Morgunblaðið - 20.12.1988, Síða 32

Morgunblaðið - 20.12.1988, Síða 32
32______________________J MORbTJtóBfcÁiyiEÍ, ‘ ÞklbJtfM^ÚÍT '20? ^SÉMÍEfe Wss_ Eitt sæti af hverjum þremur eftirÞórunni Gestsdóttur Starf á vettvangi stjórnmálanna er löngunin og viljinn til að bæta aðstöðu. Bæta samfélagið. Gera til- raun til að bæta og fegra i orði og á borði það sem næst okkur stend- ur. Vegna ýmissa duttlunga, mann- legs breyskleika og ófullkomleika rekur stjómmálamenn oft af leið. Astæðumar eru óteljandi. Stundum er seinagangur orsök ófamaðar, stundum of mikill hraði. Oft er það valdatogstreitan sem er dragbítur- inn. Að meta pólitiska stöðu hvers dags að kvöldi er stundum erfiðast fyrir þann er næst eldinum yljar sér, við sjálfstæðismenn höfum færst fjær eldlínunni um stundar- sakir, aðrir hafa tekið yfír. Það sem blasir við augum í dag að mati okkar flestra eru ógeðfelldar stjóm- unaraðgerðir og pólitískar leikflétt- ur. Það gæti verið ágætt út frá flokkssjónarmiðum séð, en slæmt sé hugsað um þjóðarhag. En nú er kominn tími til að sjálf- stæðismenn sameinist og sýni styrk sinn í islensku samfélagi. Þegar á móti blæs og við stöndum utan stjómar og höfum á brattan að sækja kemur líka styrkur hins al- menna flokksmanns helst í ljós. Það virðist vera í eðli þessa flokks að ganga á brattann. Það er stutt síðan að flokksmenn okkar sátu við ríkis- stjómarborðið og réðu ráðum þjóð- arinnar, ásamt öðmm reyndar. Það er svo stutt síðan að ennþá óma fyrir mínum eyrum óánægju- raddir flokksmanna, sem töldu slíkt samstarf af hinu illa. Allmargir flokksmenn á áhorfendabekk vissu miklu betur en þeir sem sátu við ríkisstjómarborðið hvemig átti að breyta, hvað átti að segja og gera. Mér er tjáð að það sé líka í eðli flokksins. Það em líka æði margir sjálf- stæðismenn sem lítið gera annað en að mylja undan undirstöðunni, naga innviðina í sundur og ala á hvers konar óánægju. Hvers vegna? Oft fyrir rangt mat á stundar- hagsmunum og fyrir eiginhags- muni. En valdatogstreita og eigin- hagsmunapot em víst pólitískir fylgifískar. Talsmenn stefiiu og flokks Þessir fylgifískar birtast í ýmsum myndum en hafa birst hvað berleg- ast í prófkjörum liðinna ára þar sem flokksmenn og samheijar hafa bor- ist á banaspjót. Þá hefur heill flokksheildarinnar farið fyrir lítið hjá köppunum. Ýmsir menn sem hafa komist til valda í gegnum próf- kjör hafa lengi verið talsmenn sjálf- stæðisstefnunnar. Eða talið svo sjálfír, án þess að vera alltaf tals- menn Sjálfstæðisflokksins. Það er gott og gilt, segja sumir. Við viljum síður koma upp einhverju daufum og hjáróma jákór innan flokksins. Það er ekki markmið. En það er ljóst að þeir sem vilja teljast sjálf- stæðismenn eiga að vera skuld- bundnir sameiginlegri hugsjón. Það er markmið að sú hugsjónataug sé ekki sundurslitin, Talsmenn stefn- unnar, án þess að vera talsmenn flokksins, ala margir á öfund og óánægju. Það er hún sem nagar og skaðar innviðina. Mikla sviptingar hafa verið í íslensku samfélagi á örskömmum tíma. Hraðinn mikill. Breytingar stórstigar. Gildi gærdagsins eru ekki endilega gildi dagsins og alls ekki morgundagsins. Skoðanakann- anir eru að verða veruleiki dagsins í pólitíkinni og það sem ræður niður- stöðum skoðanakannanna eru fjöl- miðlamir. Og eitt virkasta aflið í skoðanakönnunum er ónánægja fólksins. Málflutningur minn stefnir að einum og sama brunninum. Að ýta við sjálfstæðismönnum, talsmönn- um stefnunnar