Morgunblaðið - 05.06.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991
13
ekki síst Rómönsusvítu eftir sama
höfund við ljóð eftir Alexander Blok,
sem heyrðist nú í fyrsta skipti á
tónleikum hérlendis, og fyrir und-
irritaðan var það einnig frumheyrn.
Rómönsusvítan op. 127 er skrifuð
fyrir píanó, fiðlu, selló og söngrödd
sem var hlutverk Margrétar Bóas-
dóttur. Verkið er í sjö þáttum við
sjö kvæði eftir Glok. Þessari mögn-
uðu tónlist var sérlega vel skilað af
þeim fjórmenningum, og stemmn-
ingar kvæðanna birtust manni sem
málverk. Að vísu hefði maður kosið
stærri og dramatískari söngrödd til
flutningsins. Auk ágæts skilnings á
verkinu söng Margrét á frummálinu,
sem út af fyrir sig er ekki lítið af-
rek. Hljómburðinum er það sjálfsagt
að kenna að tæplega heyrðust nokk-
ur orðaskil, en vissulega hefðu öll
sérkenni rússneskunnar þurft að
koma skýr í gegn. En sannarlega
voru þetta ánægjulegir tónleikar.
sínum og hvemig það var fengið.
Og fátt gat hann aðhafst svo, að
það væri ekki á annarra vitorði.
Fámennið skapaði þannig aðhald
en auðveldaði jafnframt rannsókn
mála.
Andstöðu bænda gegn lausa-
mennsku og þéttbýlismyndun
skýrir Gísli Agúst á hefðbundinn
hátt: með þörf þeirra fyrir stöðugt
og ódýrt vinnuafl. Síst skal borið
á móti þeirri röksemd. En fleira
má hafa valdið, t.d. hrein og bein
íhaldsemi og hræðsla við breyting-
ar. í augum sveitafólks var kaup-
staðurinn spillingarbæli og athvarf
ónytjunga, sníkjusveppur á þjóð-
arlíkamanum. Hvorki fyrr né síðar
en á fímmta tug þessarar aldar
hélt þingmaður einn því fram að
það lægi beinlínis í eðli íslendinga
að búa í dreifbýli. Er þá síst að
furða þó margur hafí trúað slíku
fyrr á tíð.
Þótt hið viðamikla efni, sem
höfundur hefur hér með valið sér
til athugunar og íhugunar, sé lítt
brotið til mergjar en meira farið
í kringum það er ritgerð þessi eigi
að síður fróðleg og skipuleg og
þar með dijúgur áfangi á leið til
ýtarlegri athugana.
eru Alexander Púskin, Osip Mand-
elstamm, Fjodor Dostojevskí og
Marína Tsvetajeva. Þorvarður
dregur upp mynd af sérstæðum
aðstæðum skáldanna sem mótuðu
síðan feril þeirra. Vegna ákveðinn-
ar huglægni í stílnum minna grein-
arnar einna helst á esseyjur.
Frumort ljóð Þorvarðar tengjast
oft á einhvern hátt þýddum ljóðum
í bókinni. I Pessoa-hlutanum er
t.d. ljóðið Hugleiðing um portú-
galskt skáld. Fremst í bókinni er
langt ljóð sem heitir Heimur af
heimi, undirtitill: (Hugsað tii Edith
Södergran). Lokahluti ljóðsins
geymir listilegt tilbrigði við hug-
myndir skáldkonunnar:
Fögur varnarlaus óskhyggja draumsins
og landið sem ekki var, er utan bláma
og tálmunar.
Skynjunin
fálmandi snerting
í ókleifu andrúmi,
heimur af heimi
heimtur
fijálsar í svip
sundraðar að stundu
og dagamir telja minnin
verða Ijós til að blinda.
Einhver kemur í landiðunni
sveipaður tómi sandsins
hálfur af himni og vatni
hálfur á jörðu.
Stíll bókarinnar er ívið þungur
á köflum, „eignarföllin stundum
helst ti! mörg. (Sjá t.d. upphaf
Mögn meinláta.) Þetta má þó skilja
í ljósi þess hve orðfæri Þorvarðar
er að jafnaði meitlað. Sem dæmi
um þetta má nefna ljóðið Boris
Pasternak, þar eru orðin merking-
arþung og bera margátta tilvísun.
Nýr og stórlega
endurbættur
A
MITSUBISHI
farsími fró
MITSUBISHI
Fullkomin tvíátta handfrjáls notkun.
(Símalínan er opin í báðar áttir í
einu við símtöl).
Styrkstillir fyrir öll hljóð sem
fra símanum koma s.s.hringing,
tónn frá tökkum o.fl. Einnig er
hægt að slökkva á tóninum frá
tökkum símtólsins.
Fullkomið símtól í réttri stærð.
Léttur, meðfærilegur, lipur í notkun.
Bókstafa- og talnaminni. Hægt er
að setja 98 nöfn og símanúmer í
minni farsímans.
Tímamæling á símtölum.
Gjaldmæling símtala. Hægt er að hafa
verðskrá inni í minni símans oq láta hann
síðan reikna út andvirði símtalsins.
Hægt að láta símann slökkva sjálfvirkt á sér,
t.d. ef hann gleymist í gangi.
Getur gefið tónmerki með 1 mín. millibili á
meðan á samtali stendur.
Stillanlegt sjónhorn skjás þannig að auðveldara
er að sjá á símtólið.
Tónval, sem er nauðsvnlegt t.d. þeqar hringt er í Símboða.
Stilling á sendiorku til að spara endingu rafhlöðunnar.
Hægt er að tengja aukabjöllu eða flautu við farsímann,
sem síðan er hægt stjórna frá símtólinu.
6 hólfa skammtímaminni. Hægt er að setja símanúmer
eða aðrar tölur í minni á meðan verið er að tala í farsímann.
Endurval á síðasta númeri.
Langdrægni og öryggi Mitsubishi-farsímanna er þegar landsþekkt
japönsk gæöi tryggja langa endingu.
Bíleining
Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt
símtóli. tólfestingu, tólleiðslu (5 m),
leoa, rafmaqnsleiðslum, nana-
frjálsum nljóðnema, loftneti
og loftnetsleiðslum.
Verð aðeins 115.423,- eða
99.990,-
stgr.
Verðdæmi á Mitsubishi-bíleiningu:
3.628,-
kr. á mán. í 30 mán. m/Munaláni*
FerSaeining
Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt
símtóli, nettri burðargrind. rafhlöðu
1,8 AH, loftneti og leiðslu í vindlakveikjara.
Verð aðeins 126.980,- eða
109.990,
stgr.
* Útreikningar miöast viö aö um jafngreiöslulán sé aö ræöa (annuitet), 25% útb., eina afb.
á mánuöi til allt aö 30 mán. og gildandi vexti á óverötryggöum lánum íslandsbanka hf.
f s W"* hhh ÆJ
V/SA
EliROCARD v Samkort
Greiðslukjör til allt að 12 mán. MUNÁLAN
Bjóöum hin
vinsælu
Munalán.sem er
greiösludreifing á
verömætari
munum
til allt aö 30 mán.
SKIPHOLTI
SÍMI 29800