Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1995, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 1995
Fréttir
Ríkissaksóknari leggur fram heldur óvenjulegar staöreyndir í sakamáli:
Tannför konu í húð ákærða
talin sönnun um nauðgun
- karlinn neitar en tannlæknir staðfestir tannför konunnar á honum
Manni, sem gefin er aö sök hrotta-
leg nauðgun, sem samkvæmt ákæru
átti sér stað við Rauðavatn síðastliðið
sumar, og neitar alfarið að um náin
kynni við konuna sem kærði verkn-
aðinn hafi verið að ræöa, á nú í vök
að verjast því ríkissaksóknari hefur
lagt fram til sönnunar álit tannlækn-
is sem telur að tannför í huð manns-
ins séu eftir konuna sem kærði hann.
Þegar íbúar í Reykási við Rauða-
vatn voru að fara að taka á sig náðir
síðla kvölds í júlí síðastliðnum kom
þangað kona skyndilega sem óskaði
í örvæntingu eftir hjálp. Hún var
blóðug, föt hennar rifin og svo virtist
sem hún hefði beinbrotnað. Við
læknisrannsókn kom í ljós að hún
hafði höfuðkúpubrotnað og ökkla-
brotnað. Konan lagði fram nauðgun-
ar- og líkamsárásarkæru á hendur
karlmanni - kunningja hennar og
sambýlismanns hennar.
Konunni sagðist svo frá að þetta
laugardagskvöld hefði kunninginn
komið á heimili hennar og sambýlis-
mannsins í Reykjavík. Áfengi hefði
verið haft um hönd en þegar líða
hefði tekið á kvöldið hefði maður
hennar lagt sig en hinn gestkomandi
vinur hans þá farið ásamt sambýhs-
konunni í bíltúr. Konan sagði að
maðurinn hefði ekið með sig að ná-
grenni Rauðavatns. Þar heföi hann
ráðist harkalega aö henni, rifið utan
af henni fötin og nauðgað þegar hún
vildi ekki láta að vilja hans.
Maðurinn var handtekinn um nótt-
ina samkvæmt ábendingu konunnar
en hann neitaði þvi sem á hann var
borið - hann viðurkenndi að þekkja
fólkið en neitaði umræddum bíltúr
að Rauðavatni, ofbeldi og kynferðis-
legum athöfnum með konunni. Menn
dóu ekki ráðaiausir því fljótlega
benti konan á tannför sín í holdi
ákærða enda hefði hún barist um á
meðan á árásinni stóð. Þegar að var
gáð komu í ljós tannför og var beðið
um samanburðarálit tannlæknis á
tannförunum og tönnum konunnar.
Áht hans var á þá leið að förin pöss-
uðu við tennurnar.
Dómur gengur í málinu innan
skamms í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Réttarhöldin hafa verið haldin fyrir
luktum dyrum samkvæmt venju í
kynferðisbrotamálum.
-Ótt
Stuttar fréttir
Á batavegi eftir snjóflóðið í Súðavik:
Hundleiðist í kennaraverkfallinu
- segir Elma Dögg Frostadóttir
Reynir Traustason, DV, Súöavík:
„Ég er enn í sjúkraþjálfun og á eft-
ir þijár vikur. Ég fer til ísafjarðar í
þjálfun annan hvem dag. Mér er að
batna en ég á enn erfitt með að sofna
á kvöldin," segir Elma Dögg Frosta-
dóttir í Súðavík sem liföi af 15 tíma
grafin í fönn eftir að snjóflóðið féll á
Súðavík.
Elma var flutt til Reykjavíkur á
sjúkrahús afFjórðungssjúkrahúsinu
á ísafirði þremur dögum eftir slysið
vegna þess að nýru hennar urðu
óstarfhæf. Hún lá á Landspítalanum
í mánuð og er nú komin heim til
Súðavíkur. Hún og fjölskylda hennar
búa í nýju sumarhúsi við „Bústaða-
veginn“ í Súðavík. Hún segist hafa
lítið við að vera vegna kennaraverk-
fallsins.
„Mér hundleiðist í verkfalhnu og
vona aö það fari að leysast," segir
Elma Dögg.
Elma Dögg fyrir utan hið nýja heimili sitt við „Bústaðaveginn" í Súðavík. Hún er nú óðum að ná heilsu eftir ham-
farirnar en hún lá grafin í fönn í 15 tíma. DV-myndBG
Börn og augiýsingar
Samkeppnisstofhun beinir
þeim tilmælum til Ríkisútvarps-
ins og kvikmyndahúsa að ekki
komi fram í auglýsingum atriði
sem haft geti slæm áhrif á börn
eöa unglinga.
Hatiðnaoarmenrttunda
Hreyflng er á samningum raf-
iðnaðarmanna og ríkisins. Nýr
fundur var boðaöur í dag sam-
kvæmt RÚV.
íslenska útvarpsfélagið skilaði
181 mihjón króna í hagnað í fyrra.
