Pressan - 12.09.1991, Page 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. SEPTEMBER 1991
ÚTVALDIR HÖNNUDIR
OG VERKTAKAR
LÉKU LAUSUM HALA
1 Það er einsdœmi í sögu Reykjavíkur hvernig verkefnum var útdeilt.
I SH-verktakar fengu 80 milljóna króna verk án þess að útboð fœri fram.
1 Jóhannes Zoega valdi hönnuði hússins. Hann segist bera ábyrgð á þeim aukna
kostnaði sem stofnað var til við bygginguna. Hann œtlar ekki að segja afsér
WmmmtmÉad sem byggingarstjóri og segir reyndar að það þjóni engum tilgangi.
Hjörleifur B. Kvaran, fram-
kvœmdastjóri lögfrœdi- og stjórn-
sýsludeildar Reykjavíkurborgar, og
Jóhannes Zoéga, fyrrum hitaveitu-
stjóri og byggingarstjóri Perlunnar,
eru dregnir til ábyrgðar vegna
þeirra mistaka sem gerð voru við
byggingu Perlunnar og hafa kostað
Hitaveituna hundruð milljóna
króna. Jóhannes tekur undir þessa
gagnrýni en segir að fleiri verði að
bera ábyrgð en hann og Hjörleifur.
Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri
segir að Hitaveitan verði að taka lán
vegna óráðsíu við byggingu Perl-
unnar.
Jóhannes Zoéga hafði nánast
sjálfsvald um hverjir voru valdir til
hönnunar- og verkfræðingastarfa
við bygginguna. Upplýst er að
SH-verktakar unnu verk upp á 80
milljónir króna út í reikning við Perl-
una, en það mun vera einsdœmi hjá
Reykjavíkurborg að ekki sé óskað
eftir tilboðum í svo stórt verk.
Hjörleifur B. Kvaran, .lóhannes
Zoéga og Ingimundur Sveinsson sáu
um framkvæmdir fyrir hönd borg-
arinnar á þessu ári, þegar kostnað-
urinn fór 300 milljónum króna fram
úr áætlunum.
Samkvæmt borgarmálasamþykkt
eiga öll verk- og efniskaup að fara
fram fyrir milligöngu innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar. Við
byggingu Perlunnar var ekki farið
eftir þessu ákvæði og á síöustu mán-
uðum hafa aðeins 10 prósent af öll-
um kaupum við bygginguna farið
fram fyrir milligöngu Innkaupa-
stofnunar.
ÞESSIR FENGU MEST
FYRIR HÖNNUNINA
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, lagði
fram fyrirspurn í borgarráði. Hún
spurði meðal annars hvernig val á
hönnuðum Perlunnar hefði farið
fram.
í svari Hitaveitunnar kemur fram
að Ingimundur Sveinsson hafi verið
valinn þannig að ákveðið var að
taka þeim hugmyndum sem hann
lagði fram um gerð hússins. Ekki
kemur fram hvar og hvenær Ingi-
mundur lagði fram þessar hug-
myndir. Hann hefur fengið tæpar 56
milljónir fyrir sitt verk.
Fjarhitun hf. sá um hönnun á
burðarvirkjum og hita- og loftræsti-
kerfum. Ástæða þess að Fjarhitun
varð fyrir valinu er sú að fyrirtækið
hafði hannað vatnsgeymana á
Öskjuhlíðinni. Fjarhitun hefur feng-
ið tæpar 90 milljónir fyrir sitt verk.
Rafteikning hf. var valin til að
hanna raflögn, sérstaklega þar sem
fyrirtækið hannaði raflögn í Borgar-
leikhúsið. Rafteikning hefur fengið
57 milljónir fyrir sitt verk.
Allir þessar tölur eru framreikn-
aðar samkvæmt byggingarvísitölu.
í svari Hitaveitunnar kemur fram
að góð reynsla er af viðskiptum við
þessi fyrirtæki.
Það merkilegasta við svar Hita-
veitunnar er ef til vill að Jóhannes
Zoéga átti mestan þátt í vali hönn-
uöa. Það þýöir að hann gat valið
einn og sér hvaða menn og fyrir-
tæki fengu þessi verkefni.
