Tíminn - 13.05.1979, Side 27
Sunnudagur 13. mal 1979
27
Bókin „Félagi Jesús” eftir
sænska rithöfundinn Sven
Wernström hefur veriö gefin út
á öllum Norðurlöndunum og alls
staðar hefur hún valdið miklum
deilum. Bókin kom út hér á Is-
landi rétt fyrir siðustu jól og er
mjög umdeild.
Hér fer á eftir grein eftir höf-
undinn sjálfan um „Félaga
Jesús”, sem hann skrifar i Fær-
eyska blaðið „14. september”,
þvi að i Færeyjum, sem annars
staðar, þar sem bókin hefur
verið gefin út, hafa orðið uppi
miklar deilur og skrif I sam-
bandi við bókina.
Ég frétti að bókin min „Félagi
Jesús”, hafi valdið miklum deil-
um I Færeyjum. Þaö sama
hefur áður átt sér stað I Svlþjóð,
NoregúDanmörku og íslandi en
mér bregður alltaf jafn mikið.
Lifum við virkilega á timum
vísindanna eða á miðöldum?
Bók mín er ekki skrifuð til að
gera lltið úr Jesú. Þvert á móti
gefur hún yfirvegaða og vin-
samlega mynd af honum. Ég
kann vel viö hann en mér likar
ekki sú mynd, sem skóli og
kirkja gefa af honum.
Fyrir mér er það augljóst að
allar trúargreinar hafa sama
boðskap að flytja en hann til-
heyrir liðinni tið sem var áður
en visindunum haföi fleygt svo
mjög fram og e.t.v.átti vel við þá,
en nú er úreltur, siðan við fórum
að hugsa út frá vísindalegu
sjónarmiði.
Grundvöllurinn i frásögn
minni eru guðspjöllin þrjú i
Biblíunni (þ.e. Mattheus,
Markús og Lúkas). Ég hef bara
tekið öil kraftaverkin og undrin
burtu úr frásögninni.
Til að skilja Jesú veröum við
að líta á hann i sögulegu sam-
hengi. Hér eru nokkur dæmi:
Palestina var á dögum Jesú
hersetin af Rómverjum. Eins og
allar hernumdar þjóðir vildu
Palestlnumenn verða frjálsir og
sleppa undan erlendum yfir-
ráöum. Sá Messlas sem þeir
biðu eftir, haföi ákveðið póli-
tiskt verkefni að leysa.
Hinn mikla átrúnað sem rikti
á þessum tlma er ómögulegt að
túlka fyrir börnunum. Þá á tim-
um var hver hreyfing trjágrein-
anna, hvert ljósbrot á vatni,
skuggar o.s.frv. rakið til Guðs.
— Guð sýndi þannig vilja sinn.
Hver einasta mannlega tilviljun
og hver atburður var fyrir til-
stilli Guðs. Heimur fullur af
slikum fyrirbrigðum getur ekki
verið eölilegur fyrir börn i dag.
Nú verðum við aftur á móti að
beita náttúrulegum rökum til að
gera veröldina skiljanlega: Fá-
tækt, kúgun, uppreisnir, aftökur
uppreisnarmanna,en i þessu var
Jesú bara einn af mörgum.
Við getum auðveldlega bent á
hvernig guðspjöllin urðu til. Þau
voru ekki skrifuð i Palestinu,
sem var I uppreisn, heldur
mörgum árum seinna 1
keisarans Róm. Hér var bæði
samfélagslega, þjóöfélagslega
og menntunarlega staðan önn-
ur. Þá var heimskulegt að tala
um frelsi. Aftur á móti var rétt
aðsegja: „Gjaldið keisaranum
það sem keisarans er”. Guð-
spjöllin voru skrifuö fyrir hiö
litla kristna samfélag I Róm á
keisaratfmanum, en ekki fyrir
okkur. Hinir kristnu trúöu þvi
að Kristur mundi birtast aftur
„á skýjum himins” á þeirra
æviskeiöi. Þau voru skrifuð til
að bæta fyrir bág kjör á erfiöum
timum.
Þegar slikir textar eru
kannaðir á ekki eingöngu að lita
á tilgang höfundar, heldur
einnig það sem hann haföi ekki I
hyggju. Talið um vopnanotkun
er eitt af þvi sem helst var and-
stætt tilgangi guöspjallamann-
anna. Heimildir um vopna-
notkun er örugglega að finna i
eldri ritum, sem nú eru löngu
týnd.
Jesús sagöi: „Sá sem ekkert
sverð á selji kyrtil sinn og kaupi
sér eitt”. Og einn af lærisvein-
unum dró sverð úr sliðri, þegar
Jesús var handtekinn. Þeir voru
allir vopnaðir. Jesús var for-
ystumaður i einni uppreisnar-
orustunni. Frá öðrum heimild-
um vitum við aö einnig aðrir
uppreisnarforingjar voru
drepnir á þessum timum.
