Tíminn - 13.05.1979, Page 29
Sunnudagur 13. mal 1979
29
STUTTAR FRÉTTIR
i
Mikil bátttaka
i firmakeppni Háfeta.
De Rerum Natura
Orkumál
framtíöarinnar
og veðurfræði
Tímarit Vlsindafélags M.R.,
De rerum natura, er nýkomiO
út. Ritiö er óvenju efnismikið aO
þessusinni, samtals 153 bis., og
kennir þar ýmissa grasa, en all-
ar greinarnar 18 taisins eru rit-
aöar af nemendum skólans.
Aö venju eru flestar þeirra
um náttúru- og liffræöi og má
m.a. nefna greinar um hávaöa-
mengun skógrækt og ofnæmi.
Enn fremur er aö finna i ritinu
yfirgrpsmikla hugleiöingu um
orkumál framtiöarinnar, eina
grein um sagnfræöi, tvær grein-
ar um veöurfræöi og tvær um
jarðfræöi. Máþvi gera ráö fyrir
aö flestir finni eitthvaö viö sitt
hæfi f ritinu.
Stjórn Visindafélagsins hefur
ákveðið að hafa ritiö á boöstól-
um fyrir almenning og veröur
þaö til sölu i nokkrum helstu
bókaverslunum bæjarins, t.a.m.
Isafold, hjá Eymundsson,
Snæbirni, Lárusi Blöndal og
Bóksölu stúdenta.
Tvö ný frímerki
Póst- og Simamálastofnunin
hefur nd gefiö út tvö ný frlmerki,
110 og 190 króna.
Meö merkjunum er þess minnst
að tuttugu ár eru liðin siöan
Evrópusamráö pósts og sima,
CEPT, var stofnaö.Þá var m.a.
ákveöiðaö leggja til við aöildar-
löndin að þau skyldu gefa út fri-
merki einu sinni á ári, svonefnt
Evrópufnmerki, meö sameigin
legu myndefni. Á þessu ári kem-
ur þvf út tuttugasta útgáfa
Evrópufrfmerkjanna.
Af þvi' tilefni veröa gefin út i
hverju aðildarlandi fyrir sig fri-
merki úr sögu pósts- og simaþjón-
ustu. Á ööru nýja frimerkinu er
mynd af talsimatæki eins og voru
i notkun hér á landi fyrir sföustu
aldamót, en á hinu er mynd af
lúðri og pósttösku frá -fyrri
tímum.
Lesendur skrifa
Hlustað
svo
hugsað
1 útvarpi heyröust stundum
flutt erindi úr byggöasvæöum
landsins. Er þá talaö viö ýmsa,
er ólfk störf hafa, og fleira.
Eitt slikt heyröist 11. apríl I
ár, flutt af Magnúsi Finnboga-
syni, Lágafelli. Talaði hann viö
tvo eöa fleiri. 1 spurningum
Magnúsar viö einn viötalanda
sinn, vék hann aö offramleiöslu
á landbúnaöarvörum. Atti hann
þar viö kúamjólk og kindakét.
Svar viötalenda var, aö minu
mati, bæöi hógvært og glöggt, á
þessa leið: (mfn orö).
Islenskur gróöur er svo hollur
Islenskum jórturdýrum, aö inn-
fluttur fóðurbætir er óþarfur.
Allur sá kostnaður, sem honum
fylgir, er tildureyðsla, hégómi,
Væri sú upphæö notuö rétt og
fólk virti Island og islenskt,
þyrfti rikisstjórnin ekki aö
krefja skattgreiöendur um
milljónir króna til niöurgreiöslu
á jórturfénaöarafuröum. Auk
þesssparaöihún sér prentun og
dreifingu á verðlitlum pening-
um.
Þetta er skilningur minn á
oröum viötalenda Magnúsar. Ef
þar er um misskilning aö rasða,
bið ég hann og þá fyrirgefningar
og leiðréttingar.
Væri ekki þörf aö ræða þessi
fóöurbætismál og hafa þá fóöur
og afuröir fénaöar fyrirog eftir
1915 til viömiöunar? Gæti það
ekki bent á eitthvaö gagnlegt?
(laust viö hégóma?), til gagns
komandi kynslóöum?
Ég þakka Magnúsi á Lágafelli
og viðtalendum hans fyrir er-
indiö,,Sunnan jökla”, og öörum
er slikum efnum hafa miðlað.
Það styttir margar stundir, aö
hlusta á slik erindi.
GuðmundurP. Asmundsson,
frá Krossi.
Námskeið
Barnaársnefnd
Biindraféiagsins, Hamrahliö 17,
Reykjavik, hefur hug á aöefna til
námskeiðs fyrir foreldra sjón-
skertra og blindra barna. Fyrir-
hugað er, að námskeið þetta
standi i u.þ.b. viku, og hefjist 19.
júnl i sumar.
M.a. er ætlunin aö veita for-
eldrum ýmsar hagnýtar
upplýsingar, er nauðsynlegar eru
til þess aö tryggja eölilegan
þroska sjónskertra og blindra
barna. Ennfremur er mjög æski-
legt, aö foreldrar þessa
barnahóps fái tækifæri til þess aö
koma saman, og til þess aö ráö-
færa sig við sérhæföa blindra-
kennara og aðra, er eitthvaö
kunna aö hafa til málanna aö
legg ja.
Grunur leikur á, aö nokkuö sé
um sjónskert og blind börn víðs
vegar um landiö, sem fara á mis
við sjálfsagða þjónustu.
Barnaársnefrid Blindrafélags-
ins skorarþvf á alla þá, er áhuga
hafa áþátttöku, til aö tilkynnasig
sem fyrst til blindraráögjafa I
sima (91) 38488.
36 tóku þátt I firmakeppni
Háfeta i Þorlákshöfn. Á
myndinni eru sigurvegararnir
I unglingafiokki taiið frá
vinstri: 1. Ármann Sigurðsson
á Svan, keppti fyrir Húshönn-
un, 2. Valgeir VUmundarson á
Trölla, kepptif. verslunina ós,
3. Lóa ólafsdóttir á Degi
keppti f. Pétur og Hólmar h.f.,
4. Jóhann Sveinsson á Þyt,
keppti f. Esso og 5. GIsU R.
Magnússon á Alfreð, keppti f.
Gletting h.f.
1 fullorðinsflokki sigruðu: 1.
Ástrún Daviðsdóttir á öðlingi
f. Gfsia Guðmundsson neta-
gerðarmeistara 2. Agúst Vii-
mundarsoná Glóðf. Ljósavlk,
3. Þorsteinn Guðnason á Feng,
f. Tréverk h.f., 4. Kristján
Ketilsson á Blakk f. M.b. Jón
Helgason og 5. Þórarinn
Óskarsson á Náttfara f. M.b.
tsleif.
TlmamyndPáilá Sandhóli
Geröu sem ég- ^
segi, ellegar
muntu ráfa villtur