sem og flokksins, til að átta sig á sameiginlegri skuld- bindingu okkar sem viljum starfa í Sjálfstæðisflokknum, stærsta stjómmálaflokki landsins, flokki sem við segjum að sé flokkur allra stétta, og í sé breiðfylking umbóta- sinnaðra, fijálslyndra manna, flokki dreifbýlis og þéttbýlis, flokki karla og flokki kvenna. Við segjum kjósendum að í Sjálf- stæðisflokknum séu framsæknir nútímalega þenkjandi einstakling- ar. Við reynum að koma þeim boð- um til kjósenda að þessi flokkur hafí sama lífsinntak og þegnar landsins. En það hefur ekki gengið sem skyldi. Vegna þess að við höf- um ekki verið nægilega sannfær- andi. Sama lífsinntak Við höfum alls ekki stillt streng- ina. Það hafa ekki allir verið sann- færðir um stefnu flokksins í efna- hagsmálum. Hvort velja hafí átt niðurfærslu eða uppfærslu sl. haust. Hvort við yfírhöfuð stefnum að sömu markmiðum í byggðamálum, landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði, umhverfísmálum, samgöngumál- um, húsnæðismálum. Við þurfum að vera samstiga í flestum málaflokkum til að vera trúverðugur stjómmálaflokkur í augum kjósenda. Trúverðugur stjómmálaflokkur er sá sem hefur sama lífsinntak og þegnar þjóð- félagsins hveiju sinni, sama gildis- mat, sömu áherslur. Við höfum hent á loft að núver- andi stjóm hafi haldið til fortíðar með framsókn í fararbroddi. Að- gerðir núverandi stjórnar einkenn- ást af fortíðardraugum hafta og aukinna skattaálaga. Satt er það. En hvar hefur Sjálfstæðisflokkur- inn staðið? Hefur hann sýnt og sannað að hann sé gegnheill nú- tímalegur stjómmálaflokkur? Svari hver fyrir sig. Er Sjálfstæðisflokk- urinn aðlaðandi kostur. Opinn og sveigjanlegur, stór og víðsýnn borg- aralegur flokkur? Já og nei. Hann hefur unnið að stórstígum fram- fömm á ýmsum sviðum, en hefur líka haft annan fótinn fastan í for- tíðinni. Þegar litið er til fortíðar- hyggju sjálfstæðismanna á ég sér- staklega við stöðu kvenna í þessum flokki. Án kvenna minna kjörfylgi Kom að því, hugsar einhver, byij- ar kerlingarþvælan einu sinni enn. Sem formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna hlýt ég að ræða um stöðu kvenna í flokknum. Mér er þó fullljóst að fleira er þarft í pólitískri umræðu en umræðan um stöðu kvenna. Það em fleiri mál sem þarfnast úrlausnar en það hvort kona eða konur em kjömir fulltrúar fyrir þennan flokk. Að sjálfsögðu. En án kvenna, án þeirra málflutn- ings, án þeirra vinnu, án þeirra atkvæða, yrði lítið úr kjörfylgi karl- anna sem verma nú nær öll ömggu sætin á listunum. Mér er ljóst að ástæðan fyrir því að ekki em fleiri konur í öraggum sætum eða kjöm- ir fulltrúar á þingi eða í sveitar- stjómum er hógværð kvennanna sjálfra. Við höfum ekki verið nógu háværar. Ekki nógu sýnilegar. Þeg- ar við ræðum stöðu okkar þurfum við yfírleitt að líta um öxl til fortíð- ar og benda á hversu flokkurinn hafí verið framsýnn og treyst kon- um til ábyrgðarstarfa, það sem blasir við í nútíð er Sjálfstæðis- flokknum ekki í hag, enda hafa margar konur horfíð úr röðum okk- ar fylgismanna yfir til Kvennalist- ans og annarra flokka. Ég var nýlega á fundi með konum í BSRB. Þar var ung kona í ræðu- stól og ræddi um noræna kvenna- þingið sem haldið var í Osló sl. Þórunn Gestsdóttir „Ég trúi því að sjálf- stæðismenn, hvar í sveit sem þeir eru settir, geti tekið undir með mér að það þurfi að auka hlut kvenna í Sjálfstæðis- flokknum, meðal ann- ars til þess að fá aukið fylgi frá