Morgunblaðið - 05.06.1991, Síða 48
RISC SYSTEM/6000 ðffikf ?ir. v_ni.ir - svo vel
KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: IBM AIX iBqgmwutPtv sé trygpt sjóváISbalmennar
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Kjarvalsstaðir:
- . Morgunblaðið/Þorkell
A meðfylgjandi myndum sjást ungarnir í tryggri vörslu hjá öðrum lögregluþjóninum og
síðan er þeir busluðu að nýju ánægðir í Tjörninni.
Verk met-
ið á 244
milljónir
á sýningu
SÝNING á verkum bandaríska
listamannsins Christo verður
opnuð á Kjarvalsstöðum um
næstu helgi. Verk þessi koma
úr einkasafni sænska milljóna-
mæringsins Lilja og er það verð-
mætasta metið á 4 milljónir
bandarikjadali eða um 244 millj-
ónir íslenskra króna, að sögn
Gunnars Kvaran listfræðings.
Þetta verðmæta verk var unnið
á árunum 1958-59 og ber heitið
„Innpakkaðar olíutunnur". Auk
þess eru á sýningunni 4 aðrir
skúlptúrar en annars samanstend-
ur sýningin af teikningum og upp-
köstum af verkum Christos. Mörg
verk hans eru svo stór í sniðum
að erfitt yrði að koma þeim í hús.
Gott dæmi um þetta er innpökkuð
eyja sem er eitt af hans stærstu
verkum.
Ungar að skríða úr eggjum
BLÓMSTRANDI gróður og nýfæddir fuglsungar setja svip sinn
á náttúruna snemmsumars. Það er þess vegna skiljanlegt að
margir fylgist af áhuga með varpi fugla þessa dagana þegar
ungar margra tegunda eru að skríða úr eggjunum.
Að sögn Ævars Petersen, gengið vel í vor. Varp flestra
fuglafræðings hjá Náttúrufræði- andategunda, gæsa og æðarfugls
stofnun íslands, hefur varp fugla hefur gengið sinn vanagang.
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Viðræður um niðurskurð
milli ríkisins og námsmanna
BP kaupir ís-
lenzkt-enskt
fyrirtæki
BREZKA olíufélagið British
Petroleum hefur keypt íslenzk-
enska fyrirtækið Black Tiger
Seafood, sem var í eigu Ingólfs
Skúlasonar og Steve Burns. Ing-
, ólfur verður framkvæmdastjóri
dótturfyrirtækis BP Nutrition,
Aquastar.
Kaup BP á Black Tiger Seafood
eru liður í átaki fyrirtækisins til
að hasla sér völl í sölu fiskmetis í
Evrópu. BP Nutrition hefur þegar
náð góðum árangri í fiskeldi og
sölu fiskifóðurs.
Ingólfur Skúlason starfaði áður
sem framkvæmdastjóri dótturfyr-
irtækis Sölumiðstöðvar hraðfiysti-
húsanna, Icelandic Freezing Plant
í Grimsby. Hann segir í samtali
við Morgublaðið að fyrirtæki þeirra
£élaga hafi gengið mjög vel, en
peir hafi fengið tilboð frá BP, sem
þeir gátu ekki hafnað.
Sjá Bl, Úr Verinu.
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra
námsmanna frestaði á fundi
sínum í gær afgreiðslu tillagna
fulltrúa ríkisstjórnarinnar í
stjórninni um breytingar á út-
lánareglum sjóðsins, sem eiga
meðal annars að hafa í för með
sér lækkun útgjalda um 300 millj-
ónir króna. Menntamálaráðherra
hefur að ósk námsmannahreyf-
inganna falið ríkisstjórnarfull-
trúunum að hefja viðræður við
námsmcnn um leiðir til að ná
fram þessum sparnaði.
Stjórn LÍN hefur þegar sam-
þykkt skerðingu námslána um
milljónir, og vanda-rækjuverksmiðja
víða um land, sem standa höllum
fæti vegna verðfalls á erlendum
mörkuðum. Loks var fjallað um
vanda fjárfestingasjóða, en fjárvönt-
un þeirra er mjög brýn.
