Heimilistíminn - 03.02.1977, Page 8
Aldrei gleymist
sá veiðitúr
þar. Arni I Fljótstungu dró ræfilinn upp ór
ánni og upp á bakkann og ég vissi hvar
tófan var.
Það hagaði vel til, svo að ég gat læðzt
framm á gljúfurbarminn og hvað haldið
þið ég sjái? Jú rolluhræið var orðið furðu
torkennilegt, þvi tófuskott dinglaði sitt á
hvað út um stórt gat á siðunni. Ég beið
spenntur með byssuna þar til tófan kom
út, og þaö varð hennar sfðasta. Þegar við
komum að henni, þar sem hún lá i blóöi
sinu, þá var hún með lungun úr ánni I
kjaftinum, svo hún dó ekki á fastandi
maga.
Og þegar ég skar hana á kvið, ultu sex
yrðlingar út, svo þarna voru sjö stykki og
fimm tófur, vel endaður veiðitúr.
Við Húsafell.
Nú var farið að skyggja all mikiö og
flýttum viö okkur að bílnum, Þá heyrðum
við mikið fuglagarg, og verður mér litið
tillofts. Þar ereinhver hreyfing að sjá, en
ekki skotljóst, svo ég hef það eins og
Bjarni Búi, að ég skýt á hljóðið, og viti
menn, það kemur fugl i ótal hringjum of-
an úr háloftunum. Þetta reyndist vera
helsingi.
Þegar ég reitti hann, þá kom i ljós, að
aðeins eitthagl hafði farið upp i kverkina
og þaðan i heilann. Svona endaði þessi
veiðiðtúr og fór betur en á horfðist um
tima, og allt er gott ef endirinn er góður.
Þormóðsdal 12/1 1977
Gisli Kristinsson
HI^IÐ
— Er þetta virkilega
nauðsynlegt til þess
að fá af sér
passamynd?
V__________________________________>
Frá Fljótstungu. Þar snæddu þeir félagar kvöldmat og sögðu
ferðasöguna.
8