Morgunblaðið - 21.05.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.05.1980, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1980 17 flfanngttitlilftftifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.800.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 240 kr. eintakið. „Enga samninga í gildi“ Nú er bráðum liðið hálft ár síðan kjarasamningar félaga innan Alþýðusambands íslands voru lausir og ekki líður á löngu, þar til haldið verður upp á eins árs afmæli þess, að samningstími BSRB rann út. í forystu fyrir þessum samtökum eru þó enn þeir menn, sem á sínum tíma börðust fyrir „samningunum í gildi“ og nú eru við völd í ríkisstjórn þeir stjórnmálamenn, sem komust upphaflega til valda með því að beita fyrir sig þessu kjörorði. Reynsla undanfarinna mánaða bendir til þess, að orðhagir menn í þessu liði verði að smíða nýtt kjörorð, því að formaður BSRB upplýsir alþjóð nú um það, að frá febrúar 1979 til febrúar 1980 hafi framfærsluvísitalan hækkað um 61% en hækkun vísitölu á laun hafi á sama tíma numið 44%, þannig að aðeins á þessum tíma hafi laun verið skert um 17%. Hvernig væri, að forystumenn BSRB og ASÍ tækju nú höndum saman við Alþýðubandalagið, sem ráðið hefur mestu um stjórn landsins á ofangreindu tímabili með Framsóknarflokknum, undir nýja kjörorðinu: „Enga samninga í gildi.“ Jafnan hefur það verið svo í kjaradeilum, að verkalýðshreyf- ingin hefur lagt á það höfuðkapp að koma fram sameinuð og síðustu ár hefur það tekist þokkalega. Á fyrstu mánuðum ársins 1978 var til dæmis náin samvinna milli Álþýðusambandsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Ef marka má orð Kristjáns Thorlaciusar formanns BSRB hefur þessi vinátta kólnað undanfarið og segir hann, að áhrifamikil öfl innan ASÍ deili á BSRB. Þá er það einnig skoðun Kristjáns, að innan Alþýðusambandsins sé greinileg óeining og menn deili þar innbyrðis um stefnuna í kjaramálum og þá ekki síst að því er vísitölumálið varðar. Raunar eru þessi orð Kristjáns ekki nýnæmi heldur staðfesting á fullyrðingum forsvarsmanna Vinnuveitendasambandsins um sama efni, en þeir telja erfitt að halda uppi viðræðum við samninganefnd Alþýðusambandsins, þar sem hún sé ekki á einu máli. Þetta eru alvarleg tíðindi ekki síst, þegar svo virðist sem ríkisstjórnin leggi nú höfuðkapp á það, að kjarasamningar við ASI og BSRB hafi samflot eins og ráðherrarnir boðuðu í útvarpsumræðunum á mánudagskvöldið. Staðfestu ráðherrarnir þar með þá samstöðu, sem er milli sjónarmiða ríkisstjórnarinn- ar og atvinnurekenda varðandi svör við kröfum um grunnkaups- hækkanir. Þá boðaði formaður Framsóknarflokksins, Stein- grímur Hermannsson, að ríkisstjórnin ætlaði að beita sér fyrir því í viðræðum við launþega, fyrir 1. júní n.k. að því er best var skilið, að þeir féllust á 2—3 stiga vísitöluskerðingu í viðbót frá og með 1. júní. Ekki liggur ljóst fyrir, hvernig ríkisstjórnin ætlar að bera sig að við að koma þessum áformum í framkvæmd, því að forsætisráðherra sinnti engu fyrirspurn Geirs Hallgrímssonar um það, hvort ætlunin væri að gefa út bráðabirgðalög af þessu tilefni, eftir að Alþingi hefði verið sent heim. Kristján Thorlacius hefur þegar sagt, að þessi áform ríkisstjórnarinnar að frumkvæði Framsóknarflokksins séu „hneyksli". Og svo segir Svavar Gestsson félagsmálaráðherra í þingræðu, að á næstu vikum verði að fá úr því skorið, hvernig kjaramálunum lyktar, og bætir því við án þess að blikna, að störf ríkisstjórnarinnar