Morgunblaðið - 28.10.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.10.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1988 Arborgarsvæðið: Atvinnuástand íjafiivægi nema í Þorlákshöfh Selfossi. JAFNVÆGI virðist ríkja í atvinnumálum á Árborgarsvæðinu ef undan eru skildar uppsagnir Meitilsins hf. í Þorlákshöfii. Þar missa um 100 manns atvinnuna. Að mati starfsfólksins í viðtölum við fréttaritara blaðsins er ekkert annað framundan hjá því en atvinnuleysi. Lítið sem ekkert atvinnuleysi er nú á Árborgarsvæð- inu og á öðrum þéttbýlisstöðum en í Þorlákshöfii hefúr ekki orð- ið vart aukinnar eftirspurnar eftir atvinnu. Staðan í atvinnumálum á Ár- borgarsvæðinu er hvergi eins al- varleg og í Þorlákshöfn. Þar hefur til þessa verið eftirspum eftir vinnukrafti og ný fyrirtæki verið sett á stofn. Unnið er af krafti við frágang á nýju frystihúsi sem taka mun til starfa fljótlega. Þrátt fyr- ir það er ekki búist við að allir þeir sem missa vinnuna hjá Meitl- inum hf. fái vinnu í Þorlákshöfn. Á öðrum þéttbýlisstöðum á Ár- borgarsvæðinu ríkir jafnvægi. í Hveragerði er jöfn og stöðug at- vinna. sem byggist að mestu á þjónustustörfum. Eitthvað er um að fólk þaðan hafi sótt vinnu til Þorlákshafnar. Á Selfossi er atvinnuástand gott og fáir á atvinnuleysisskrá. Slátrunin sem er um það bil að ljúka hefur tekið til sín nokkuð af fólki og hugsanlegt að það vanti atvinnu þegar slátrun og það sem henni fylgir er yfirstaðið. Haf- steinn Stefánsson hjá verkalýðs- félaginu Þór sagði að þrátt fyrir góða stöðu nú væri ástæða til svol- ítillar svartsýni þar sem ekki væri víst hvað tæki við þegar slátrun lyki. Hann sagði og að ekki hefði orðið vart við neinn samdrátt í byggingariðnaði. Á Eyrarbakka og Sokkseyri ríkir jafnvægi í atvinnumálum. „Það er þó stutt í dauðann," sagði einn viðmælenda á Stokkseyri og vísaði til erfiðleika í fiskiðnaðinum. Ekki hefur á þessum stöðum orðið vart mikillar ásóknar fólks utan staðanna i atvinnu. — Sig. Jóns. VEÐUR / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa islands (Byggl á veðurspá kl. 16.15 í gær) I/EÐURHORFUR í DAG, 28. OKTÓBER YFIRLIT í GÆR: Austur við Noreg er 980 mb lægð á leið austur en 1.030 mb hæð yfir Grænlandi og hæðarhryggur á Grænlands- hafi þokast aust-suðaustur. Við strönd Grænlands, vestur af ís- landi, er að myndast dálítið lægðardrag. Víða verður talsvert frost í nótt en á morgun fer að hlýna, fyrst vestanlands. SPÁ: Á morgun verður vestan- og suðvestanátt um land allt, víðast gola eöa kaldi. Um vestanvert landið verður skýjað og dálítil súld eða rigning á víð og dreif, en léttskýjað að mestu austanlands. Hiti 2 til 4 stíg vestanlands, en 0 til 3ja stiga frost austanlands. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestlæg átt, víðast frostlaust og heldur hlýnandi. Dálítil slydda eða rigning um sunnan og vestan- vert landið en úrkomulitið norðaustanlands. HORFUR Á SUNNUDAG: Snýst aftur í norðlæga átt og kólnar í bili, má víða búast við næturfrosti. Dálítii él norðaustanlands en léttir til sunnanlands. TAKN: •Q ► Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * r * ' * r * Slydda / * / * * * * * * Snjókoma -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V Él = Þoka — Þokumóða ’, 5 Súld OO Mistur —|- Skafrenningur [~<^ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hiti +2 *1 voSur snjóélð lóttskýjað Bergen 10 rigning - Helsinki vantar Kaupmannah. 14 skýjað Narssarssuaq +1 alskýjað Nuuk 3 rigning Osló S lógþokublettir Stokkhólmur 5 rigning Þórshöfn 6 skúr Algarve 22 þokumóða Amsterdam 18 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjéó Chicago 6 skýjað Feneyjar 13 þokumóða Frankfurt 14 skýjað Glasgow 12 skúr Hamborg 18 léttskýjað Las Palmas vantar London 15 skýjað Los Angales 16 mistur Luxemborg 16 skýjað Madrtd 18 mistur Malaga vantar Mallorca 24 hálfskýjað Montreal 4 skýjað New York 6 heiðskirt París 17 skýjað Róm 21 þokumóða San Diego 17 skýjað Winnipeg +1 snjókoma Morgunblaðið/Bjami Á myndinni sjást nokkrir fiindargesta á vetrarfiindi SIR og SIH. Vetrarfiindur raf- og hitaveitumanna VETRARFUNDUR Sambands íslenskra rafveitna og