Tíminn - 13.05.1979, Side 2
2
Sunnudagur 13. mal 1979
DUFGUS:
myrkur í Phnom Penh
Fyrir
Þaðer hádegi i Phnom Penh.
Ung stúlka, skólakennari, fagn-
ar komú Rauðu Kmeranna sem
halda innreið sina i borgina
undir forystu Sampans og Pols
Pot. þeir eru a{) frelsa landið og
þeir eru að frelsa fólkið. Boð-
skapur þeirra um einfalt lif á
þjóðlegum grunni, án erlendra
áhrifa, hefiir heillað ungu stúlk-
una og hún stendur uppi á svöl-
um og brosir, brosir fagnandi,
brosir við hermönnum Rauðu
Kmeranna. Þeir einir her-
manna eru ekki hermenn
dauðans, þeir eru hermenn lifs-
ins. Þeir ætla að færa þjóðinni
nýttlif. Og unga stúlkan kastar i
gleði sinni lótusblómum fyrir
fætur hermanna lifsins.
Veður skipast í lofti
Fjórum klukkustundum siðar
er unga stúlkan á leiðinni úr
borginni, á leiðinni til hins ein-
falda li'fs. Hún er rekin eins og
skepna út úr borginni. Hún er
rekin frá öllu og öllum sem
henni eru kærir og sér þá aldrei
framar. Hún er rekin eins og
sauðkind burt frá heimkynnum
sinum af Rauðu Kmerunum,
hermönnum Ufsins, hermönn-
unum sem hún fórnaði lótus-
blómunum þegar sólin var hæst
á lofti.
Hún var einskis spurð. Hún
var ekki spurð um hvort það
væri i raun og veru vilji hennar
að snúa til fábrotins lifs og
frumstæðs eða hvort þaö var að-
eins litli draumurinn sem viö
gælum öll við á þreytustundum
en viljum sist af öllu að rætist.
Að minnsta kosti viljum við
ráöa þvi sjálf. Hún var einskis
spurð, þvi að hún hafði rétt litla
fingurinnogsásem viðtókhafði
tekiðalla höndina eins og jafnan
áður. Vilji hennar var einskis
metinn lengur, þrár hennar fót-
um troðnar ef þær fóru f bága
við duttlunga valdhafanna, lff
hennar lagt i rúst i einu vet-
fangi, henni breytt úr
manneskju f húsdýr.
Gat þessi stúlka ráðið
örlögum sinum?
Hafði þessi stúlka tök á þvi
sjálf að hljóta betri örlög?
Væntanlega hefði það ekki skipt
miklu máli þó að hún ein hefði
ekkilátið blekkjast.i Kambodfu
voru milljónir manna sem létu
blekkjast. Og um heim allan
voru hundruð milljóna manna
sem sungu hósanna og horfðu
fagnandi til blekkinganna,
mannfyrirlitningarinnar,
kúgunarinnar og dauðans. Af-
staða einnar manneskju hefði
þvi litlu breytt. Við verðum öll
að átta okkur á þvf sem er að
gerast í kringum okkur, átta
okkur á þvi sem getur gerst i
kringum okkur.
Það sem gerðist i Kambodíu
var angi af þvf fyrirbæri sem
hefur verið nefnt menningar-
byltingin f Kina. Fjöldamargir
menn hér og þar f heiminum,
þar á meðal á tslandi falla enn-
þá i stafi yfir menningar-
byltingunni. Þó var menningar-
byltingin ekkert annað en aö
ákveðnir þjóðfélagshópar fengu
opinbert leyfi til að ofsækja aðra
þjóðfélagshópa, reka menn frá
lifsstarfi sínu og þröngva upp á
þá „einfaldara lifi” til endur-
hæfingar. Sérstaklega urðu
kennarar fyrir barðinu á þess-
um hreinsunum, þar sem nem-
endur fengu algjörlega óáreittir
að reka þá frá skólum sfnum, ef
þeir höfðu ekki gefið nógu góðar
einkunnir. Og sannarlega fengu
embættismenn sem ekki höfðu
getað starfað þannig að öllum
likaði að finna fyrir þessum
hreinsunum. Það er auðvelt
fyrir þá sem hafa fengið vald að
finna sakir. Maöurinn sem
móðgaði Khomeini f Frakklandi
forðum daga hefur nú fengið að
gjalda fyrir það með lifi sinu.
Og ef ég man rétt þá var
Khomeini að reka harðstjóra
frá völdum í Iran.
Menningarbyltingin á
íslandi
í viðtali við Þjóðviljann
sunnudaginn 22. april segir
Stefán Jónsson alþingismaður
m.a.: „Menningarbyltingin var
raunveruleg bylting. Hún var
bylting við embættismanna-
kerfiö. Fyrir tfð siðustu vinstri
stjórnar á íslandi mun láta
nærri að enginn hafi verið
skammaður jafn mikið I Þjóð-
viljanum og Jóhannes Nordal.
Þegar ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins voru komnir i stjórn
sögðu þeir hins vegar að þetta
væri samviskusamur embættis-
maður. Kfnverjar tóku við
milljónum Jóhannesa Nordala.
Núeru Hua Kua-feng ogfélagar
hans búnir að gera gagn-
byltingu og hafa sett aftur hin
stóru efnahagslegu maikmið i
efstu sætin”.
Ég ætla að það þurfi enginn að
velkjast i vafa um hvað fyrir
Stefáni Jónssyni alþingismanni
vakir. Ég ætla einnig að enginn
geti sagt að hann hafiekki verið
varaður við ef Stefán Jónsson
skyldi nú koma hugsjónum sfn-
um i framkvæmd.Samt hygg ég
að fáir hrökkvi við. Þarna er
enginn nefndur með nafni nema
Jóhannes Nordal. Og þvi miður
kippast menn ekki svo mjög við
fyrr en röðin kemur að þeim
sjálfum.
SUMARVERÐ
á skídum
as & * «
Sportval
L<»» **(
LAUGAVEGI 116 — SIMAR 14390 & 26690
ARLAND
SUBARU ■■■■■
ERUM AÐ FLYTJA VARAHLUTAVERSLUNINA
FRÁ VONARLANDI V/SOGAVEG í
VARAHLUTAHÚSIÐ
MELAVÖLLUM V/RAUÐAGERÐI
Opnum miðvikudaginn
16. nóvember
Sími 8-45-11
Stórbœtt þjónusta
Öll önnur starfsemi svo sem
heildverslun og bifreiðasala verður
áfram að Vonarlandi v/Sogaveg
DATSUN — SUBARU — TRABANT — WARTBURG UMBOÐIÐ
Heildverslun og bílasala
Simi 3-35-60
INGVAR HELGASON
o t
Vonarlandiv/Sogaveg