYRIR
ROLL-YOUR- OWN
REYKINGAMENN
BÚNAR TILAF REYNOLDS TOBACCO COMPANY FRAMLEIÐENDUM HINNA HEIMSFRÆGU CAMEL CIGARETTES