Skírnir - 01.04.1910, Side 92
188
Frá útlöndum.
litlu áður, en kendi veikinda, hélt heim og andaðist eftir nokkra
daga. Við konungdóminum tók þá elsti sonur hans og nefnist
hann Georg V. Hann er hálffimtugur, fæddur 3. júní 1865.
Játvarður konungur var fæddur 9. nóv. 1841. Hann var á
60. ári, er hann kom til ríkis, og sat að völdum að eins rúm 9 ár.
Hann kom til ríkis eftir móður sína, Victoríu drotningu, er dó 22.
jan. 1901, en kryning hans dróst vegna veikinda til sumarsins
1902. Faðir Játvarðar konungs og maður Victoríu drotningar var
Albert prinz af Sachsen-Koburg-Gotha. Hann andaðist 1861. Ját-
varður kvæntist 10. marz 1863 Alexöndru prinsessu frá Danmörku
elstu dóttur Kristjáns konungs IX. og systur núríkjandi konungs
okkar, Friðriks VIII. Hún var rúmum þrem árum yngri en Ját-
varður konungur, og lifir hann, fædd 1. des. 1844. Elsti sonur
þeirra, Albert Victor, sá er konungdóminn átti að erfa að föður
sínum látnum, andaðist 28 ára gamall 14. jan. 1892. Næstur að
aldri var George Frederick Ernest Albert, sá er nú er orðinn kon-
ungur undir nafninu Georg V. Þrjár dætur þeirra Játvarðar kon-
ungs og Alexöndru drotningar eru á lífi. Sú elsta, Louise, er
gift hertoganum af Fife; önnur, Victoria, er ógift. En sú yngsta,
Maud, er gift Hákoni VII. Noregskonungi. Sjötta barnið var
sonur, er dó á öðru dægri eftir fæðinguna.
Játvarður konungur hefir getið sér gott et'tirmæli. Hann var
vinsæll þjóðhöfðingi og vel metinn þau fáu ár, sem hann var kon-
ungur Bretaveldis. Enda var hann orðinn vel reyndur, þegar
hann kom til ríkis. A efri árum Victoríu drotningar, móður sinn-
ar, kom hann oft fram í hennar stað við yms tækifæri; var því
alþektur og oft umtalaður áður en hann tók sjálfur við fyrir fult
og alt.
A yngri arum hafði hann verið íþróttamaður og gleðimaður,
og hið síðara jafnvel meira en góðu hófi þótti gegna. En hann
var gáfaður og hafði fengið hið bezta uppeldi; var við nám í fræg-
ustu háskólum Englands, í Edinborg, Cambridge og Oxford. Það
er sagt, að faðir hans hafi einkum gert sér mjög mikið far um að
vanda uppeldi hans. Síðan ferðaðist Játvarður víða um heim, um
Bandaríkin og Canada 1860, síðan um Grikklaud, Egyftaland og
Palestínu, og til Indlands 1875. Eftir að hann kvæntist, dvöldu
þau hjónin oft í Danmörku tíma og tírna.
A Englandi hefir heill kafli í sögu ensku þjóðarinnar hlotið
nafnið »Victoríu-tímabilið«, og er kent við Victoríu drotningu.
Hún fór með konungsvaldið í Englandi f nær 64 ár. Fyrirmynd-