kjósendum." sumar. Hún greindi frá því vega- nesti sem hún kom með heim af þinginu. Hún sagðist nú vera virk- ari og meðvitaðri um mátt sinn og megin. Hún rakti ýmislegt mark- vert sem konur hafa sagt og gert, ýmist á þinginu eða að því loknu. Hún sagði meðal annars: „Meira að segja sjálfstæðiskonur hafa rætt um sérframboð." Meira að segja þær, það lá í orðunum, meira að segja þær, láta í sér heyra. Þessari ungu stúlku var ekki kunnugt um jafnréttisumræðuna til margar ára innan Sjálfstæðisflokksins, henni var eflaust ekki kunnugt um hveij- ir lögðu fram fmmvarp til laga um jafnréttismál á Alþingi. Henni hefur líklega ekki heldur verið kunnugt um hveijir unnu að og fengu fæð- ingarorlofíð í gegnum þingið. Ég gef mér það líka að henni hafi ver- ið óljós þáttur sjálfstæðiskvenna og karla í skóla- og dagvistarmálum. Ég nefni þessa málaflokka vegna þess að þeir vom til umfjöllunar á umræddu þingi. Á eftir ungu konunni flutti Inga Jóna Þórðardóttir, formaður fram- kvæmdastjómar Sjálfstæðisflokks- ins, erindi um vinnu og tillögur flöl- skyldunefndarinnar svonefndu sem forsætisráðherra síðustu ríkis- stjómar, Þorsteinn Pálsson, skip- aði. Það var málflutningur sem ég leyfí mér að fullyrða að hafi fallið í góðan jarðveg. Við konumar í Sjálfstæðisflokknum höfum oft bent á nauðsyn þess að flokkurinn breyti um áherslur í málflutningi sínum og við munum halda áfram. Skilaboð til kjósenda Við þurfum að láta kjósendur vita að í þessum flokki er ekki ein- göngu fjallað um tölur og prósent- ur. Við þurfum að láta vita af áhuga okkar á mannlegum þáttum tilver- unnar. Við eigum að rækta um- hverfíð og fólkið sem byggir það, því eins og einn ræðumaður sagði á flokksráðsfundinum sem haldinn var á Hótel Sögu fyrir skömmu; umhverfíð ræður miklu um lífsham- ingjuna. Við þurfum að láta kjósendur vita að kjömir fulltrúar flokksins sæki sinn styrk í lifandi og fijótt flokksstarf, ekki að kjömir fulltrúar hundsi vinnu og vilja flokksmanna eins og stundum hefur átt sér stað. Við þurfum að láta kjósendur vita að konur stefna hátt í Sjálf- stæðisflokknum, helst þyrftum við að segja að bæði karlar og konur innan flokksins hafí þau sameigin- legu markmið að stuðla að auknum hlut kvenna. Það er lífstaktur og lífsinnihald dagsins í dag. í virku samfélagi að konur og karlar axli sameiginlega ábyrgð í námi, í starfí og í stjómmálum. Ég trúi því að sjálfstæðismenn, hvar í sveit sem þeir em settir, geti tekið undir með mér að það þurfí að auka hlut kvenna í Sjálf- stæðisflokknum, meðal annars til þess að fá aukið fylgi frá kjósend- um. Það er mín sannfæring að innan skamms skipi konur eitt af hveijum þremur sætum á öllum listum Sjálf- stæðisflokksins. Látum væntanlega kjósendur vita að það sé markmið sem sjálfstæðismenn stefni að í náinni framtíð. Látum kjósendur vita að eldmóð- ur ríki innan okkar vébanda. Það smitar og eykur kjörfylgi flokksins, er ekki leikurinn einmitt til þess gerður? Höfundur er rítstjóri, varaborgar- fulltrúi í Reykjavík og formaður Landssambands sjilfstseðis- kvenna. — Greinin erbyggðá ræðu, sem flutt var & fundi kjör- dæmisráðs sjálfstæðismanna á Suðurlandi. Mikil er mildi þín blessaður öðlingurinn Athugasemd við grein Höskuldar Skarphéðinssonar eftirSnorra Snorrason í fyrirsögn á grein í Morgun- blaðinu laugardaginn 10. desember segir Höskuldur Skarphéðinsson, skipherra á varðskipinu Óðni: „Rannsókn á meintum lögbrotum ekki tilefnislaus töf.