hafi verið góður undirbúningur undir kjarasamningana. En þessi ráðherra hefur það helst sér til málsbóta í slíkum fullyrðingum, að margvíslegir félagsmála- pakkar séu tilbúnir í gjafakörfu ríkisstjórnarinnar. En hver er sínum gjöfum líkur. Annað hvort er sú löggjöf, sem félagsmála- ráðherra beitir sér fyrir á þessu sviði, þeim annmarka háð, að alls ekki má opna „pakkann" strax eða gefnadi hefur ekki aflað fjár til að borga gjöfina og hvetur þess vegna til aukinnar skattheimtu. Það er engin furða þótt aðilar vinnumarkaðarins og þá sérstaklega launþegar sýni félagsmálapökkum Svavars Gests- sonar takmarkaðan áhuga, bæði kemur þar til að frágangur þeirra er ekki sem bestur og einnig að afhending pakkanna er aðeins síðbúin staðfesting á efndum ákvæða eldri kjarasamn- inga. Suma pakkana er verið að afhenda í þriðja eða fjórða sinn og enginn þeirra er nýr. Það er furðulegt, að þessi gömlu loforð séu eina haldreipi ríkisstjórnarinnar, um leið og hún leggur sig fram um það eitt að tefja fyrir kjarasamningum með vitlausri stefnu í skattamálum og algjöru stjórnleysi í efnahagsmálum. Geir Hallgrímsson í eldhúsdagsumræðum: Hér fer á eftir í heild ræða sú, sem Geir Hallgrímsson flutti i eldhúsdagsumræðum í fyrrakvöld: Herra forseti. Góöir áheyrendur Öllum er í fersku minni, að baráttan gegn verðbólgunni var höfuðmál kosninganna fyrir tæpu misseri. Fráfarandi vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar hafði svo ger- sámlega misst allt taumhald á stjórn mála, að kratarnir rufu stjórnarsamstarfið og fyrirsjáanlegt var að öll fyrri verðbólgumet yrðu slegin. Sagt hefur verið, að landið hafi verið stjórnlaust meðan á kosningabaráttunni og eftirfarandi stjórnarmyndunartilraunum stóð og engar ráðstafanir hafi verið hægt að gera gegn vaxandi verðbólgu. Muna menn nú ekki lengur hvílíkt bjarg- ráð efnahagslögin, sem samþykkt voru hér á Alþingi fyrir ári síðan voru talin? Fram- sóknarmenn og Alþýðuflokksmenn rifust um höfundaréttinn að þessum lögum og Alþýðubandalagið veitti þeim brautargengi með öllum atkvæðum sínum á þingi. En allt kom fyrir ekki, verðbólgan óð áfram. „Samningar í gildf‘ og efndir Athyglisvert er, að beinir skattar hafa þyngst að mun líklega nálægt 30%, ef miðað er við tekjur greiðsluársins, frá því 1977 og fyrri hluta 1978. Hér er auðvitað einnig gengið beint gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins. Beinir skattar eru skattar á tekjuöflun, verðmætasköpun og draga því úr framtaki manna. Beinir skattar eru nú svo háir, að ríkið tekur 1/3 af viðbótartekjum hjá verulegum hluta skattgreiðenda. Þar að auki hafa óbeinir skattar stórhækkað, söluskattur í 23V'i % og vörugjald í 24%. Slík skattheimta dregur úr verðmæta- sköpuninni í þjóðfélaginu, þjóðarfram- leiðslu og þjóðartekjum. Það verður minna til skiptanna fyrir alla. Slík skattheimta er til þess fallin að freista manna til að skjóta tekjum undan skatti og skapar því skilyrði fyrir spillingu og virðingarleysi fyrir lögum, sem nóg er af fyrir. Slík skattheimta eykur kaupkröfur og verkar því eins og olía á verðbólgubálið. Bæði fulltrúar launþega og vinnuveitenda hafa bent á, að lækkun skatta væri nauðsynleg til að koma á skynsamlegum kjarasamningum, sem nú eru allir lausir. En ríkisstjórnin fer þveröfugt að. