Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Qupperneq 19
í heildarfóðri sauðfjár og nautgripa með kynbótum. Erlend-
ar rannsóknir hafa ekki gefið verulegar vonir í þá átt, en
hér þarf að þrautreyna, því að mikið er í húfi.
Umhverfi húsdýra.
Við það veðurfar, sem ríkir hér á landi, er þörf á vönduðum
útihúsum, en þau eru hins vegar dýr. Byggingaiðnaðurinn
hefur boðið upp á margt nýtt á undanförnum árum, en inn-
an landbúnaðar hefur fyrst og fremst staðið á að hagnýta
þær nýjungar, sem fram hafa komið. Má þar nefna tilbúin
hús og einingabyggingar. Við innréttingu er áríðandi að
breytingum verði komið við eftir á, ef þörf krefur.
Viðbrcigð húsdýra við umhverfinu þarf að kanna. Miklar
afurðir og „skynvæðing“ í rekstri geta haft óæskileg áhrif á
heilsufar dýra. Þá er sannað, að húsdýr geta verið haldin
streitu. Rannsaka þarf, hvað því veldur, en margt kemur til
greina, svo sem, hve þétt er á dýrum, brynningar- og fóðr-
unarkerfi, birta, hiti, rakastig, súrefni í andrúmslofti, gas-
myndun frá áburði o. fl.
tíarátta við búfjársjúkdóma, varúðarráðstafanir
og meðhöndlun.
Margt bendir til, að samhengi sé með vaxandi afurðum og
auknum sjúkdómum. Hjá mjólkurkúm eru efnaskiptasjúk-
dómar áberandi, svo sem doði og súrdoði, ófrjósemi, júgur-
bólga og spenameinsemdir. Þegar gripum á býli fjölgar, en
fólki við bústörf fækkar, minnkar alúðin, sem lögð verður
við hvern grip.
Eiginlegar dýralækningar verða að sjálfsögðu áfram jafn-
mikilvægar, en áherzla hlýtur um leið að vaxa á fyrirbyggj-
andi aðgerðum, en það krefst mikillar skipulagningar fram
í tímann.
H reindýrarœkt og nytjun viltra dýra.
Hreindýr eru húsdýr Lappa um norðanverða Skandinavíu,
en hér á landi teljast þau til viltra dýra. Þeim hefur þó
verið nokkur gaumur gefinn af vísindamönnum hér á landi
og sjúkdómar, sem lagzt hafa á þau, verið rannsakaðir.
21