“ Ég vil gera nokkrar athugasemdir við skrif skipstjórans um málið. Fyrir það fyrsta bendir fyrirsögn- in ekki til að um venjulegt eftirlit hafí verið að ræða, heldur rannsókn á meintu lögbroti. Skipstjórinn seg- ir, „þegar varðskipsmenn höfðu mælt og yfírfarið botnvörpu Dal- borgar kom í ljós að undirbyrði hennar var bæði klætt slitneti- og húðum." Hvers vegna segir þú ekki frá því, sem á undan var gengið? Deilan um borð i Dalborgu við skoð- unina hófst þegar mælingarmenn þínir höfðu mælt húðina og mottuna á pokanum og komist að því, í sam- ráði við þig, að húðin væri of stór eða 3,2 fermetrar, en mætti ekki vera nema 2 fermetrar, mottan, sem ofan við var, væri ólögleg og taka skyldi hana af. Þeir vom að mæla nýtt og ónotað varatroll. Það varst ekki þú Höskuldur, sem last yfír mér úr reglugerðinni eða bentir mér á eitt eða neitt. Ég benti mæl- ingarmönnunum á, að í reglum væm engin ákvæði um stærð slit- vara á pokum og fékk þeim reglu- gerðina um búnað botn- og flot- vörpu. Það kom berlega i ljós, að hvorki þeir né þú höfðuð haft fyrir því áður að lesa umrædda reglu- gerð, ella hefði hún varla komið ykkur svo á óvart og orðið til hár- togana á orðalagi hennar. Þú segir, Höskuldur: „Ég kvaðst fús til að leita álits sjávarútvegsráðuneytisins og fá úrskurð þess." Ertu viss um að þú munir þetta rétt, Höskuldur? Þú kvaðst fús til að leita staðfest- ingar sjávarútvegsráðuneytisins á þinni túlkun, en þó varstu ekki fús fyrr en eftir harkaleg mótmæli mín. Þú segir, Höskuldur: „Síðar heyrðum við í talstöðinni þegar skipstjóri Dalborgar hneykslaðist á flónsku okkar.“ Þetta em auðvitað þín orð eða orðaskýringar og þú Snorrí Snorrason um það. En reglugerðin um búnað botnvörpu og flotvörpu er ekki ný og eftirlit með veiðarfæmm er ekki nýtilkomið. Hvað veldur þá slíkum uppákomum um orðalag í reglu- gerð, sem á að hafa verið unnið eftir ámm saman? Það er kannski farið fram á of mikið að túlkun og deilur um orða- lag reglugerða fari fram á öðmm vettvangi en um borð í skipum á miðunum. Það var það, sem um var að ræða með tilskrifum til dóms- málaráðherra, sem skipstjórinn á Óðni er að vitna til. Hvað varðar hugleiðingar skipstjórans og nafn- giftir á sínum mönnum læt ég mig engu varða. Síðar í greininni segir skipstjórinn á Óðni: „Það stóð nefni- lega aldrei til að færa Dalborgu til hafnar vegna fyrrgreinds búnaðar, heldur að breyta búnaði veiðarfær- anna samkvæmt skilningi mínum ...“ Halelúja Höskuldur. Það vildu sjálfsagt fleiri eiga slíkan einkavin í þraut, eða sagðirðu nokkuð áður? Ég álít það ekki vera tilefnislausa töf, sem orsákast vegna rannsóknar á meintum ólöglegum verknaði, og þú ætlaðir kannski að fyrirgefa slíkan verknað. Já, mikil er þín mildi, blessaður öðlingurinn. Ég óska þér og áhöfn þinni gleðilegra jóla, árs og friðar. ísafirði 17. desember 1988. Höfundur er skipstjóri á Dalborgu EA. Bækur fyrir minnstu börnin IÐUNN hefur gefið út fjórar litl- ar myndabækur fyrír minnstu börnin og nefnast þær Mikið að gera: Góðan dag, Á morgnana, Á daginn og Á kvöldin og eru eftir Carol Thompson. í kynningu útgefanda segir: „Bækumar em án texta en allar segja þær sögu sína á einstaklega lifandi myndmáli og lýsa annasöm- um dagstundum yngstu bamanna á kunnuglegan á kankvísan hátt frá því vaknað er á morgnana þar til gengið er til náða á kvöldin og aldr- ei er gamli góði bangsinn langt undan."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.