Tíminn - 13.05.1979, Síða 3
Sunnudagur 13. mal 1979
3
Sumargestir
á köldu vori
— drstutt rabb við
Sigurð Björnsson
í Kvískerjum
VS —Nýlega vildi svo heppilega
tíl, aö Siguröur Björnsson á
Kviskerjum leit inn á ritstjórn
Timans. Þetta tækifæri var aö
sjálfsögðu .notað og Siguröur
spuröur frétta úr sveitinni, eins
og venja er, þegar bændur koma
i kaupstaö.
— Veturinn, sem nd er nýliö-
inn, hefur viöa fengiö heldur
slæm eftirmæli. Hvernig hefur
þessi vetur veriö hjá ykkur i
Oræfum, Siguröur?
Siguröur Björnsson,
Kvískerjum.
— Ef enn væri biiiö meö gamla
laginu, heföi þetta veriö vondur
vetur, þvi aö mjög litiö heföi
veriö hægt að beita, ef sá siður
heföi enn veriö viö lýöi. Þó er
ekki hægt að segja að veturinn
hafi verið snjóþungur. Að vfsu
kom talsverður snjór snemma i
vetur, enhannlá ekki lengi. Þaö
hlánaöi aftur, og var nærri snjó-
laust fram yfir áramót. Nokkuð
af þessum snjó sem kom fýrri-
partinn 1 vetur, varö aö is og
svellum, viða i sveitinni, og lá
þannig fram um miöjan mars-
mánuð, enþá gerði mikla þfliu,
og um 20. mars voru svellin að
mestu farin. — NU vorum viö aö
vona, að litill vetur yröi eftir
þetta, þegar oröiö var svona
framoröiö, og snjór og svell
horfin. En sú von bráát alger-
lega. Þaö snjóaöi fljótt aftur, og
sá snjór lá viða óhreyfður langt
fram I april, m.a. á Breiöa-
merkursandinum. En þessi
snjór var aldrei djúpur, og ég
hygg, að t.d. f fjöllum sé snjór
meö minna móti núna.
— Eru ekki vorkuldar hjá
ykkur núna, eins og alls staöar
annars staöar á landinu?
— Eftir aö kólnaði, upp úr 20.
mars, má segja aö væri óvenju
samfellt frost. Yfirleitt var þó
ekki um neina frostgrimmd aö
ræða, því aö frostiö fór mjög
sjaldan niöur fyrir sjö stig. Hins
vegar var frostiö yfirleitt nokk-
uö þrálátt i vetur, yfirleitt.
En þú varst aö spyrja um
voriö. Þaö komu ágætir dagar
seint I april, en seinustu dagar
þess mánaðar voru kaldir, og
þaö sem af er maimánuöi hefur
veriðóvenjukalt, miöaö viö árs-
tima.
— Eru sumargestirnir, —
farfúglarnir — ekki farnir að
heimsækja ykkur, þótt kalt sé i
veöri?
— Ég veit ekki hvort þeim
hefur fjölgaö þessa dagana, þvi
ég er búinn að vera tæpa viku i
Reykjavik. Raunar þykir mér
trúlegt aö litið hafi bætst viö
þessa siöustu daga, vegna
noröanáttarinnar. En þegar ég
fór að heiman, hafði ég ekki orö-
iö var viö spóa, steindepil, eöa
kriú, — og auövitaö ekki heldur
óðinshana, því hann kemur allt-
af svo seint. Allir aörir fuglar
held ég aö hafi veriö búnir að
láta sjá sig, — Mariuerlan aö
visu meö seinna móti, — en lóa,
skógarþröstur og stelkur komu
aftur á móti snemma.
Ég tel vist, aö það komi tals-
vert færra af fuglum hingaö
núna, vegna þessarar þrálátu
og sterku norðanáttar. Þeir
leggja siöur á staö, og liklegt aö
sumir snúi við eöa gefist jafnvel
upp á leiðinni. — Þetta veit ég
auövitaö ekki, en það er a.m.k.
ekki ótrúlegt.
