Pressan - 12.09.1991, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. SESSáiSER 1991
9
Sigurður Geirdal, odd-
viti Framsóknarflokks,
varð óvænt sigurveg-
ari kosninganna, þrátt
fyrir að flokkurinn
tapaði fylgi. Sigurður
komst í oddastöðu og
nýtti hana til fulls.
Hann er eini bæjar-
fulltrúi síns flokks og
það dugði þonum til
að verða bæjarstjóri.
Mikill fólksflótti hefur
verið af bæjarskrif-
stofunum síðan hann
tók við sem æðsti
embættismaður
Kópavogs.
Frá því nýr meirihluti tók við völdum í Kópavogi, eftir
kosningarnar 1990, hefur sigið á ógœfuhliðina í
fjárhagsstöðu bœjarins. Fyrir stjórnarskiptin var
bœjarsjóður Kópavogs með skuldsettari sveitar-
félögum. Á fyrsta eina og hálfa starfsári
núverandi meirihluta hafa skuldir bœjarins
aukist um 1100 milljónir og stefnir í að
þœr aukist um 500 milljónir til
viðbótar á þessu ári. Fyrirtœki tengd
forystu-mönnum Sjálfstœðis-
flokksins fá bestu byggingarlóð-
irnar og jafnvel lóðir sem
búið var að lofa
Skuldirnar
aukast enn
. Allt útlit er fyrir ad skuldir
Kópavogs eigi enn eftir ad
aukast. Þegar bendir flest til
ad eytt verdi sex til sjö
hundrud milljónum króna
umfram fjárhagsáœtlun.
30. júní 1990:
30. júní 1990 voru skuldir
Kópavogs 1.244 milljónir
króna.
31. desember 1990:
31. desember 1990 voru
skuldirnar ordnar 1.850
milljónir króna. Á hálfu ári
höfdu þœr aukist um 600
milljónir.
30. júní 1991:
30. júní 1991 voru skuldirn-
ar ordnar 2.050 milljónir
króna. Þœr höfdu því aukist
um 800 milljónir á einu ári
og um tvö hundrud milljón-
ir á hálfu ári.
31. desember 1991:
Samkvœmt sex mánada
uppgjörinu stefnir í ad
skuldir Kópavogs verdi
ordnar um 2.600 milljónir í
árslok. Ef þad gengur eftir
hafa þœr aukist meira en
tvöfalt á 18 mánudum, auk-
ist um 800 til 900 milljónir
á einu ári og um nœrri
hálfan milljard á sídustu
sex mánudum þessa árs.
mundar hf. Eins á Gunnar stóran
hlut í verktakafyrirtækinu Klæðn-
ingu. Þá er hann einn af þremur
stjórnarmönnum í Armannsfelli hf.
Formaður skipulagsnefndar er
Kristinn Kristinsson byggingar-
meistari, en hann er fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í nefndinni. Fyrir-
tæki þeirra hafa komið talsvert við
sögu í rekstri bæjarins.
Formaður bæjarráðs, Gunnar I.
Birgisson, situr í stjórn Ármanns-
fells eins og áður sagði, en allt bend-
ir til að tillaga Gunnars um að Ár-
mannsfell fái lóð þar sem verða
byggðar um 250 íbúðir verði sam-
þykkt. Þessi lóð er mjög eftirsótt og
þykir einhver sú besta í landi Kópa-
vogs.
FJÖLGAR ÍBÚÐUM Á EIGIN LÓÐ
Formaður skipulagsnefndar er
Kristinn Kristinsson byggingar-
meistari. Kristinn er sjálfstæðismað-
ur. Hann fékk nýverið úthlutað
góðri byggingarlóð sem bæjarstjór-
inn, Sigurður Geirdal, hafði áður lof-
að Húsnæðisnefnd til byggingar fé-
lagslegra íbúða. Kristinn er þar í
samstarfi við annan byggingar-
meistara, Magnús Ingvarsson, sem
einnig er sjálfstæðisnmaður.
Loforð Sigurðar var ekki aðeins
munnlegt. Hann skrifaði stjórn Hús-
næðismálastofnunar bréf þess efnis
að Húsnæðisnefndin fengi um-
rædda lóð. Við lánaúthlutun til Hús-
næðisnefndar Kópavogs tók stjórn
Húsnæðisstofnunar ríkisins tiilit til
úthlutunarinnar og gaf út lánsloforð
til íbúðarbygginga á lóðinni. Þegar
Sigurður Geirdal var spurður á bæj-
arstjórnarfundi hvers vegna Hús-
næðisnefnd fengi ekki lóðina sagði
hann nefndina hafa fallið frá um-
sókn sinni. Bæjarfulltrúarnir trúðu
bæjarstjóranum og samþykktu að
formaður skipulagsnefndar fengi
lóðina. Síðar hefur komið í ljós að
Húsnæðisnefnd féll alls ekki frá um-
sókninni. Með orðum sínum á fund-
inum virðist sem Sigurður Geirdal
hafi sagt vísvitandi rangt frá og
tryggt þar með forystumanni í Sjálf-
stæðisflokknum eftirsótta lóð.
