Tíminn - 13.05.1979, Qupperneq 19
Sunnudagur 13. mai 1979
19
Skólamót í hestamennsku
á Selfossi
Laugardaginn 21. apríl var
haldiö 3ja. skólamót GagnfræBa-
skólans á Selfossi i' hesta-
mennsku. Mót þetta er sennilega
hiö eina sinnar tegundar hér á
landi. Þaö fór fram á reiövangi
Hestamannafélagsins Sleipnis á
Selfossi. Upphaf þessara móta
var þaö, aö þrem ungum og
áhugasömum hestamönnum í
skólanum þótti hestamennska
vera þar heldur afskipt. Voru
haldin skólamót f sundi, hand-
bolta, skák og fleiri greinum, en
ekkert I hestamennsku, svo þeir
tóku sig saman og störtuöu þvi
fyrsta veturinn 1977, og aö sögn
þeirra sjálfra þvi allra merkileg-
asta innan skólans þann vetur.
Þessir áhugasömu unglingar
voru þeir Atli Lillindahl, Einar
Magnússon og Jóhann B. Guö-
mundsson. Viröist sem mót þessi
ætli aö skipa veglegan sess I
skólalffinu og veröa þau ef til vill
kveikjanaöslikum mótum i fleiri
skólum þessa lands.
Á fyrstu tveimur mótunum var
keppt I tveimur greinum, 150m
hraökeppni, og i hinni greininni
dæmdur besti knapinn, þ.e. áseta
og taumhald, fegurð og hæfni
hestsins. 1 ár var keppnin um
besta knapann felld niöur og I>
staöinn tekin upp unglinga-
keppni i tölti og fjórgangi, sam-
kvæmt reglum iþróttaráös L.H.
Einnig hlaut stighæsti knapinn úr
tölti og fjórum gangtegundum
veglegan bikar, gefinn af nem-
endafélagi skólans.
Félagar I Iþróttadeild Sleipnis
aðstoðuðu nemendur viö þetta
mót, kynntu þeim keppnisreglur
og undirbúning fyrir keppnina,
tóku aö sér mótstjórn og
dómstörf. 1 hraðkeppni voru tveir
og tveir hestar ræstir saman og
farnar tvær umferöir. 1 seinni
umferö var raöaö eftir árangri. 1
150 metra hraökeppni eru fyrstu
50 metrar frjálsir en sföan á
gangi, brokki, tölti eða skeiöi.
Var . ánægjulegt aö sjá gott
keppnisskap, mikla einbeitni og
prúömannlega framkomu, sem
einkenndi alla keppendur þessa
móts.
tJrslit:
Hraökeppni 150 metrar:
1. Gisli Guömundsson á Glanna,
20.4. skeið
2. Jón Þórðarson á Jarpi, 24.1.
skeiö
3. Elis Kjartansson á Gegni, 27.6
brokk.
Úrslit tvikeppni
1. Gisli Guðmundsson,
2. Leifur Bragason,
3. Eirikur Þórkelsson.
Úrslit fjórar gangtegundir:
1. Eirikur Sigurjónsson á Brunku
7 vetra frá Smjördölum Arn.
2. Leifur Bragson á Boöa, 8 vetra,
frá Egilsstööum Arn.
3. Gisli Guðmundsson á Glanna 10
vetra frá Litlu-Reykjum.
4. Eirikur Þórkelsson á Mósa, 7
vetra frá Sandlækjarkoti.
5. Elís Kjartansson á Hæring 6
vetra úr Skgafiröi.
Tölt:
1. Alma Stefánsdóttir á Skjóna.9
vetra frá Eyjarhólum.
2. Bjarni Bragason á Surti 12
vetra, Vesturkoti, Skeiöum
3. Leifur Bragason á Boöa 8 vetra
Egilsstöðum, Arn.
4. Gisli Guömundsson á Fifli 8
vetra, Litlu Reykjum, Árn.
5. Eirikur Þórkelsson á Mósa, 7
vetra, Sandlækjarkoti.
Verölaunahafar i fjórum gangtegundum. Taliö frá hægri: Eirikur
Sigurjónsson og Brdnka, Leifur og Boöi, Gisli og Glanni, Eirikur
Þórkellsson og Mósi, Elis og Hæringur.
HOBUST
Sænsku
veggsamstæðurnar
komnar
eru
Mjög
verö
gott
Verið
velkomin
SMIÐJUVEGI6 SIMI44544
Gullsmiður
Jóhannes Leifsson,
Laugavegi 30, Reykjavik
simi-19209, auglýsir: Hefðbundið hand-
smiðað viravirki á islenska þjóðbúning-
inn, silfurskartgripir með islenskum
steinum, gullhringar i stóru úrvali, önn-
umst viðgerðir og gyllingu. Sendum i póst-
kröfu.
Bændur
Sumardvöl fyrir börn
Félagsmálaráð Akraneskaupstaðar vill
hafa milligöngu um útvegun á sveita-
plássum fyrir börn á Akranesi i sumar.
Sveitaheimili sem hafa áhuga á að taka
börn til sumardvalar vinsamlegast hringi
á bæjarskrifstofuna á Akranesi. Simar:
93-1320 og 93-1211.
Félagsmálastjórinn á Akranesi.
Alternatorar
1 Ford Bronco,
Maverick,
Chevrolet Nova,
Blaser,
Dodge Dart,
Playmouth.
Wagoneer
Land-Rover,
Ford Cortina,
Sunbeam,
Fiat,
Datsun,
Toyota,
VW, ofl. ofl.
Verð frá
kr. 17.500.-
Einnig:
Startarar,
Cut-Out,
Anker,
Bcndixar,
Segulrofar,
Miöstöövamótorar
ofl. I margar
teg. bifreiöa.
Póstsendum.
Bílaraf h.f.
S. 24700.
Borgartúni 19.
Jeppaeigendur!
Setjum djúp
og slitmikil
JEPPA-
munstur
á hjól-
barða.
Smiðjuvegi 32-34 - Símar: 43988 og 44880 - Kópavogi