Þetta er fimmta árið sem fyrir-
tækið hagnast.
SeitíBoston
Fjölmargir sölusamningar ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja
eru í burðarliðnum eftir sj ávarút-
vegssýninguna í Boston. Stöö 2
skýrði frá þ’essu.
LeiKarariverKtan
Leikarar hjá RÚV haía boðað
verkfaU eftir að slitnaði upp úr
samningum þeirra og Rikisút-
varpsins.
íslandsbanki skUaði 185 mUU-
ónum í hagnað á síðasta ári.
Helstu ástæður hagnaðar eru
minnkandi afskriftir skv. Stöð 2.
UÚóttastsJómenn
Útgerðarmenn óttast samtaka-
mátt sjómanna. Þetta er haft eftir
Helga Laxdal í Tímanum í gær
þar sem hann ræðir fyrirhugaðar
verkfallsaðgeröir. -rt
Byssumaður
handtekinn
Lögreglan handtók í gær mann sem
hringdi í lögreglu og hótaði að myrða
vinnuveitanda sinn og fyrrum sam-
býhskonu.
Símtal mannsins, sem sagðist vera
með skammbyssu og haglabyssu, var
rakið og hann gafst upp eftir tveggja
tíma viðræður við lögreglu. Þá kom
hann út með byssu í hönd sem reynd-
ist vera loftskammbyssa. Maðurinn,
sem að sögn lögreglu var langdrukk-
inn, var vistaöur í fangageymslu í
nótt. -pp
Förumaf
krafti í „síld-
arsmuguna“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum harðir á því að fara í
Smuguna þegar sá tími kemur í vor
og ná þar í afla fyrir 3-4 milljarða,“
segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar og talsmaöur útgerðar-
manna sem stunda úthafsveiðar.
„Ég hef ekki nokkra trú á því að
það verði póhtískur þrýstingur á
okkur að fara ekki þangað en ef svo
vildi til að viðræður á milh landanna
væru í gangi og á einhverjum enda-
punkti myndu menn sjálfsagt taka
tilht til þess. Ég sé hins vegar ekkert
sem bendir til þess að sú staða komi
upp.
Annars er Smugan ekkert aðalat-
riði um þessar mundir, síldin kemur
á undcm og hugsanleg veiði í „síldar-
smugunni". Ef viö finnum síldina þar
í veiðanlegu horfi veiðum við hana
að sjálfsögðu af krafti," segir Jóhann.
Sérfræöingar hyggjast kæra tilvísanakerfið til umboðsmanns eða dómstóla:
Allt í hnút í tilvísanadeilimni
- ráðherra segir kerfið taka gildi og sjúklingum verði vísað á sjúkrastofnanir
Sérfræðingar íhuga nú að kæra
tilvísanakerfið til umboðsmanns
Alþingis eða dómstóla. Ráðherra
fagnar slíku en honum barst fyrir
helgi bréf frá sérfræðingum þar
sem óskað var eftir viðræðum en
með þeim skilyröum að ráðherra
frestaði gildistöku reglugerðar um
tilvísanakerfi. Ráðherra féhst ekki
á það og hefur því shtnað upp úr
viðræðum sem staðið hafa í mán-
uði.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í gær að ljóst
væri að sérfræðingar væru ekki
tilbúnir að vinna fyrir íslenska rík-
ið á sama grundvelh og samþykkt
heföi verið á Alþingi og undir sömu
formerkjum og aðrir starfsmenn
hins opinbera. Með hugmyndum
þeim sem þeir vörpuðu fram meö
bréfi til sín, sem meðal annars fel-
ast í einkavæðingu heilsugæslu-
stöðva og því aö fela starfandi
læknum og sérfræðingum rekstur
þeirra, hljóti menn að heyra hringl-
ið í peningakassa þeirra.
Þessu mótmæla sérfræðingar
harðlega og segja að það vaki ekki
fyrir ráðherra að ná fram spamaði
meö aðgerðunum heldur að leggja
niður sjálfstæðan stofurekstur
lækna og koma starfsemi þeirra
inn á göngudeildir eða heilsu-
gæslustöðvarnar. í raun sé veriö
að færa stjómsýsluvald til heilsu-
gæslulæknanna sem eigi að þjóna
tveimur herrum, ríkinu og sjúkl-
ingunum. Þarna sé um hags-
munaárekstur að ræða og því eðli-
legt að láta dómstóla fjalla um
máhö.
Ljóst er að frá 1. maí verður tilvís-
anakerfið í gildi og sjúklingar geta
eftir sem áöur leitað til sérfræöinga
gegn tilvísun; þá inn á sjúkrastofn-
anir en ekki stofur þeirra þar sem
nær alhr þeirra séu launamenn hjá
íslensku þjóðinni. Læknar vísa til
niðurskurðar og fjárhagsástands
sjúkrahúsanna og telja víst að þau
ráði ekki við allt að 400 þúsund
nýjar komur árlega. Ráðherra sé á
vilhgötum. _„D