Það nýjasta í þessu máli er það að
Kristinn Kristinsson hefur fengið
samþykkta tillögu í skipulagsnefnd
þess efnis að íbúðum á þessu um-
rædda landi verði fjölgað um sex.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu
formannsins og vísaði málinu til
bæjarstjórnar, þar sem reiknað er
með að tillagan verði samþykkt.
FORMAÐURINN FÓR
60 PRÓSENTUM
FRAM ÚR ÁÆTLUN
Fyrirtæki Gunnars I. Birgissonar,
formanns bæjarráðs, Gunnar og
Guðmundur hf„ hafði ekki haft nein
viðskipti við Kópavogsbæ fyrr en
Gunnar var kjörinn í bæjarstjórn. Á
því eina og hálfa ári sem liðið er af
kjörtímabilinu hefur fyrirtækið ver-
ið lægstbjóðandi í þrjú verk og feng-
ið þau þess vegna.
Eitt verkanna var við götuna Vest-
urvör. Tilboð Gunnars og Guð-
mundar hljóðaði upp á 10 milljónir
króna. Það stóðst engan veginn og í
ljós hefur komið að verkið kostar
bæjarsjóð 16 milljónir króna. Með
öðrum orðum; formaður bæjarráðs
fór sextíu prósentum fram úr áætl-
un og hefur sem embættismaður
samþykkt framúrkeyrsluna, og bæj-
arsjóður greiðir honum 16 milljónir
króna fyrir verkið í stað þeirra tíu
milljóna sem um var samið.
HREYFÐI ANDMÆLUM OG
VAR SETTUR AF
Richard Björgvinsson, sem verið
hafði forystumaður Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn í fjögur kjör-
tímabil en féll á eftirminnilegan hátt
í prófkjöri fyrir síðustu kosningar,
var að þeim loknum skipaður skoð-
unarmaður bæjarreikninga. Eins
Guðmundur Oddsson, oddviti Al-
þyðuflokks, var ásamt öðrum úr fyrri
meirihluta gagnrýndur fyrir slælega
fjármálastjórn. Nú hefur hann skipt
um hlutverk og gagnrýnir núverandi
meirihluta fyrir stjórn peningamála.
var Richard skipaður í stjórn Al-
menningsvagna bs„ en þar hefur
hann setið til margra ára. Eftir að
ársreikningar fyrir 1990 lágu fyrir
gerði Richard athugasemdir um
stöðu bæjarsjóðs.
Meirihlutamenn þökkuðu pent
fyrir sig. Án þess að ræða við Ri-
chard, fyrrum oddvita sinn, settu
þeir hann af sem skoðunarmann
bæjarreikninga og ekki nóg með
það; hann var einnig settur úr stjórn
Almenningsvagnanna.
Þeir eru fleiri en Richard Björg-
vinsson sem hafa fengið að taka
pokann sinn. Steinar Lúdvíksson,
Jóspessonar, hafði verið forstöðu-
maður Sundlaugar Kópavogs árum
saman. Þegar nýja sundlaugin var
tekin í notkun var Steinari sagt upp
og til starfans ráðinn góðvinur og
fyrrum samstarfsmaður Sigurðar
Geirdal, Ingimar Ingimarsson frá
Borgarnesi.
Þegar efast var um réttmæti upp-
sagnarinnar var Steinari boðið að
gerast starfsmaður skíðaskála bæj-
arins og Breiðabliks í Bláfjöllum.
Steinar þáði þetta nýja starf, en ekki
hafði áður þótt ástæða til að hafa
þarna mann í heilsársstarfi, þar sem
skálinn er aðeins opinn í fáa mánuði
á hverju ári.
Rekstrarstjóri Kópavogsbæjar,
Gudrún Guðmundsdóttir, eiginkona
Ásmundar Stefánssonar, forseta Al-
þýðusambands íslands, var látin
hætta. Hún er nú framkvæmdastjóri
Þjóðleikhússins. Ólafur Sverrisson
bæjarritari er að láta af störfum og
taka við sem bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi.
