Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 89

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 89
ar miklar og nýungarnar margar, sumar þarfar og góðar, en það hefir líka óneitanlega fyrnzt yfir sumt af því gamla, sem hefði verið full eigulegt að halda og sómt sér vel innan um nýju dýrðina. Það eru ekki aðeins sumir gamlir siðir, þjóð- siðir og gamalt búskaparlag, sem ég hef í huga, heldur er ég sérstaklega að hugsa um sumt af andlega atgerfinu hjá for- feðrum vorum, hinum elztu, um þróttinn, viljaþrekið, sjálfsbjargarlöngunina, sjálfstraustið, sem þar blasir svo að segja alls staðar við oss. Meðan þetta stóð í blóma fór allt vel. Með sjálfstraustinu og sjálfsbjargarlönguninni fylg- ir sjálfstæðisþráin og sjálfstæðið. F.n þegar þetta dvínar, þegar vér í stað þess að treysta vorum eigin kröftum, förum að skima í aðrar áttir eftir hjálp, byggja heill okkar og framtíð á öðrum, þá er sjálfstæðinu hætta búin. Það þykir ef til vill ekki prestleg kenning, en eg hika samt ekki við að halda því fram, að nauðsynlegt sé að treysta á mátt sinn og megin, innan hæfilegra takmarka, og það er fjarri því að slíkt komi í bága við trú eða kristindóm. Hjálpaðu þér sjálfur, þá hjálpar guð þér. Þessi orð ættu að standa gullnu letri skráð yfir hverjum bæjardyrum á landi voru. Það var af því að þjóðin missti traustið á sjálfri sér, að hún varð undirlægja annarrar þjóðar. Og þegar skriðið var kom- ið á, hrakaði þessu mjög, og svo var traustið á sjálfri sér orðið, um eitt skeið, lítið hjá þjóð vorri, að landsins eigin börnu báru það fram í fullri alvöru, að hin fyrstu sjálf- stæðis- og menningarskilyrði, svo sem frjáls verzlun mættu ekki veitast þjóðinni, af því það yrði henni til tjóns. F.g hygg, að það, sem oss enn vantar einna tilfinnanlegast sé einmitt sjálfstraust og sjálfsbjargarlöngun. Eg held, að þeir undirstöðusteinar undir þjóðlífi voru og framförum séu of veigalitlir, að það verði að hlúa betur að þeim, ef duga skal. Hingað til hefir ekki verið nóg að þeim gjört, eg held þvert á móti, að sumt sem kann að teljast gæði, hafi orðið til að veikja þá. Eg hygg t. d., að hinn auðveldi aðgangur, sem hér hefir oft verið að búða- og verzlunarlánum, hafi ekki orðið til að efla sjálfsbjargarlöngunina og sjálfstraust- ið, heldur líklegast til að draga úr því, og sama má eflaust 93

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.