Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988. Viðskipti Hráolía úr Norðursjó er nú við 14 dollara múrinn Ilráollan er enn að lækka í verði. Tegundin Brent úr Norðursjónum bíður færis við 14 dollara múrinn. 'Tunnan af henni var seld á um 14,40 dollara í fyrradag á dagmarkaðnum í Rotterdam. Brent er sú tegund hrá- olíu sem DV hefur birt reglulega verö á í vetur. En til er ódýrari hráolía en Brent á markaðnum. Það er hrá- olían sem kennd er við Dubai. Hún var í fyrradag skráð á 13 dollara tunnan. Ástæðan fyrir þessu lága olíuverði er offramboð á olíu. Furst- unum í OPEC hefur einfaldlega ekki tekist að skrúfa fyrir kranann. Þeir framleiöa meira en þeir hafa fundað um að gera. DV birtir hér línurit af verði hrá- oliu í vetur en í október síðastliðnum hóf blaðið að birta reglulega á fimmtudögum verð á erlendum mörkuðum. Þetta línurit er því saga vetrarins á verði hráohunnar. Sagan hófst á 19 dollurum tunnan. Nú er verðið um 14,40 dollarar. Sagan á milli er línuritið. Miöað við Dubai- oMuna, sem er komin í 13 dollara, má búast við áframhaldandi lækkun á hráolíu. Það vekur athygli að bensín, sem hefur ævinlega gífurlega tilhneig- ingu til að hækka í verði á þessum árstíma og rís hæst yfir sumarið, er nú fariö að lækka í verði eftir að hafa farið hækkandi að undanfórnu. Þetta bendir til að unnar oMuvörur séu famar að lækka í verði vegna lægra verðs hráolíunnar. Að sjálf- sögðu fylgir verð fullunninna olíu- vara alltaf verði hráolíunnar þegar til lengdar lætur. Lækki hráoMuveröið frekar, eins og margir spá, kemur að því að ýms- ar olíuMndir gefa of lítið af sér að mati eigenda. Þá eru líkur á að olíu- lindunum verði lokað og framleiðslu hætt. Þá minnkar framb.oð og verðið hækkar en það þýðir aftur að olíu- lindirnar verða opnaðar á ný. -JGH Verð á hráolíu Svona er sagan í vetur. Verð á hráolíu hefur lækkað úr 19 dollurum i rúma 14 dollara fyrir tunnuna. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeirveróa fullra 16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður sínar meö 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn- legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri -frá lífeyris- sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 25% og ársávöxtun 25%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 20% en 3% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 29%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérs- taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á*þriggja mánaða fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 29% nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Vextir færast hálfsárslega. Metbók er með hvert innlegg bundiö í 18 mán- uði á 30,5% nafnvöxtum og 32,8% ársávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs- árslega. lönaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og 32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru 4%. Á sex mánaða fresti eru borin saman veró- tryggó og óverðtryggð kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega á höfuóstól. 18 mánaða bundinn reikningur er með 32% nafnvöxtum og 32% ársávöxtun. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meó 32% nafnvöxtum og 34,1% ársávöxtun. Af óhreyfð- um hluta innstæðu frá síöustu áramótum eða stofndegi reiknings síöar greiðast 33,4% nafn- vextir (ársávöxtun 36,2%) eftir 16 mánuði og 34% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 36,9%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær- ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: llávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 22%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6 mánuði 33%, eftir 24 mánuði 35% eða ársávöxt- un 38,06%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um há- vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 34% nafn- vexti og 36,89% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 28,82% (ársávöxtun 30,16%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni bætt við höfuðstól, en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 19%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tek- ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá j 30,75-32,55%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin- reglan er að innistæða, sem er óhreyfó í heilan ársfjórðung, ber 25,0% nafnvexti, kaskóvexti, sem gefa 27,44% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuöstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í ársfjórðungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef hún stendur óhreyfð út fjórðunginn. Reikning- ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil- yröum. Sparisjóöir: Trompreikningur er verðtryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 4,0 nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svoköll- uðum trompvöxtum, sem eru nú 26% og gefa 28,17% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 19% Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er meö innstæðu bundna í 12 mánuði.