Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 52
48
Þorsteinn Þorsteinsson
ANDVARI
um meðtöldum) var meðaltalið hærra, en aftur á móti lægra
í öllum sýslum frá Mýrasýslu norður um land til Þingeyjar-
sýslu, og munurinn var svo mikill, að meir en helmingi minna
var um niðursetninga í vestur- og norðursýslunum heldur en
í austur- og suðursýslunum, svo sem sjá má í eftirfarandi
yfirliti.
Niðursetningar Mannfjöldi
Mýrasýsla—Þingeyjarsýsla ............ 2409 27538 8.7 %
Múlasýsla—Borgarfjarðarsýsla ........ 4380 22820 19.2 —
Alls 0789 50358 13.5 %
Tiltölulega mest hefur verið um niðursetninga í miðhluta
Múlasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, 23x/2% í hvorri eða hátt
upp í y4 íbúanna, og þar næst i Austur-Skaftafellssýslu, 21%.
Það var tiltölulega minna um niðursetninga í öllum sýslunum
vestanlands (Hnappadalssýslu—Norður-ísafjarðarsýslu) held-
ur en í norðursýslunum. Minnst var um niðursetninga í Norð-
ur-ísafjarðarsýslu, aðeins 3% af íbúunum. í 4 hreppum voru
engir niðursetningar (Auðkúluhreppi í ísafjarðarsýslu, Tré-
kyllisvílc í Strandasýslu, Þorkelshólshreppi í Húnavatnssýslu
og Grímsey) og í 15 hreppum var tala niðursetninga lægri en
5%, og voru þeir allir vestan- og norðanlands (frá Hnappa-
dalssýslu til Þingeyjarsýslu). Hins vegar var tala niðursetn-
inga hærri en 20% í 20 hreppum, öllum á austur- og suður-
landi. Hæst var hún í Mjóafjarðarhreppi, 33% eða þriðjungur
af íbúatölunni, þar næst í Suðursveit í Skaftafellssýslu og
Vallahreppi í Múlasýslu, 27%, og í Fljótsdalshreppi og Kleifa-
hreppi í Skaftafellssýslu, 26%. í þessum 5 lireppum var þannig
meir en y4 af íbúunum niðursetningar.
Helmingur niðursetninganna hefur verið innan við tví-
tugsaldur, þriðjungurinn milli tvítugs og sextugs, en aðeins
Vi yfir sextugt. Það er annars eklci ófróðlegt að athuga, hve
niðursetningar eru mikill hluti af hverjum 5 ára aldursflokki.
Sú skýrsla er þannig:
0— 5 ára ...... 4.5 % 55—59 ára ...... 15.5 %
5- 9 — ........ 18.2— 00—64 — ........ 22.0 —