— Þeir hljóta að stansa lengi
hjá ykkur, sunnan jökla, núna.
Þaö blæs ekki byrlega til þess
aö halda noröur á heiðar, eins
og nú er ástatt.
— Nei, þeir fara varla norður
yfir eins og er. — Hins vegar
sýndist mér á leiöinni hingaö til
Reykjavikur, að fúglum myndi
liða best undir Eyjafjöllunum.
Það er auðsjáanlega best gróið
þar núna. Gróður er oft fljótur
aö ná sér á strik i miö-sveitinni I
öræfum, ogþar erfariöaö gróa
nú þegar, en mér sýndist nú
samt núna, aö mun betur væri
gróiö undir Eyjafjöllum.
— Já, er ekki jörð töluvert
farin aö gróa I öræfum?
7 Ekki er nú hægt aö segja aö
þaösémikiö. T.d.heldégaö tré
hafi ekki verin farin aö laufga
svo að þeim væri nein hætta bú-
in af þvi frosti, sem komið hefur
fram aö þessu. Þaö voru farin
aö sjást blóm á krækilyngi, en
ég varð ekki var við aö þau væru
farin aö skemmast neitt, — sem
betur fer, þvi að þaö gæti oröiö
litiöum berjasp-ettu I sumar, ef
vorkuldar eyðileggja blómin á
lynginu jafnóöum og þau koma.
— En þaö er ekki kominn
sauögróöur, — eins og viö sögð-
um i gamla daga, sveita-
karlarnir?
— Nei, langt frá þvi. Gömlu
mennirnir sögöu nú reyndar, aö
fénu væri óhætt, — þaö liföi, eft-
ir aðljónslappinnværi farinnaö
breiöa úr sér. Og hann var far-
inn til þess, áöur en ég fór aö
heiman um daginn, en það köll-
um viö ekki sauögróöur, nú á
dögum.
— VS.
Samband sérskóla
ó íslandi
Aðalfundur sambands sérskóla á íslandi
verður haldinn föstudaginn 18. mai kl.
20.00 að Grettisgötu 89 (hús BSRB).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjölmennið.
Stjórnin.
RÆKJUFRYSTING UM BORÐ
Fullkomið vinnslukerfi fyrir úthafsrækjuveiðar
framleitt af Kronborg Products, Danmörku.
Kerfið samanstendur af rækjuflokkunarvél,
sjálfvirkum suðu/kælipotti blásara á
ytirborðsvatn, lausfrysti ásamt nauðsynlegum
færiböndum og tilheyrandi.
Höfum milligöngu um tilboð og sér-hönnun í
hverskonar rækjuveiðiskip.
Einkaumboð á Islandi
SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA
@ Sjávarafurðadeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200
LITSJONVORP
GREIÐSLUKJÖR
sem gera yður kleift
að velja vandað
BUÐIN
Skipholti 19
nordRIende
Vtöorgun Eftirstöövar
| 20% 2 mán. vaxtalaust
! 30% 3 mán. vaxtalaust
35%-90% 3 mán. vaxtalaust
35%-90% 4-6 mán. meö
vöxtum
[ 100% Staðgr.afl. 5%
.
“ " 1 1 íl
■i
Samvinnuskólinn Bifröst.
Samvinnuskólinn er viöskipta-og félagsmála-
skóli á framhaldsskólastigi.
Lýkur námi með Samvinnuskólaprófi eða
stúdentsprófi.
Skólinn er vel búinn tækjum þ.á.m. tveimur
tölvum og sjónvarpsstúdiói.
Sérstakur félagsmálakennari sér um félags-
lega þjálfun nemenda.
Umsækjendur skulu hafa lokiö grunnskóla*
prófi eða öðru sambærilegu námi.
Umsóknir um skólavist skólaárið 1979 — 1980
ásamt ljósriti af prófskirteinum skulu sendar
Samvinnuskólanum Bifröst, 311 Borgarnes,
fyrir 10. júni.
Skólastjóri.