Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 49
ANDVAHI
Manntal'ð 1703
45
1703 1940
Sveitir
Ættingjar .......................... • • 0-41_____0^65
Fjölskyldan sjálf 4.32 5.09
Vinnufólk og lausafólk .............. 1-24_______0.41
5.56 5.50
Sveitarómagar ....................... 0.89
Lausamenn (ekki taldir á heimilum) .. 0.01
Umrenningar ...................... 0-05________
6.51 5.50
Þetta má líka sjá á 4. mynd (bls. 46). Á hverju heimili er
einn húsráðandi og á hér um hil % þeirra eru giftar konur
húsfreyjur. Mismunurinn stafar bæði af því, að á sumum heim-
ilum eru konur húsráðendur (1703: 0.11, 1940 í sveitum:
0.06), en sumir húsráðendur hafa bústýrur eða búa með börn-
uin sínum. (1940 hafa þær bústýrur verið kallaðar ógiftar
húsfreyjur, sem sýnilegt var, að voru barnsmæður húsráð-
anda).
Á heimilunum hefur verið töluvert færra um börn innan 15
ára 1703 heldur en nú er í sveitunum (1.40:1.74) og líka hefur
verið minna um eldri börn heima heldur en nú í sveitum
(0.77:0.88). Enn fremur hefur verið minna á heimilunum
um aðra ættingja. Reyndar er þessi liður nokkru víðtælcari
í manntalinu 1940, þar sem liann nær einnig yfir aðra mötu-
nauta, en yfirleitt mun þó það fóllc vera í nánum tengslum
við fjölskylduna. Sjálf fjölsltyldan (húsráðandi með skyldu-
liði sínu) hefur þannig verið miklu fámennari 1703 heldur en
nú í sveitunum (4.3:5.1 manns) og jafnvel fámennari heldui
en á öllu landinu nú (4.5 manns). Hins vegar hefur vinnu-
fölk (að meðtöldum ráðsltonum og ráðsmönnum, svo og lausa-
fólki) verið miklu fjölmennara. Af því komu þá 124 á hvert
hundrað heimila, en aðeins 41 í sveitunum nú. Við þetta jafn-
ast metin, svo að fjölskyldan ásamt vinnufólki verður álíka
fjölmenn að meðaltali 1703 eins og í sveitum 1940 (5.56:5.50).
Eru þá eftir sveitarómagar, ásamt lausamönnum, sem elcki
eru taldir á heimilunum, og umrenningar, og að þeim með-