HVERJIR ERU ÁBYRGIR?
Sigrún Magnúsdóttir spurði einn-
ig hverjir hefðu tekið ákvarðanir
um breytingarnar sem ollu þeim gíf-
urlegum hækkunum sem urðu á
þessu ári. ísvari Hitaveitunnar kem-
samtali við PRESSUNA. Þegar hann
var spurður hvort hann ætlaði að
segja af sér sem byggingarstjóri
svaraði hann: ,,Nei, það ætla ég ekki
að gera. Ég get ekki séð að það þjóni
neinum tilgangi. Þetta verk er að
verða búið og þegar því lýkur þá
hætti ég hvort eð er."
DAVÍÐ ODDSSON
BER EINNIG ÁBYRGÐ
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að framkvæmdir við Perluna
fóru fram úr áætlunum. 18. janúar á
þessu ári spurðist Sigrún Magnús-
dóttir fyrir um hvers vegna fram-
kvæmdaáætlun fyrir þetta ár væri
fimmfalt hærri en gert var ráð fyrir
og hvers vegna framkvæmdir síð-
asta árs hefðu farið 64 milljónum
fram úr áætlunum þess árs.
meira en brúa það gat sem myndast
hefur í fjárhag Hitaveitunnar. Fyrir
skuldar Hitaveitan Rafmagnsveitu
Reykjavíkur 350 milljónir króna.
Ljóst er að bygging Perlunnar hefur
leikið fjárhag Hitaveitunnar illa.
Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri
segir að vegna óráðsíu við bygging-
arframkvæmdir hafi Hitaveitan
þurft að grípa til lántöku. Hann seg-
ir einnig að tveimur mönnum hafi
verið falið að gæta hagsmuna borg-
arinnar við framkvæmdir við Perl-
una, þeim Hjörleifi B. Kvaran og Jó-
hannesi Zoéga.
Vegna fjárhagsstöðu Hitaveitunn-
ar hefur verið samþykkt að skera
framkvæmdir niður. Á þessu ári
verður framkvæmt fyrir einn og
hálfan milljarð. Á næsta ári á að
framkvæma fyrir 740 milljónir
Þrátt fyrir það lýkur byggingunni á
skemmri tíma en áætlað var,“ sagði
Jóhannes Zoéga.
Líklegt er talið að heildarverð
byggingarinnar verði um 1.600
milljónir króna. Búið er að vinna
nær allt verkið, aðeins á eftir að
vinna fyrir rúmar eitt hundrað millj-
ónir króna.
HALDIÐ FRAMHJÁ
INNKAUPASTOFNUN
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi hefur haldið fram að af þeim
600 milljónum króna, sem varið hef-
ur verið í byggingu Perlunnar á
þessu ári, hafi aðeins einn tíundi
verk- og efniskaupa farið fram fyrir
milligöngu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar. Samkvæmt orð-
um Sigrúnar hefur borgarmálasam-
Ingimundur Sveinsson arki-
tekt hefur fengið greiddar
nærri 56 milljónir fyrir vinnu
sina við Perluna.
Egill Skúli Ingibergsson,
fyrrum borgarstjóri, og félag-
ar hans hjá Rafteikningu
hafa fengið nálægt 57 millj-
ónum fyrir framlag sitt til
Perlunnar.
Hjörleifur Kvaran, fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og
stjórnsýsludeildar Reykja-
víkurborgar, ber talsverða
ábyrgð á þvi hversu mikið
kostnaðurinn hefur farið úr
böndum.
Jóhannes Zoéga, fyrrum
Hitaveitustjóri og bygging-
arstjóri Perlunnar, segist
ekki firra sig ábyrgð. Hann
segir einnig að ekki þjóni
neinum tilgangi að hann segi
af sér sem byggingarstjóri.
Bjarni Árnason í Brauðbæ.
Hluti skýringa á hversu mjög
kostnaður hefur farið úr
böndum er rakinn til hans.
ur fram að að hálfu borgarinnar hafi
þaö verið Hjörleifur B. Kvaran,
framkvæmdastjóri lögfræði- og
stjórnsýsludeildar borgarinnar, Jó-
hannes Zoéga byggingarstjóri og
Ingimundur Sveinsson arkitekt. Þá
komu þar einnig nærri aðrir hönn-
uðir hússins. Forsvarsmaður leigu-
taka er Bjarni Arnason í Brauðbæ.
