Tíminn - 13.05.1979, Side 23
Sunnudagur 13. mal 1979
23
'PL ö TUDOMA
ISLENSKAR PLÖTUR:
Frábær: A Ágæt: B Sæmileg: C Léleg: D
Pointer Sisters - Energy
Planet/WB/Karnabær
Tónlistin er bandarisku systrunum þrem sem
skipa söngtrióið Pointer Sisters I blóð borin. Frá
unga aldri sungu þær „gospel” I Guðskirkjunni I
Oakiand, ásamt systur sinni og tveim bræðrum. —
Arið 1969 héldu systurnar til San Fransisco, þar sem
þær fengu fljótlega atvinnu við að syngja bakraddir
fyrir fræga iistamenn. — Fjórum árum síöar kom-
ust þær siðan á samning hjá ABC útgáfufyrirtæk-
inu, en fyrir þaö hijóðrituðu þær 6stórar plötur, sem
hlutu þokkanlegar viðtökur.
Arið 1977 hættu systurnar siðan samstarfi sinu
vegna ósamkomulags, en tóku upp þráðinni aftur I
fyrra er þær gerðu samning viö Planet Records. —
A „Energy” sem er fyrsta plata Pointer Sisters
fyrir Planet, eru 10 lög, öll eftir þekkta tónlistar-
menn, s.s. Bruce Springsteen (Fire), Fagen og
Becker (Dirty Works), Bob Welch (Hipnotized),
Stephen Stills (As I come of age) og Loggins og
Messina (Angry Eyes). öil eru þessi lög veiþekkt og
ekki veröur annað sagt en að Pointer Sisters geri
þeim sæmileg skil. Meðal aðstoðamanna á þessari
plötu má nefna Porcaro bræðurna úr Toto og David
Hungate, auk gitarleikarans Waddy Watchel.
Þegar á heildina er litið er þetta þvi sæmilegasta
★ ★ ★
plata, þó að ekki verði sagt aö hún sé frumleg á
neinn hátt. Meðferð systranna á laginu „Fire”
verður að teljast mjög góð — og þannig er platan
fyrir þá, sem vilja afslappaða óskalagatónlist.
Manf red Mann’s Earth Band
- Angel Station
Bronze/Fálkinn
Það hafa fáir staðið sig betur i stykkinu innan
poppbransans, en breski popparinn Manfred Mann,
sem verið hefur I eldlinunni I meira en 10 ár. Þó
sýnir hann engin ellimörk, þrátt fyrir langan starfs-
aldur —og trúlega er leitun að skemmtilegri hijóm-
borðs- og synthezisers leikara, en einmitt honum.
Hljómsveit Manf reds Mann, Earth Band hefur nú
starfað um nokkurra ára skeið með góðum árangri,
en fyrst varð hljómsveitin verulega fræg meö út-
komu plötunnar „Roaring Silence” fyrir u.þ.b. 3
árum eða svo. — Platan „Watch”, sem út kom i
fyrra var einnig mjög góö, en með útkomu „Angel
Station” bregöur svo við að áhrifin veröa ekki þau
sömu. — Vel má hugsa sér aö útkoman standi i ein-
hverjum tengslum við þá miklu blóðtöku er hljóm-
sveitin varð fyrir I fyrra er þrir meðlimir hennar
hættu á einu bretti og reyndar ekki hægt að ætlast til
þess að nýir og óþjálfaöir menn falli þegar eins og
flis við rass, inn i hljómsveitina.
A „Angel Station”, heldur Mann uppteknum
hætti, þ.e.a.s. góður hljómborðsleikur og söngur
Chris Thompson skara fram úr og að venju spreytir
Mann sig á einu Dyian lagi. Að þessu sinni er það
„You Angel You” sem hefur oröiö fyrir valinu og
kemur Mann þvi mjög vel til skila. Það má reyndar
segja að Mann sé álika snillingur i Dylan og Guð-
mundur Guðjónsson er I Sigfúsi. — önnur lög á plöt-
★ ★ ★ +
unni eru keimlfk forverum þeirra og þar sem maður
gerir ósjálfrátt miklar kröfur til Manfred Mann’s
Earth Band, er maöur ekki á eitt sáttur við útkom-1
una.
Það má að lokum koma fram að á plötuumsiagi er I
þess getið að þetta sé siöasta platan sem Chris
Thompson kemur fram á með Earth bandinu og er
þaö ekkert vafamál að þar veröur skarð fyrir skildi,
þvi aö áhrif Thompson á hljómsveitina hafa verið |
gifurleg I gegn um árin og reyndar erfitt að imynda
sér hana án þessa frábæra söngvara.
Roxy Music - Manif esto
Polydor/Fálkinn
Ariö 1973 er breska hljómsveitin Roxy Music
sendi frá sér plötuna „For your plesure” var brotið
blaö I poppsögu samtimans og með útkomu plöt-
unnar „Stranded”, siöar sama ár var eitt af
meistaraverkuin poppsins til orðið.