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar er því mikil, ef kjara- samningar fara úr böndunum. Þegar ég fór með stjórnarmyndunarum- boðið lagði ég fram hugmynd um að allir flokkar tækju höndum saman og lækkuðu tekjuskatt eða verðu til tekjutryggingar um þrengja hag orkufyrirtækja með verðlags- ákvörðunum og auka þar með þörf erlendrar lántöku. Löngum var við það miðað að Landsvirkj- un gæti staðið undir 27—30% af kostnaði nývirkjana með eigin fé, en engar líkur eru til að Landsvirkjun geti lagt krónu í nýjar framkvæmdir, þar sem hún er rekin með milljarða tapi 2 undanfarin ár. Hitaveita Reykjavíkur hefur sett sér það markmið að kosta allar nýframkvæmdir af eigin fé enda er verðlag heita vatnsins innan við 20% af því, sem þeir, sem kynda híbýli sín með olíu þurfa að borga. En ríkisstjórnin neitar Hitaveitu Reykjavíkur um verðhækk- un. Afleiðingin er stöðvun framkvæmda og tenginga nýrra húsa, sem þá þarf að hita með olíu, eða aukning á erlendum lánum, en fyrri reynsla af þeim er slík að verð heita vatnsins er nú hærra en þyrfti, ef Hitaveit- an hefði í tíma fengið umbeðnar verðhækk- anir. Þannig rekst hvað á annars horn, og ríkisstjórnin veit ekki sitt rjúkandi ráð. Sjálfsagt afsakar ríkisstjórnin sig með niðurtalningaraðferð Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins en dæmi Hitaveitu og Landsvirkjunnar sýna hvers haldlaus og skaðleg niðurtalningaraðferðin er í baráttu við verðbólgu. Verðbótavísi- talan skertl Það væri lítil „kúnst“ að ná verðbólgunni sem hið opinbera ætlar sér ráðstöfun mun stærri hluta sparifjárins en áður jafnhliða auknum erlendum lántökum. Þetta kom fram, þegar ríkisstjórnin ætlaði að svipta lífeyrissjóðina ráðstöfunarrétti á verulegum hluta ráðstöfunarfjár þeirra. Ríkisstjórnin varð að vísu að hluta að hætta við áform sín að þessu leyti en söm er hennar gerðin. Rikisumsvif aukin — hlutur einstakl- inga skertur Það er höfuðeinkenni málefnasamnings, fjárlaga og fjárfestingar og lánsfjáráætlun- ar, að auka umsvif ríkisins, en hlutur einstaklinganna, heimilanna og fyrirtækj- anna er skertur og frelsi þeirra og framtaki þröngar skorður settar. í atvinnumálum á allt að koma að ofan. Ríkisvaldið á að gera áætlanir og eftir að búið er að rýra eigin fjármagn einstaklinga, heimila og fyrirtækja með Verðbólgu, óraun- hæfum verðlagsákvörðunum og skatt- heimtu, þá á ef til vill náðarsamlegast að skammta einstaklingum og fyrirtækjum fé eftir vilja og geðþótta valdhafanna, skömmtunarstjórn verður í algleymingi og kerfið blæs út. Þar sameinast hugsjónir kommúnista og hagsmunir S.Í.S., en ekki sj álfstæðismanna. Nýjar atvinnugreinar og efling hinna eldri, aukin afköst og framleiðni, sem eru skilyrði bættra lífskjara, verða ekki að veruleika, nema að frumkvæði einstakl- inganna og samtaka þeirra. Stjórnvöld geta kæft slíkt frumkvæði eða hvatt. Þau geta skapað almenn skilyrði fyrir framþróun en Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði með þessu samkomulagi þótt þeir væru ekki fyllilega ánægðir með það. En við þingmenn Sjálfstæðisflokksins teljum að í samræmi við þetta samkomulag og á grundvelli þess sé unnt og nauðsynlegt að vinna áfram að því að tryggja réftindi íslendinga til fisk- veiða og landgrunns á Jan Mayen svæðinu í samræmi við tillögur sjálfstæðismanna. í dag samþykkti Alþingi einnig þings- ályktunartillögu um hafsbotnsréttindi íslands og samvinnu við Færeyinga, sem er afar mikilvægt hagsmunamál okkar íslend- inga. Okkur íslendingum er vissulega vandi á höndum í samskiptum við aðrar þjóðir til að tryggja sjálfstæði og öryggi landsins og viðskiptalega hagsmuni í válegri veröld, þar sem sjálfstæði ríkja er ekki virt, þegar svo býður við að horfa, eins og innrás Sovétríkj- anna í Afganistan ber gleggst vitni um. Það vakti því.