Fyrir okkur hljómar þetta
kunnuglega. Við lifum á upp-
reisnartimum. En frelsislöngun
mannsins er alltaf til staðar.
Er það þetta, sem hinir
kristnu yilja ekki vera sammála
okkur um?
Það er margt sem þeir finna
að „Félaga Jesús”. Eitt er póli-
tiskt. Þeir sjá I bókinni að lýst er
baráttu fyrir þjóðfélagslegu
réttlæti, og það likar þeim ekki.
Kristnir menn eru svo aftur-
haldssamir. Þeir hneykslast og
þeim sárnar að I bókinni er deilt
á kristnar kenningar. Þeir vitna
aftur og aftur I bibliuna og
virðast aldrei hafa kynnst skrif-
um Arnulfs Overland,
Bertrands Russel, Hjalmars
Söderberg, Joel Carmichael né
annarra sem kannaö hafa
kristindóminn á okkar öld.
„Félagi Jesús” er engin svo-
kölluð „frjáls samsetning”.
Bókin byggir á upplýsingum,
sem börnin áttu aö læra i
skólanum, ef kennslan hefði
verið heiðarleg. I siðasta kafla
bókarinnar bendi ég á hvernig
hinar ótrúlegu kraftaverkasög-
ur gætu veriö tilkomnar. En það
er ekkert leyndarmál. Hver ein-
asti prestur veit það, eins og
aðrir,að Fjallræöan er eldri en
Jesús sjálfur og svo margt
annað hefur komið i ljós á okkar
öld.
Hinir prestlæröu vita svo
margt, sem þeir minnast ekki á
i predikunarstólnum. örlítið
brot af þessu leyndarmáli hef ég
nú sagt börnunum i bókinni
„Félagi Jesús”.
Ég fullyrði ekki að frásögn
min sé „sú sanna”. Ég hef bara
skrifaö sögu sem er trúverðugri
en hin venjulega sem við öll
þekkjum. Og það var ekki erfitt.
Eitt vitum viö: Enginn
heimildarmaður var nærstadd-
ur þegar Jesús var borinn 1
heiminn og ekkert vitni var þeg-
ar Pétur fór I burtu og grét. Við
sem skrifum um Jesú I dag,
getum gert það á traustara
grunni og með meiri gagnrýni
en gömlu guöspjallamönnunum
stóð til boöa.
En hvað er það sem börnun-
um er kennt I skólunum i dag?
Og hvað er þaö sem deilt er um?
Ég hef ekki getað fylgst með
orðaskiptum I Færeyjum, en
það sem ég hef heyrt, þekki ég
vel. Þaö er valdbeiting, rit-
skoöun, kúgun á frelsishugsjón-
inni.
Þannig hefur kristindómurinn
alltaf verið. Siöustu 1500 ár sög-
unnar hefur hann komið fram
sem forhertasta valdakerfi i
heimi, þar sem ofstækisfyllstu
trúarkenningarnar eru
kenndar.
Það hefði Jesú ekki likaö.
(GÓ þýddi)
ARU
Árgerð 1979
TORFÆRUBIFREIÐIN SEM SAMEINAR
KOSTI FÓLKSBÍLS OG JEPPA
Ummœli nokkurra SUBARU-eigenda á síðasta ári
Sigurður Jónsson (Þingeyingur) kenn-
ari og bóndi, Ystafelli, Suður-Þing-
eyjarsýslu, segir i viötali um Subaru:
„Ég kann mjög vel við bilinn. Hann er
sparneytinn, góður i hálku og snjó og
rýkur i gang i hvaða veðri sem er.
Eftir reynslunni af þeim fyrsta eru nú
þrir Subaru-bilar i fjölskyldunni.”
Guðni Kristinsson, bóndi og hreppstjóri,
Skarði Landssveit segir i viðtali um
Subaru:
,,Það segir kannske best hvernig mér
hefir likað við Subaru aö ég er að kaupa
1978 árgerðina. Sá gamli hefir þjónað
okkur vel, við höfum farið allt á honum
sem við höfum þurft að fara og
sparneytni Subaru er næsta ótrúleg.”
Kyjólfur Agústsson, bóndi, Hvammi,
Landssveit, segir i viðtali um Subaru:
,,Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum
og hefur hann reynst i alla staði vel og
tel ég þá henta sérstaklega vel til allra
starfa við búskapinn. Ég hef farið á
honum inn um allar óbyggðir og yfir-
leitt allt, sem ég áður fór á jeppa.
Subaru er góður i hálku, duglegur i
vatni og sparneytinn — og nú er ég að fá
mér 1978 árgerðina.”
Hafið strax samband við sölumenn okkar og tryggið
ykkur góðan bíl
SU B ARU - UMBODID
INGVAR HELGASON
Vonorlandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1