ÓÁNÆGJA INNAN
FLOKKSFÉLAGANN A
Það er ekki bara fjármálastjórnin
sem bæjarfulltrúar meirihlutans
hafa áhyggjur af. Mikill titringur er
innan beggja meirihlutaflokkanna í
bæjarstjórn Kópavogs. Eftir að Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarfiokk-
ur mynduðu meirihluta í bæjar-
stjórn hefur gengið á ýmsu. Reynd-
ar á óánægjan sér lengri sögu, eða
allt frá því valið var á framboðslista
flokkanna.
Á því eina og hálfa ári sem liðið er
af kjörtímabilinu hafa miklar breyt-
ingar orðið á helstu starfsmönnum
bæjarskrifstofunnar. Bæjarritarinn,
fjármálastjórinn og rekstrarstjórinn
eru ýmist hættir eða að hætta. Inn-
an Framsóknarflokksins hafa marg-
ir af þeim sem hafa unnið hvað mest
fyrir flokkinn á síðustu árum hætt
öllu starfi fyrir hann vegna
óánægju. Þar á meðal er Magnús
Bjarnfreðsson, fyrrum bæjarfull-
trúi. Þá hefur fyrrum bæjarfulltrúi
Framsóknarfiokksins, Skúli Sigur-
grímsson, ekkert skipt sér af starfi
flokksins frá því meirihlutinn var
myndaður.
Innan sjálfstæðisfélagsins er tals-
verð óánægja, ekki síst í garð Gunn-
ars I. Birgissonar. Hann er sagður
erfiður í samstarfi og ekki réttur
maður til að halda flokksstarfinu
saman. Fyrir kosningarnar 1990 var
Sjálfstæðisfélagið í Kópavogi næst-
stærsta flokksfélagið, en nú er allt
útlit fyrir að félagið sé ekki eins stórt
og sterkt og það var.
Sigurjón Magnús Egilsson
MT að var óvenjuleg kirkjuvígsla
sem Ólafur Skúlason biskup lenti
í um síðustu helgi. Þá fór hann norð-
ur í Árneshrepp á
Ströndum, þar sem
líklega er einn klofn-
asti söfnuður lands-
ins. Erindi biskups
var að vígja nýja
kirkju, sem þarna
hafði verið byggð,
með sæti fyrir 120 manns. Við hlið-
ina er gömul kirkja síðan 1885, sem
hluti safnaðarins hefur gert upp. Þar
eru sæti fyrir 80 manns. Þar sem að-
eins eru um 100 manns í söfnuðin-
um er óhætt að segja að nóg sæta-
framboð sé fyrir þá sem þurfa í
kirkju.
Þar sem deiluaðilar talast ekki við
þurfti biskup að hefja smásáttastarf
þegar hann kom norður. Þurfti með-
al annars að fá kirkjugripi úr gömlu
kirkjunni sem „endurreisnarsinnar"
höfðu vaktað svo að þeir yrðu ekki
fjarlægðir. Biskupi tókst að ná sátt-
um en ákveðið hefur verið að af-
helga ekki gömlu kirkjuna þannig
að áfram verður hægt að þjónusta í
henni. Ef einhver óskar til dæmis
eftir því að verða jarðsunginn í
gömlu kirkjunni verður ekkert því
til fyrirstöðu . . .
F
M. yrirjolinkemurútfyrstabindið
af ævisögu Jónasar frá Hriflu,
sem Guðjón Friðriksson sagn-
fræðingur setur
saman. Ef að líkum
lætur verður þetta
með athyglisverð-
ustu bókum vertíð-
arinnar. Jónas
ábyggilega einn um-
deildasti maður ald-
arinnar; arkitekt flokkakerfisins,
ráðherra, byltingarmaður og bar-
áttumaður gegn nútímalist...
F
M. ram hefur komið töluverð
ónægja meðal listamanna með
framkvæmd núgildandi höfundar-
réttarlaga. Nú heyrist að Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra
hafi gefið vilyrði fyrir endurskoðun
laganna . ..
að er ekki bara Árni Samúels-
son í Bíóhöllinni sem er stórtækur í
bíóbransanum. Heyrst hefur að Jón
Ólafsson í Skifunni,
sem er umboðsaðili
fyrir þekkta kvik-
myndaframleiðend-
ur, hafi falast eftir
lóð fyrir stórt kvik-
myndahús í nýja
miðbænum, á mót-
um Kringlumýrarbrautar og Lista-
brautar . . .
F
JL yrr á árinu var farið fram á op-
inbera rannsókn á starfsleyfi sorp-
brennslunnar á Hnífsdal og fékk
embætti Ríkissak-
sóknara málið til
umfjöllunar. Hall-
varður Einvarðs-
son ríkissaksóknari
hefur þó ekki gert
meira í málinu enn-
þá en biðja um við-
bótarupplýsingar, en nú eru að
verða fjórir mánuðir síðan embætt-
ið fékk málið til meðferðar ...