óhug, þegar ekki var einu orði minnst á þáttöku okkar í Atlantshafsbanda- laginu og varnarsamstarfið við Bandaríkin í málefnasamningi núverandi ríkisstjórnar. En þátttaka okkar í Atlantshafsbandalag- inu tryggir ekki sjálfstæði okkar, ef við kunnum ekki fótum okkar forráð að öðru leyti í innanlandsmálum og verðum upp- lausn og óðaverðbólgu að bráð, svo að við glötum efnahagslegu sjálfstæði okkar. Trúnaður við grund- vallarstefnu Sjálf- stœðisflokksins Góðir hlustendur. Aðdragandi að þessari Beinir skattar haf a þyngst um nær Sannleikurinn er sá, að landið hefur verið stjórnlaust allt frá því að Ólafur Jóhannes- son og Framsóknarflokkurinn gafst upp 1978 í baráttunni gegn verðbólgunni og gekk í björg Alþýðubandalags og Alþýðuflokks til að „setja samningana í gildi“ eins og það var kallað á kosningamáli. En efndir þess hafa verið með þeim hætti, að nú skortir um 15—20% á, að náð sé þeim kaupmætti sem að var stefnt með hinum óraunhæfu kjara- samningum 1977. Og myndun núverandi ríkisstjórnar hefur ekki breytt því, að landið er enn stjórnlaust og verðbólgan veður hömlulaust áfram. Myndun núverandi ríkisstjórnar leysti enga stjórnarkreppu. Við búum áfram við stjórnarkreppu. Það hefur því miður gerzt, að nokkrir sjálfstæðismenn hafa tekið að sér það hlutverk, sem jafnvel kratarnir treystu sér ekki til að gegna lengur, að spyrða saman og tryggja völd Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks, mestu skatta- og ríkis- umsvifaflokkanna í landinu. Málefnasamningur núverandi ríkisstjórn- ar er dæfnigerður vinstristjórnarsamning- ur. Hann er merkilega svipaður vinstri stjórnarsamningnum 1971, þegar óðaverð- bólguflóðið hófst hér á íslandi. Hann er loforða- og óskalisti að miklu leyti. Með afgreiðslu fjárlaga og fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar innsiglar ríkisstjórnin svo vinstri stjórnarstefnuna. Hvernig á að fara að því? Talið er að vinstri stjórn Ólafs Jóhannes- sonar hafi aukið skattaálögur á landsmenn um 25—30 milljarða króna á verðlagi yfirstandandi árs. Núverandi ríkisstjórn framlengir allar þessar skattaálögur en lætur ekki þar við sitja, heldur hafa stuðningsmenn hennar samþykkt álögur, sem nema munu jafnhárri upphæð 25—30 milljörðum, er leggjast munu til viðbótar á landsmenn nú í ár. Heildarskattbyrðin er þvi 50—60 millj- örðum krónum þyngri nú í ár en hefði verið samkvæmt skattalögum, er í gildi voru vorið 1978. Því miður eru gleymd orð Gunnars Thoroddssen í grein 28. maí sl. „Það er ekki lengur hægt að hækka skatta. Þeir eru þegar orðnir nógu háir“. Gleymzt hefur 10% niðurskurður fjárlaga sem hann gerði að tillögu sinni. Nú á að hækka niðurgreiðslur, þótt þær hafi verið „komnar úr hófi“ og sparað mætti í niðurgreiðslum, svo að enn sé vitnað í grein Gunnars. 