Heimilistíminn - 25.11.1976, Qupperneq 24
„Þeir hafa reynt að
kenna okkur að segja
mitt
í stað
okkar’ ’
Madonna Gilbert er Siouxindiáni. HUn
er félagi i samtökum Indiána i Ameríku
(American Indian Movement, AIM) og
veitir forstööu fræöslumiöstöð
hreyfingarinnar i Suður-Dakota.
Þaö, sem greinir Rapid City frá tugum
annarra tæplega hundraö ára gamalla
smáborga i Villta vestrinu eru Indiánar.
Heilu fjölskyldurnar ganga I hópum
eftir götunum. Þeir aka framhjá hótelum
og verzlunum i aflóga bilum. Þeir sitja á
börunum.ihúsasundum — og i steininum.
Þar sitja þeir oft lengi og oft af óljósum
orsökum. Grunur fellur ávallt fyrst á
Indiána.
Indiánar, sem lifið hefur bugað, safnast
saman i fátækrahverfinu, viö verstu
barina, ótótiegir, sjúkir, óhreinir,
betlandi. — Geföu mér sextiu sent fyrir
bjór.
Allt i lagi. Viö leggjum nokkra smá-
peninga i vanhirta, brúna hönd.
— En ég þarf tvo dali ....
Nú gremst okkur. Hvers vegna þessi
skyndilegi kröfutónn? Aö biöja um pening
fyrir bjór er I lagi en tvo dali!
— En ég er Indiáni.
24
Ég er Indíáni
Margt liggur að baki þessum orðum.
Annað sem greinir Rapid City frá
öörum bæjum Vestursins er er nálægðin
við Svörtu hæðir (Black Hills) og
verndarsvæði Siouxindiána Pin Ridge.
Svörtu hæöir voru einu sinni helgasti
staður sléttuindiána, miðpunktur
veraldar þeirra, hjarta veiðisvæða
þeirra. Þvi var rænt frá þeim á árunum
1870-1880. Þrátt fyrir gerða samninga var
þetta land tekið með vopnavaldi. Þar var
gull að finna.
Nú eru Svörtu hæðir „ferðamannapara-
dis”. Þar eru undrahellar og garðar með
furðudýrum. Þar er hægt að aka um I
leiktækjum og kaupa minjagripi, sem
framleiddir eru á Formósu! Þar mega
menn taka myndir af raunverulegum
Indiánum með fjaðraskrúð og öllu — gegn
greiðslu. Og hér er þjóðarminnismerkiö
Mount Rushmore, þar sem risastór andlit
fjögurra forseta stara á vegfarendur Ur
hárri f jallshlið. Þeir eru tákn „réttlætis,
frelsis og lýðræðis.”
Svörtu hæðir eru fyrir norðvestan
Rapid City. Ef ekið er i' hina áttina er ekki
langt til Pine Ridge, sem er næststærsta
verndarsvæði Indiána I Bandarikjunum.
Það er stórt og eyðilegt og þar búa um
12.000 manns, flestir eru atvinnulausir og
hafa glatað sjálfstrausti sinu.
Þetta verndarsvæöi varð heimsþekkt
þegar AIM samtökin tóku smábæinn
Wounded Knee fyrir nokkrum árum. Þau
vildu sýna fram á að Indiánar eru enn til.
Að þeir eiga erfitt. Að þeir verða fyrir
bárðinu á spillingu og svikum við gerða
samninga.
Indiánarnir héldu bænum i 71 dag. Þeir
og hvitir menn skiptust á skotum. Bióði
var úthellt. Hatrammar tilfinningar urðu
enn hatrammari. Enn glima lögfræðingar
við hundruð ákæra og gagnákæra.
Nú er Pine Ridge það verndarsvæöi
Indiána i Bandarikjunum, þar sem mest
sundrung rikir, mestu ofbeldi er beitt og
Alrikislögreglan (FBI) er mest á kreiki.
Indianar hverfa eða finnast látnir Skot-
hriðir glymja i myrkri. Bilum er velt.
Gluggar brotnir.
A mörgum stöðum gefur að lita bók-
stafina AIM skráða stórum stöfum á
veggi.