Sambands íslenskra hitaveitna hófst á Hótel Sögu í gær og stendur funduriim í tvo daga. Á sameiginlegum fundi SÍR og SÍH í gær fluttu þeir Aðalsteinn Guðjónsson, formaður SÍR, og Ing- ólfur Hrólfsson, formaður SÍH, ávarpsorð, en að því loknu voru flutt erindi. Guðjón Magnússon, starfs- mannastjóri, og Þórsteinn Ragnars- son, innheimtustjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fluttu erindi um orku- reikninga og bætta þjónustu; Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, flutti erindi um áhrif yfirvalda á orkuverð og Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða flutti erindi um samrekstur hita- veitna og rafveitna. lfyrir hádegi í dag verður haldinn fundur SÍH, og á honum mun Hrefna Kristmannsdóttir, deildarstjóri á Orkustofnun, flytja erindi um út- fellingar í hitaveitum; Albert Al- bertsson, framkvæmdastjóri tækni- sviðs Hitaveitu Suðurnesja, flytur erindi um strompgufuvirkjun í Svartsengi og Franz Árnason, hita- veitustjóri Hitaveitu Akureyrar, flyt- ur erindi um heitavatnsmæla á Norð- urlöndum. I hádeginu flytur Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, ávarp. Eftir hádegið verður fundur SÍR haldinn. Á honum flytur Þorsteinn Siguijónsson, verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, erindi um smásölugjaldskrá; Ingi R. Helga- son, forstjóri Brunabótafélags ís- lands, flytur erindi um sjónarmið tryggingarfélaga til rafmagnseftir- lits og Tryggvi Þór Haraldsson, deildarverkfræðingur, flytur erindi um íjargæslukerfi Rafmagnsveitna ríkisins. Fundi SÍR lýkur með því að fjall- að verður um það sem efst er á baugi í raforkufyrirtækjum hér á landi. DUlons-gin á markað „DILLON lávarður11 heitir ný íslensk gin-tegund, sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hóf að tappa á flöskur í gær. Nafiiið og skjaldarmerkið á merkimiðunum á flöskunum er fengið að láni frá Dillons-ættinni í Englandi. Dillons-ættin tengist íslandi í gegnum Arthur Edmond Denis Dill- on, enskan lávarð sem kom til lands- ins sumarið 1834 og geta menn lesið sér til um helstu æviatriði hans á gin-flöskunum frá ÁTVR. Hann átti hér ástarævintýri og eina dóttur með frú Siri Ottesen, en hvarf af landi brott eftir ársdvöl. Hann reisti hús á Suðurgötu 2, sem síðar var flutt á Árbæjarsafn og ber nafn hans enn og er kallað Dillons-hús. Fyrir skömmu kom Henry Benedict Char- les Dillon, 22. lávarður ættarinnar hingað til lands ásamt móður sinni í boði ÁTVR. Þórir Jóhannsson GK: Fer trúlega á veið- ar eftir hálfan mánuð - segir Matthías Ingibergsson skipstjóri „ÉG VONAST til að búið verði að ganga frá frystibúnaðinum í Þóri Jóhannssyni GK eftir hálfan mán- uð og þá fer hann á veiðar,“ sagði Matthías Ingibergsson, skipstjóri og einn af eigendum bátsins, í samtali við Morgunblaðið. Krafa um löghald í bátnum var Stofiifundur félags for- eldra fíkni- efiianeytenda FÉLAG foreldra og annara aðstandenda ungra fíknicfna- neytenda, verður stofiiað laugar- daginn 29. október kl. 14 í húsa- kynnum Krisuvíkursamtakanna Þverholti 29. Félagið hyggst m.a. þrýsta á stjórnvöld að gera þegar í stað raun- hæfar ráðstafanir til að koma á fót sérstökum og alhliða meðferðar- stofnunum fyrir ungmenni sem háð eru fíkniefnum, eða eiga við alvar- lega misnotkun þeirra að stríða. lögð fram á þriðjudaginn og náði hún fram að ganga, að sögn Adolfs J. Berndsens stjórnarformanns skip- asmíðastöðvarinnar Mánavarar á Skagaströnd. „Við getum ekki ráð- stafað bátnum að eigin vild og þurf- um að fá veðleyfi hjá Mánavör og undirverktökum við smíði bátsjns til að fá lán hjá Byggðasjóði. Ég sé hins vegar ekki ástæðu til að vera að því og sé ekki annað en að þetta séu hefndarráðstafanir af hálfu Mánavarar og undirverktakanna," sagði Matthías Ingibergsson. ----------» ♦ ♦ Brældi á loðnumiðum Skammvinn bræla hamlaði loðnuveiðum á miðvikudag, en þá tilkynnti aðeins eitt skip um afla. Síðdegis í gær var veðrið að ganga niður og búizt við veiði í nótt. Fá skip voru á miðunum í gær, en fór fjölgandi og verða þau líklega orðin nálægt 20 í dag. Má því búast við góðri veiði í vikulokin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.