17—25 milljörðum króna til þess að rjúfa víxlhækkanir verðlags og launa og stuðla að skynsamlegum kjarasamningum. En auðvit- að vildu Alþýðubandalagið og Framsóknar- flokkurinn heldur framkvæma ríkisum- svifa- og skattastefnu sína úr því þeim bauðst óvænt aðstoð til þess Stóraukin greiðslubyrði Fjárfestingar- og lánsfjáráætlunin er brennd sama marki aukinna ríkisumsvifa og fjárlögin sjálf. Á sama tíma og búizt er við að þjóðar- framleiðslan aukist aðeins um 1% eða standi í stað og þjóðartekjur á mann minnka, er gert ráð fyrir, að fjármuna- myndun aukist um nær 7% og samneyzla um 2%. Og öll hækkun fjármunamyndunar er í opinberum framkvæmdum, sem aukast um 21% að magni. Það er ekkert við það að athuga að lækka framlög til fjárfestingarlánasjóðanna á fjárlögum, ef í því fælist samdráttur ríkisútgjalda. En því er ekki að heilsa. Það sem sparast að þessu leyti er notað í eyðsluhítina, til að hækka önnur útgjöld eða stofna til nýrra. Fjárfestingarlánasjóðirnir eiga svo að auka á erlendar lántökur. Greiðslubyrði erlendra lána, afborgana og vaxta hækkar snögglega úr 13—14% af gjaldeyristekjum sem hingað til hefur þótt of hátt í 16—17% á þessu ári og 18—19% á næsta ári. Vissulega er erlendum lántökum varið að hluta til orkuframkvæmda, sem spara gjaldeyriseyðslu í framtíðinni, en svo vísdómslega fer ríkisstjórnin að ráði sínu að niður, ef það væri hægt með því að setja í lög að verðlag skuli ekki hækka nema um 8% á fyrsta ársfjórðungi, 7% á þeim næsta og 5% á þeim þriðja, enda segir reynslan allt annað. Nú spáir Þjóðhagsstofunin að fram- færsluvísitalan 1. júní hækki um rúm 13%, 1. september verði hækkunin ekki minni en 9% og 1. desember 10%. Þessar spár hafa alltaf verið í lægra lagi, svo að ekki er von á góðu. Verðbólgan frá byrjun til loka árs yfir 50%. Heyrst hefur að ríkisstjórnin sé að velta fyrir sér að dreifa hækkun húsnæðiskostn- aðar s.l. 12 mánaða, sem nú kemur fram í vísitölunni eftir á, á næstu 12 mánuði og láta auknar niðurgreiðslur landbúnaðarvara koma til lækkunar verðbótavísitölu, þótt launþegar fái ekki verðbætur vegna hækk- unar landbúnaðarvara um næstu mánaða- mót fyrr en að 3 mánuðum liðnum. í báðum þessum tilvikum þarf lagabreytingu og ég vil því spyrja Gunnar Thoroddsen, hver sé fyrirætlun ríkisstjórnarinnar í þessum efn- um. Ráðherrum Alþýðubandalagsins er svo sem vel trúandi til þess að vinna að því að draga úr verðtryggingu launa gagnstætt fyrri yfirlýsingum, meðan verkalýðsforingj- ar Alþýðubandalagsins þykjast krefjast aukinnar verðtryggingar í kjarasamningum. Þykir ríkisstjórninni nú ekki nægilegt að senda Guðmund J. formann Verkamanna- sambandsins til Stykkishólms? Á að senda Alþingi heim, til þess að ríkisstjórnin geti gefið út bráðabirgðalög um skerðingu á verðbótavísitölu? \ En slíkar aðgerðir eru auðvitað ekkert nema kák, Lúðvíska í algleymingi, sem dugar ekki í baráttunni gegn verðbólgu, sízt af öllu meðan þennslu-skatta og ríkisum- svifastefnan ræður ferðinni í ríkisfjár- málum, verðlags- og peningamálum. Kynda verð- bólgueldinn Jafnvel þótt engar grunnkaupshækkanir verði og grunnkaup hefur nú verið óbreytt í heilt ár, þá mun stefna ríkisstjórnarinnar á öðrum sviðum því miður kynda verðbólgu- eldinn svo duglega að ekki verður séð fyrir afleiðingarnar. Spáð er 20 milljarða króna viðskiptahalla á ári þótt ekki sé eingöngu horfið frá ráðleggingum fiskifræðinga um 300 þús. tonna hámarksafla þorsks heldur einnig horfið frá samkomulagi og meðmælum útvegsmanna og sjómanna um 350 þús. tonna þorskafla og nú gert ráð fyrir 380—400 þúsund tonna afla. Alls staðar er þannig látið undan síga teflt á tæpasta vað og fjársjóðir framtíðarinnar eyddir. Sparifjármyndun hefur stórlega dregizt saman miðað við sama tíma og í fyrra. Ávöxtun sparifjár er nú neikvæðari en um langt skeið þrátt fyrir ákvæði efnahags- laganna frá í fyrra, svo að seðlabanka- stjórinn segir það lagalega og siðferðilega skyldu að hækka vextina. Ég vil nota tækifærið