Kapp var lagt á að Ijúka af-
greiðslu þessara mála í nótt því Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra áttu að fara til útlanda árdegis.
Tveir andarungar er nýverið
litu dagsins ljós við Tjörnina í
Reykjavík komust fljótt að því að
margt ber að varast. Þeir ákvaðu
að skoða sig um í heiminum en
ekki tókst betur til en svo að þeir
týndu mömmu sinni og villtust inn
16,7% og á fundinum í gær var
ætlunin að taka afstöðu til tillagna
ríkisstjórnarfulltrúanna um breyt-
ingar á útlánareglum, sem hefðu
300 milljóna króna niðurskurð á
útgjöldum sjóðsins í för með sér.
Þessar breytingartillögur felast
meðal annars í því, að námsmenn
yrðu að skila 100% námsframvindu
til að verða lánshæfír, að tími til
að ljúka fyrstu háskólagráðu yrði
styttur, að ákveðið þak yrði sett á
lán vegna skólagjalda erlendis og
að einstaklingar fengju sömu upp-
hæð að láni hvort sem þeir búa í
foreldrahúsum, í leiguhúsnæði eða
eigin húsnæði, búi foreldrar á náms-
stað. í tillögunum felst einnig, að
lán til einstaklinga í foreldrahúsum
yrðu 75% af láni til einstaklings í
leiguhúsnæði í stað 50% nú og að
tekjutillit til skerðingar á láni yrði
lækkað úr 75% í 50%.
Fulltrúar samstarfsnefndar
námsmannahreyfinganna, Stúd-
entaráðs Háskólans, Bandalags
íslenskra sérskólanema og Sam-
bands íslenskra námsmanna erlend-
á svokallað Hallærisplan. Það
varð þessum litlu hnoðrum til
bjargar að umhyggjusamir veg-
farendur kölluðu til tvo lögreglu-
þjóna sem tókst eftir smá elting-
arleik að handsama móðurlausa
ungana og koma þeim aftur á flot.
is, gengu á fund Ólafs G. Einarsson-
ar, menntamálaráðherra, í gær og
færðu honum bréf, þar sem farið
er fram á, að ekki verði gerðar
neinar þær breytingar á úthlutunar-
reglum sjóðsins, sem ekki sé sam-
staða um milli fulltrúa ríkisins og
námsmanna. Þar bjóðast fulltrúar
námsmannahreyfmganna einnig til
að ganga til samninga um 200 til
300 milljóna króna spamað hjá
sjóðnum miðað við óbreyttar úthlut-
unarreglur.
Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, segir að hann hafi í
kjölfar þessa erindis beitt sér fyrir
því, að á stjórnarfundi LIN í gær
yrði ekki tekin ákvörðun um neinar
breytingar. Jafnframt hefði hann
falið fulltrúum ríkisins í stjórninni
að ræða við námsmenn um leiðir
til að ná fram þessum sparnaði.
Hann hefði hins vegar greint frá
því um leið, að nefnd á sínum veg-
um myndi vinna að endurskoðun
iaga um LÍN í sumar og frumvarp
til breytinga á þeim kynni að verða
lagt fram á þingi í haust.
Stjórnin ræðir milljarða-
vanda fyrirtækja o g sjóða
» Ríkisstjórnin hélt aukafund í gærkvöldi um fjárhagsvanda nokkurra
fyrirtækja og fjárfestingasjóða. Unnið er að lausn þessa vanda, sem
skiptir „býsna mörgum milljörðum króna,“ eins og Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra orðaði það í samtali við Morgunblaðið laust eftir
miðnætti, en þá sátu ráðherrar enn á fundi.
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
lagði Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra fram skýrslu um stöðu fisk-
eldisfyrirtækja og leiðir til lausnar.
Málið var ekki útrætt og var það
tekið upp aftur á fundinum í gær-
kvöldi.
Þá fjallaði ríkisstjórnin um fjár-
hagsvanda Síldarverksmiðja ríkisins,
sem skulda um_l,3 milljarða króna,
fjárhagsvanda Álafoss hf., en eigið
fé fyrirtækisins er neikvætt um 600