óverð- tryggða, en á 29,5% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 5,0% vöxtum, borin saman við óveró- tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóða er með innstæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 27~5% nafnvöxtum og 29,93% ársávöxtun eða á kjör- um 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 5,0% vöxtum. Vextirfærast á höfuðstól misseris- lega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufiröi, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes- kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verö- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum' skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð- tryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins getur numið 2.898.000 krónum á 1. ársfjórð- ungi 1988, hafi viökomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 2.028.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.420.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóði. eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum, algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö- ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn- ir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin veröur því 10%. Só innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán- uöi. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæö leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð- ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,8% á mánuöi eöa 45,6% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala fyrir mars 1988 er 1968 stig en var 1958 stig í febrúar. Miðað er við grunn- inn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala fyrir mars 1988 er 343 stig á grunninum 100 frá 1983, en 107,3 á grunni 100 frá júlí 1987. Húsaleiguvísitala hækkaði um 9% 1. jan. Þessi vísitala mæliraöeins hækkun húsaleigu þarsem við hana er miðað sérstaklega í samningum leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 19-20 Ib.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 19-23 Ab.Sb 6mán. uppsögn 20-25 Ab 12mán.uppsögn 21-28 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8-12 Sb Sértékkareikninqar 9-23 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn 3,5-4 Ab,Úb, Lb.Vb, Bb.Sp Innlán meðsérkjörum 19-28 Lb.Sb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 5,75-7 Vb.Sb Sterlingspund 7,75-8,25 Úb Vestur-þýsk mörk 2-3 Ab Danskarkrónur 7,75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv) 29,5-32 So Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 31-35 Sp Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-36 Sp Utlán verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 30,5-34 Bb SDR 7,75-8,25 Lb.Bb, Sb Bandaríkjadalir 8,75-9,5 Lb.Bb, Sb.Sp Sterlingspund 11-11,5 Úb.Bb, Sb.Sp Vestur-þyskmörk 5-5,75 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán. MEÐALVEXTIR óverðtr. feb. 88 35,6 Verðtr. feb. 88 9,5 ViSITÖLUR Lánskjaravísitala mars 1968stig Byggingavisitala mars 343 stig Byggingavísitala mars 107,3 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3927 Einingabréf 1 2,670 Einingabréf 2 1,555 Einingabréf 3 1,688 Fjölþjóðabréf 1,342 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,672 Lífeyrisbréf 1.342 Markbréf 1,387 Sjóðsbréf 1 1,253 Sjóösbréf 2 1,365 Tekjubréf 1,365 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 130 kr. Eimskip 384 kr. Flugleiðir 255 kr. Hampiðjan 138 kr. Iðnaðarbankinn 155 kr. Skagstrendingurhf. . 189 kr. Verslunarbankinn 135 kr. Útgeröarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lönaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Hröðum akstri fylgir: öryggisleysi, orkusóun og streita. Ertu sammála? L_ yUMFERÐAR RÁÐ Verð á erlendum mörkuðum Bensín og olía Rotterdam, fob. Bensín, venjulegt..145$ tonnið eða um.......4,30 ísl. kr. Mtrinn Verð í síðustu viku Um.................146$ tonnið Bensin, súper......167$ tonnið eða um.......4,90 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um...............166,50$ tonnið GasoMa...........132,50$ tonnið eða um.......4,38 ísl. kr. lítrinn Verð í síöustu viku Um......................133,50$ tonnið Svartolía................77,50$ tonnið eða um.......2,78 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um..........................77$ tonnið Hráolía Um...............14,40$ tunnan eða um......560 ísl. kr. tunnan Verð í síðustu viku Um...............14,50$ tunnan Gull I.ondon Um.........................447$ únsan eða um.....17.338 ísl. kr. únsan Verð í síöustu viku Um................ 432$ únsan Ál London Um....1276 sterlingspund tonnið eöa um.....91.872 ísl. kr. tonnið Verð i síðustu viku Um....1300 sterlingspund tonnið Ull Sydney, Ástralíu Um.........11,90 dollarar kílóið eöa um........463 ísl. kr. kílóið Verð i síðustu viku Um..............11,75 dollarar kílóið Bómull New York Um............63,20 cent pundið eða um.........54 ísl. kr. kílóiö Verð í síðustu viku Um..............61 cent pundið Hrásykur London Um..........220 dollarar tonnið eða um*.....8.558 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um..........229 dollarar tonnið Sojamjöl Chicago Um........183,50 dollarar tonnið eða um......7.138 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um......... ..187 dollarar tonnið Kaffibaunir London Um.............120,64 cent pundið eða um........103 ísl. kr. kílóið Verð i síðustu viku Um............121,6 cent pundið Verð á íslenskum vömm eriendis Refaskinn Khöfn, febr. Blárefur.........298 d. kr. Shadow............299 d. kr. Silfurrefur.......692 d. kr. Bluefrost........312 d. kr. Minkaskinn Khöfn, febr. Svartminkur.......220 d. kr. Brúríminkur......227 d. kr. Grásleppuhrogn Um....1100 þýsk mörk tunnan Loðnumjöl Um........540 dollarar tonnið Loðnulýsi Um........310 dollarar tonnið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.