Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988.
ttinn þinn
Því fé sem þú borgar í skatta er
I ekki kastað á glæ. Skattpen-
ingana þína færð þú til baka,
margfaldlega ávaxtaða í formi félags-
legrar þjónustu sem þú og allir sam-
borgarar þínir njóta góðsaf. Skattar
eru hluti af tekjuöflunarkerfi ríkis-
sjóðs og fyrir þær tekjur byggir hið
opinbera upp réttlátt og mannúðlegt
velferðarþjóðfélag sem allir geta
verið stoltir af.
Við búum í
velferðgrþjódfélagi
✓
Islendingar eru vinnusöm, harð-
dugleg og kröfuhörð þjóð. Fáir geta
fullyrt með sterkari rökum en við að
hvergi á jörðinni sé betra að búa. Við
erum stolt af landi okkar, uppruna og
stöðu í samfélagi þjóðanna. Um aldir
vorum við kúguð og kaghýdd en höf-
um af eigin rammleik byggt upp á
liðnum áratugum sjálfstætt fyrir-
myndarþjóðfélag þar sem öllum er
minna mega sín er tryggt öruggt lífs -
viðurværi.
Við verðum að halda vörð um
þetta- grundvallaratriði og bera jafn-
harðan í brestina, loka leiðum þeirra
sem reyna að svíkjast undan sam-
hjálpinni. Það er siðferðileg skylda
okkar að tryggja öllum jafnan aðgang
að allsnægtarborðinu. Það gerum við
meðal annars með sköttunum okkar.
Skattkerfis-
breytingarnar tryggjg
jðfnuð og réttlæti
Þeim skattkerfisbreytingum sem
nú hefur verið komið á er ætlað að
tryggja þessa undirstöðu. Þeim er
ætlað að stuðla að auknum stöðug-
leika bg jöfnuði í þjóðfélaginu.
Breytingarnar munu treysta fjárhags-
legar undirstöður velferðarríkisins,
koma á réttlátari tekjuskiptingu,virk-
ara skattaeftirliti og uppræta skatt-
svik ýmissa forréttindahópa. Upp-
skeran verður skilvirkara skattkerfi
sem allt heiðarlegt fólk hagnast á.
Hærri
ráðstöfunartekjur,
öruggari framtíð
VELFERÐ FYRIR ÞIG
Breytingarnar birtast m.a. í hærri
barnabótum og barnabótaauka,
hærri lífeyrisgreiðslum, hærri skatt-
frelsismörkum, lægri tollum á nauð-
þurftum, lægri vörugjöldum, sterkara
söluskattskerfi og minni verðbólgu.
Ráðstöfunartekjur heimilanna auk-
ast og ríkisvaldið hefur meira fé til að
byggja upp öflugt menntakerfi, heil-
brigðiskerfi, samgöngukerfi og marg-
háttaða menningarstarfsemi og ótal
margt fleira sem nýtist öllum þjóðfé-
lagsþegnum um ókomin ár.
Nýja skattkerfið tryggir að þú færð
peningana þína tii baka.
FJARMAIARAÐUNEYTIÐ