og spyrja forsætisráðherra, hvort hann sé sammála þessu svo og aðrir stjórnarliðar, og hvaða hækkanir á ávöxtun sparifjár og fjármagnskostnaði lántakenda um næstu mánaðamót séu ráðgerðar? Ef ekki tekst að auka sparifjármyndun, þá er fyrirsjáanlegt að taka verður upp harð- vítuga lánsfjárskömmtun eða setja aukinn kraft í seðlaprentun innistæðulausra seðla. Ekki sízt hlýtur þróunin að verða þessi, þar þau geta aldrei komið í staðinn fyrir framtak einstaklingsins og hins breiða fjölda. A tvinnufyrirtœkin berjast í bökkum Núverandi ríkisstjórn hefur ekki skapað atvinnurekstri og fyrirtækjum viðunandi starfsskilyrði, þau berjast í bökkum. Iðn- aðurinn sem hlýtur ásamt þjónustugreinum fyrst og fremst að veita unga fólkinu verðug viðfangsefni á í vök að verjast. Sókn í nýjum orkuframkvæmdum og stóriðjuframkvæmdum er stöðvuð. Iðnað- arráðherra Alþýðubandalagsins hefur lagt stóriðjunefnd niður og eitt fyrsta verk hans sem iðnaðarráðherra í vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar var að seinka framkvæmd- um við Hrauneyjarfossvirkjun. Afleiðingin hefur verið skömmtun á rafmagni og samdráttur í framleiðslu áls, járnblendis og áburðar, sem leiðir til minnkandi útflutn- ingstekna eða aukins innflutnings og versn- andi afkomu þjóðarheildar og einstaklinga. Hagsmunir þeir, sem við höfum af almennum iðnaði og stóriðnaði fara auðvit- að saman, en afstaða Alþýðubandalags og Framsóknar til stóriðnaðar er dæmi um afturhaldseðli þessara flokka, minnimátt- arkennd og hræðslu við að eiga samskipti við erlenda aðila á jafnréttisgrundvelli. Utanríkismál in í dag afgreiddi Alþingi þingsályktunar- tillögu um samkomulag milli Noregs og íslands um fiskveiðiréttindi og landgrunns- réttindi á íslandshafi við Jan Mayen. stjórnarmyndun, málefnasamningur ríkis- stjórnarinnar, aðgerðir hennar og aðgerð- arleysi sýna, að Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki átt neina aðild að þessari rikisstjórn. Það er óneitanlega áfall, en timabundið, að nægilega margir sjálfstæðismenn gengu til liðs við Alþýðubandalagið og Framsókn til að framlengja líf vinstri stjórnar þessara flokka. Því skiptir það nú höfuðmáli, ekki eingöngu fyrir Sjálfstæðisflokkinn heldur og íslenzku þjóðina, að sjálfstæðismenn taki nú höndum saman, sýni einingu og sam- heldni í heiðarlegum og drengilegum vinnu- brögðum í sókn og vörn fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins. Auðvitað koma ýmis ágreiningsmál upp meðal þjóðarinnar. Það er sannfæring mín, að Sjálfstæðisflokkurinn sé og verði að vera sú kjölfesta í þjóðfélaginu, að hann geti í stefnu sinni og starfi leyst slíkan ágreining, hvort sem hann stafar til dæmis af mismunandi búsetu eða mismunandi störf- um manna. í þessum efnum þurfum við á málamiðlun að halda. En öll málamiðlun sjálfstæðismanna verður að byggjast á trúnaði við grundvallarstefnu Sjálfstæðis- flokksins, sem stofnendur hans mörkuðu í upphafi og sjálfstæðismenn hvar á landi sem þeir búa og hvar í stétt sem þeir starfa hafa þróað um áratuga skeið. Þessa dagana minnumst við sérstaklega nýlátins foringja okkar Jóhanns Hafstein, fyrrverandi forsætisráðherra og þökkum fordæmi hans, fórnfýsi og leiðsögn. Ég beini því til allra þeirra, er mál mitt heyra að styrkja Sjálfstæðisflokkinn til þess að vera sú kjölfesta sem íslendingum er nú meiri nauðsyn að eiga en oftast áður. Þakka þeim, sem hlýddu. Gengið beint gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.