Heimilistíminn - 03.02.1977, Qupperneq 12
r
Barnasagan:
Lewis Carrol:
Lísa
1
U ndralandi
Hver stal kökunum?
11. þáttur.
Þegar þau komu, sátu Hjartakóngurinn og
Hjartadrottningin i hásæti sinu. í kringum þau
var stór hópur allskonar dýra, ásamt öllum
spilunum. — Fyrir framan konungshjónin stóð
Hjartagosinn i hlekkjum og gætti hans
hermaður til hvorrar handar. Rétt við hlið
kóngsins var hvita kaninan, og hafði hún lúður
i annarri hendi og stórt skjal i hinni. í miðjum
dómsainum var borð og á þvi stóð kökudiskur.
Kökurnar voru svo girnilegar ásýndum, að
Lisu dauðlangaði i. „Vonandi kveða þau bráð-
lega upp dóminn og snúa sér að veitingunum”,
hugsaði hún. En það virtist ekki mikið útlit
fyrir þetta, og hún fór þess vegna að virða fyrir
sér það, sem fyrir augun bar.
12
Lisa hafði aldrei verið i dómsal áður, en hún
hafði lesið um málssóknir i blöðunum.
Dómarinn var hér sjálfur kóngurinn. Hann
hafði hárkollu á höfðinu og kórónu ofan á
henni. Hann virtist ekki kunna neitt vel við sig,
og hárkollan fór honum illa.
,,Og þetta er kviðdómarinn og þessi tólf dýr
þarna eru kviðdómarar”, sagði Lisa. Hún
endurtók þessi orð nokkrum sinnum, stórhrifin
af sjálfri sér fyrir það, hvað hún var fróð.
Kviðdómararnir voru i óða önn að skrifa eitt-
hvað á spjöld. ,,Hvað eru þeir að gera? Þeir
þurfa þó varla að skrifa neitt upp, áður en yfir-
heyrzlan byrjar? ” sagði Lisa við flugskrimslið
Þeir eru að skrifa nöfnin sín, ef ske kynni, að
1