Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1995, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 1995
5
Nýkomnar
vörur frá Danmörku
m.a. bókahillur og sófaborð
Antikmunir
Höskuldur B. Erlingsson lögregluvaröstjóri við nýja bilinn.
DV-mynd Guðfinnur
Losuðu sig við bílinn' dýra:
Nýr löggubíll á Hólmavík
Raufarhöfn:
Trillukarlar
i sifelldum
vanda
Gyifi Kiisljánsson, DV, Akureyri:
Trillukarlar á Raufarhö&i hafa
búið við nær samfellda ótíð síðan
í október og þegar við hafa bæst
banndagar krókaleyfisbáta má
segja aö þeir hafi ekki komist á
sjó síðan í október.
Gunnlaugur Júhusson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, segir að
vissulega hafi þetta komið sér
illa. Veiðar krókaleyfisbáta á
Suðvestur- og Vesturlandi hafi
gengið ágætlega i vetur og þar
sem krókaleyfisbátar veiði úr
sameiginlegum kvóta þýði það að
mjög litið sé eftir fyrir trillukarla
á Norðurlandi fari svo að tíðarfar
batni.
Trillukarlamir á norðaustur-
hominu hafa nú snúið sér aö
hefðbundnum grásleppuveiðum.
Sanmkvæmt upplýsingum bæði
frá Raufarhöfn og Þórshöfn eru
þeir lítið byrjaðir að vitja um
netin enn sem komið er en hafa
þó orðið varir við grásleppuna í
fyrstu vitjunum sínum og fengið
„reyting" eins og sveitarstjórinn
á Raufarhöfn orðaði það.
Guðfinnur Fiimbogason, DV, Hólmavik:
Umdæmi lögreglunnar á Hólmavík
hefur nú losað sig við bíl þann sem
starfsmenn Ríkisendurskoðunar
gerðu við fjölmargar athugasemdir
við gerð ríkisreiknings fyrir áriö
1993. Keyptur hefur verið nýlegur
bíll af gerðinni Toyota sem vonast
er til að reynist hagkvæmari í rekstri
en sá sem fyrir var.
Fréttir
Fjórir piltar bjarga ósyndum Japana frá drukknun í Bláa lóninu:
Vissum ekki hvort hann
var Itfs eða liðinn
- segir einn piltanna - grunn laug afmörkuð í lóninu
„Við sátum þarna íjórir saman úti í
og vorum aö kjafta saman. Allt í einu
sáum viö konu veifa og kalla til okk-
ar. Síðan sáum við í höfuðið á ein-
hverjum sem lá þarna úti í og við
syntum á fullu til þeirra. Þegar við
komum til þeirra lá maðurinn með
andhtiö á kafi, hnakkinn stóð aðeins
upp úr. Við tókum undir hendurnar
á honum og syntum og drógum hann
að landi. Við vissum ekki hvort hann
var dáinn eða lifandi. Hann var al-
gjörlega máttlaus," segir Gestur B.
Gestsson, tvítugur baðgestur í Bláa
lóninu síðastliöinn fostudag.
Þeim tókst að koma manninum,
sem reyndist Japani á sextugsaldri,
að landi og komu honum í læsta hlið-
arstellingu til að hann gæti andað
hindrunarlaust. Gestur segir að erf-
iðlega hafi gengið að fá aðstoð starfs-
fólks. Hún hafi ekki borist fyrr en
eftir að þeir höfðu tvívegis hlaupið
inn í baðhúsið en enginn virtist vera
staddur þar í fyrra skiptið. Maðurinn
hafi kastað upp vatni sem hann hafi
gleypt og svo hafi læknir, sem starfar
hjá Bláa lóninu, komið og tekið við
manninum. Sjúkrabíll hafi komið
stuttu síðar og flutt manninn í
sjúkrahús.
Gestur gagnrýnir að enginn lög-
regluskýrsla hafi verið tekin og jafn-
framt hve htil gæsla virðist vera á
staðnum tii að bregðast við í svona
tilviki. Hann viti í raun ekki hvort
maðurinn, sem hann og félagar hans
björguðu, sé lífs eða liðinn.
Að sögn lögreglu í Grindavík, sem
kom á staðinn með sjúkrabílnum,
var ekki talin ástæða til að taka
skýrslu. Hins vegar sé tekin skýrsla
ef viðkomandi óski þess seinna og
þá fari fram lögreglurannsókn.
Vaktmaður brá sérfrá
Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, sagði í
samtah við DV að maðurinn heíði
verið ósyndur. Þrátt fyrir aðvörun-
arskilti uppi um alla veggi baðhúss-
ins hefði hann farið út í mitt lónið
þar sem hann náði ekki til botns,
enda japanskur og skilið lítið sem
ekkert í texta viðvörunarskiltanna.
Þegar slysið átti sér stað hefði vakt-
maður, sem á að vera öllum stundum
á vakt þegar einhver er í lóninu,
brugðið sér frá til að sinna öðrum
erindum. Drengimir sem komið
hefðu að manninum hefðu unnið
gott starf. Maðurinn hefði náð heilsu
á ný.
Grímur segir að í kjölfar þessa at-
viks verði enn betur brýnt fyrir vakt-
mönnum að starf þeirra sé ekki af-
gangsstærð. Enn fremur hafi verið
ákveðið að girða af hluta lónsins,
næst baöhúsinu, til að mynda eins
konar grunna laug. Grímur segir að
lögregluskýrsla hafi ekki skýrt betur
atvik málsins enn sem komið er.
Staðreyndirnar hggi fyrir og bætt
verði úr þeim hlutum sem miður
fóru.
-PP
★ ★ ★ ★
Mestselda
ameríska dýnan
á Islandi
★ ★ ★
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 ■ 112 REYKJAVÍK ■ SÍMI 91-871199
tímarit fyrir alla
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT í
SÍMA 563 2700
Endurreisn heimilanna
Við viljum:
► setja lög um greiðsluaölögun sem gefi einstaklingum í alvarlegum
greiðsluerfiöleikum möguleika á því að ná aftur stjórn á fjármálum sínum,
► iengja húsnæðislán Húsnæðisstofnunar úr 25 árum í 40 ár og létta
þannig greiðslubyrðina um 25%,
► fá Húsnæðisstofnun nýtt og breytt hlutverk sem ráðgjafar- og
endurreisnarstöð heimilanna sem aðstoði fólk við að greiða úr
skuldavanda sínum.
Finnur Ingólfsson