Ahrif Roxy Music á popptónlistina hafa verið
meiri en nokkurn órar fyrir og ekki er fjarri lagi aö
álykta að á þessum tima 1972-1973 hafi hljómsveitin
veriö a.m.k. fimm árum á undan sinni samtið. —
Eftir tvær slakar plötur árin 1974 og 1975 leystist
hljómsveitin síðan upp og áttu þá fáir von á að með-
limir hennar kæmu saman á ný, en sú varð þó
raunin á siðasta ári er hljómsveitin var endurvakin
I nær þvi upprunalegri mynd. Astæðurnar fyrir
endurvakningunni eru vafaiaust margar, en rétt er
aðbenda á það, að frammistaöa einstakra meðlima
hljómsveitarinnar á sólóbrautinni var ekkert til
fyrirmyndar og var Brian Ferry, höfuðpaur hljóm-
sveitarinnar þar ekki barnanna bestur. Þvi er ekki
óliklegt að vonin um að endurheimta forna frægð
hafi orðiö til þess að sameina Roxy Music á ný, en á
það verður enginn dómur lagöur hér.
A „Manifesto”, sem gefin er út af Polydor, (Roxy
Music var áður samningabundin Island Rec). haida
hljómsveitarmeðlimir áfram á sömu braut og frá
var horfiö áriö 1975 og er mér það sem Roxy aðdá-
enda litiö gleöiefni að skýra frá þvi, að ég fær ekki
betur heyrt, en að hljómsveitin sé orðin a.m.k.
þrem árum á eftir timanum ef ekki meir. — Veik-
buröa tilburöir eru þó gerðir til þess að fara inn á
nútimalegri brautir, s.s. með örlitlum diskó-áhrif-
um, en heildaráhrifin veröa þau sömu og ’75 — ekki
nógu góð. A „Siren” siðustu plötu Roxy Music fyrir
★ ★ ★ +
upplausn, var lagiö „Love is the Drug” og trúlega I
er það betur I takt við tiðarandann I dag, en allt þaöl
sem hljómsveitin hefur fram að færa á þessari nýju I
plötu. — Ég vil þó ekki hætta mér út á þá hálu braut I
héraðsegja aö „Manifesto” sé lélegplata, minnug-j
ur þess að fyrstu Roxy Music plötunni, „Roxyj
Music”, skilaði ég daginn eftir að ég keypti hana I
fyrst árið 1972, en tveim árum siðar er ég festi kaup I
á henni á nýjan leik var ég tilbúinn tii þess að meö-|
taka „sakramentið”. —
—ESEl
ERLENDAR PLOTUR:
Frábær: ★ ★ ★ ★ ★ Ágæt: ★ ★ ★ ★ Viðunandi: ★ ★ ★
Slök: ★ ★ Léleg: ★
Varahlutir í rafkerfi á
enskum og japönskum bílum
RAFHLUTIR HF.
Siðumúla 32. Simi 39080.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast til starfa á deild 8. Einnig
óskast hjúkrunarfræðingar til
sumarafleysinga. Upplýsingar
veitir hjúkrunarforstjóri i sima
38160.
Reykjavik 13. mai 1979
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
íbúðir til sölu
Tilboð óskast í tvær íbúðir i húsinu nr. 28
við Sólheima. íbúðirnar verða seldar hvor
i sinu lagi eða sameiginlega. Hér er um að
ræða:
1) tbúð á II. hæð ca. 20 ferm. auk geymslu
i kjallara og hlutdeild i þvottahúsi og
þurrkherbergi að 1/3. Bilskúrsréttur.
2) Kjallaraibúð ca. 50 ferm., smágeymsla
og hlutdeild i þvottahúsi og þurrkherbergi
að 1/3.
Tilboð, sem miðist við að andvirði ibúð-
anna greiðist innan 18 mánaða frá dag-
setningu kaupsamnings, skal skila til ann-
ars hvors undirritaðra fyrir 20. þ.m.
Sigurður Jónsson,
Stigahlið 65, Rvk.
Sveinbjörn Jónsson,
Box 438, Rvk. 121.
Upplýsingar eru gefnar næstu daga i sima
19790 eða 30930 (Sigurður Jónsson), og i
sima 28110 eða 13206 (Sveinbjörn Jóns-
son).
Iðnaðarhúsnæði
óskast
á Reykjavikursvæðinu eða nágrenni 100 -
300 ferm. fyrir léttan iðnað. Þarf að hafa
bilgengar dyr.
Tilboð sendist auglýsingadeild blaðsins
merkt „Iðnaðarhúsnæði 1979”.
Bændur — Bændur
Notuð dráttarvél óskast, gjarnan með á-
moksturstækjum, einnig sláttuþyrla,
rakstrarvél og snúningsvél. Upplýsingar
gefnar i sima 91-14465.