í svari Hitaveitunnar segir einnig:
„Ljóst er að eftirlit með kostnaði við
bygginguna hefur farið gjörsamlega
úr böndum á þessu ári, og endur-
skoðun kostnaðar, sem var verulega
vanmetinn fyrir, fallið niður."
Þeir sem voru nefndir hér að
framan, þ.e. Hjörleifur, Jóhannes og
Ingimundur, verða því að teljast
bera höfuðábyrgö á því að kostnað-
ur við búnað, innréttingar og fleira
varðandi veitingareksturinn fór 57
milljónum króna fram úr áætlunum.
„Ábyrgðin er okkar Hjörleifs, þó
ekki alfarið, þar sem fleiri eiga hlut
að máli,“ sagði Jóhannes Zoéga í
I bókun sem Sigrún Magnúsdóttir
hefur gert segir: „Hitaveitustjóri
lætur hafa eftir sér að algert sam-
bandsleysi hafi ríkt milli fram-
kvæmdaaðila. Ekki verður hjá því
komist að draga fram í dagsljósið
hverjir bera ábyrgð á einstökum
ákvörðunum í sambandi við bygg-
ingu Perlunnar. Þó er upplýst að yf-
irlætislegar ákvarðanir borgar-
stjóra, Davíðs Oddssonar, um verk-
lok hafa aukið kostnaðinn verulega.
Jafnframt er Ijóst að fyrrverandi
borgarstjóri hefur allt frá síðasta
hausti vanrækt algjörlega það eftir-
lit, sem hann átti að hafa með verk-
inu sem æðsti embættismaður borg-
arinnar, þegar honum mátti vera
ljóst í hvílíkt óefni stefndi."
HITAVEITAN
TEKUR ENN EITT LÁNIÐ
Búið er að samþykkja að Hitaveita
Reykjavíkur taki 450 milljónir króna
að láni erlendis. Lánið gerir ekki
króna, fyrir 690 milljónir á árinu
1993 og fyrir 534 milljónir árið
1994. Það er ekki fyrr en á árinu
1995 sem framkvæmdir verða
komnar í svipað horf og á síðustu ár-
um, en það ár á að framkvæma fyrir
rúman milljarð. Það vekur sérstak-
lega athygli að framkvæmdir við
Nesjavallavirkjun verða litlar sem
engar á næsta ári, eða aðeins fyrir
30 milljónir króna.
Hitaveitustjóri fullyrðir að ekki
verði dregið úr viðhaldi og eðlilegri
endurnýjun dreifikerfis.
TILBÚIN FYRR
EN ÁÆTLAÐ VAR
Jóhannes Zoéga segir að Perlan
verði endanlega búin fyrr en að var
stefnt. „Þrátt fyrir þær breytingar
og viðbætur sem fylgdu samning-
um við annan veitingamann skilum
við verkinu fyrr en áætlað var. Þeg-
ar samið var við annan veitinga-
mann breyttust forsendur mikið.
þykktin verið gróflega brotin.
Hjá þeim sem rætt er við um fram-
kvæmdir við Perluna, og þá er ein-
ungis átt við þá sem tengjast málinu
beint, kemur ljóslega fram að menn
hafa ekki sést fyrir í framkvæmda-
gleði.
NÁLÆGT 100 MILLJÓNUM
í STAÐ 40
í samningum við Bjarna Árnason
kemur fram að hann hafði heimild
til kaupa áhöld og tæki til veitinga-
rekstrar fyrir allt að 40 milljónum
króna. Þessi grein samningsins var
þverbrotin og í stað 40 milljóna er
kostnaðurinn þegar oröinn 97 millj-
ónir króna.
Hjörleifur Kvaran, Jóhannes
Zoéga og Ingimundur Sveinsson
sáu um framkvæmdir og samninga
vegna breytinga á veitingarekstrin-
um.
Sigurjón Magnús Egilsson