Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1995, Blaðsíða 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 1995
Iþróttir unglinga
Fyrirliði 4. flokks FH, Brynja Jóns-
dóttir, fagnar sigri.
DV-myndir Hson
Bikarmeistarar FH í handknattleik 4. flokks 1995. Liðið er þannig skipað: Inga Pétursdóttir (12), Guðbjörg Helgadóttir (1), Brynja Jónsdóttir fyrirliði (10),
Hanna V. Þorsteinsdóttir (13), Gunnur Sveinsdóttir (6), Hafdis Hinriksdóttir (3), Júlia Björnsdóttir (7), Ósk Guðmundsdóttir (9), Elín Jóhannsdóttir (5),
Karen Guðmundsdóttir (2), Inga Rún Björnsdóttir (11), Linda Thorarensen (4) og Hrönn Árnadóttir (8). Þjálfari stúlknanna er Viðar Símonarson.
Bikarkeppni HSÍ í 4. flokki kvenna:
FH-stelpurnar voru bestar
- sigraðu Fram 7-4 í spennandi og skemmtilegum úrslitaleik í Austurbergi
FH-stúIkurnar urðu bikarmeistar-
ar í handknattleik með 14-12 sigri
gegn Fram í úrslitaleik - staðan í
hálíleik var 7-4 fyrir FH. Um tíma
hafði FH 6 marka forystu og voru
einfaldlega sterkari aðilinn í þessum
leik. FH-liðið missti aðeins taktinn
þegar um 10 mínútur voru til leiks-
loka. Lokastaðan varð 14-12 fyrir FH
stelpurnar eru góðar og ógnuðu
nokkuð undir lokin en urðu að játa
sig sigraðar að þessu sinni.
Mörk FH: Hafdís Hinriksdóttir 5
mörk, Hanna Þorsteinsdóttir 4, Júlía
Björnsdóttir 2, Karen Guðmunds-
dóttir 1, Gunnur Sveinsdóttir 1 og
Brynja Jónsdóttir 1 mark.
Umsjón
Halldór Halldórsson
mörk, Katrín Gunnarsdóttir 3, Gréta
M. Grétarsdóttir 2, Ingibjörg Jó-
hannsdóttir 2, Þóra G. Haraldsdóttir
1 og Bjarney Ólafsdóttir 1 mark.
Vorum of sigurvissar
Brynja Björk Jónsdóttir, fyrirliði 4.
flokks FH, var ekki alveg nógu sátt
með leik FH:
„Við vorum kannski of sigurvissar
og það er alltaf hættulegt. Við áttum
að sigra með 5-6 marka mun. Við
komum til með að laga þessa hluti
og setjum hiklaust stefnuna á ís-
landsmeistaratitil," sagði Brynja
Björk.
sem eru sanngjörn úrslit. Fram- Mörk Fram: Aníta Ólafsdóttir 3
Bikarkeppni HSI í 3. flokki karla:
Sanngjarn sigur KR-strákanna
KR varð bikarmeistari í 3. flokki
karla í handknattleik, sigraði FH í
úrslitaleik, 19-16, og var staöan i
hálíleik 6-3 fyrir FH. í síðari. hálf-
leik komst KR-liðið virkiiega t gang
og náði forystu sem dugði því til
sigurs.
Otrúlegt
Haraldi Þorvarðarsyni, fyrirliða 3.
flokks KR, fannst sigurinn ótrúleg-
ur:
„Það er ótrúlegt að okkur skyldi
takast að sigra. Jóhann Þorláksson
fékk að sjá rauða spjaldið i fyrri
hálfleik og Gylfi Gylfason fékk
einnig að sjá það rauða undir lok
leiksins og kom þetta mjög niður á
leik okkar - en við sigruöum þrátt
fyrir þetta og sýndi liðið miög góð-
an „karakter". Við höfum unniö
það áöur í deúdarkeppninni.
Mörk KR: Gylfi Gylfason 6 mörk,
Kristján G. Þorsteinsson 4, Ágúst
Jóhannsson 4, Haraldur Þorvarð-
arson 2, Hörður Gylfason 2 og Jó-
hann Þorláksson 1 mark.
Mörk FH: Stefán Guðmundsson 5
mörk, Lárus Long 5, Gunnar Gunn-
arsson 3, Elfar Erlingsson 1, Hörö-
ur Hinriksson 1 og Sigurður Sig-
urðsson 1 mark. Þjálfari liösins er
Guðjón Árnason.
Fyrirlíði 3. flokks KR, Haraldur Þorvaröarson, var ánægður með sina
son fyrirliði (14), Tómas Sigmundsson (10), Jóhann Þorláksson (6), Atfreð Einarsson (8), Kristján G. Þorsteins- menn i úrslitaleiknum. „Það er góður „karakter" i KR-liöinu," sagði
son (5), Hörður Gylfason (13), Jóhann Eiríksson (3) og Björgvin Vilhjálmsson (4). Þjálfari liösins er Willum Haraldur eftir sigur gegn FH.
Þór Þórsson og liðsstjóri er Páll Vignir Jónsson.
DV-myndir Hson