Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 99
Bækur, sem eru í undirbúningi.
Gert er ráð fyrir, að félagsbækurnar 1948 verði Úrvalssafn
norskra smásagna, Heimskringla III. og síðasta bindi, Úrvals-
ljóð Stefáns ólafssonar, Almanak Þjóðvinafélagsins 1949 og
Andvari.
Ódysseifskviða er í prentun. Mun hún koma út á næsta ári
og einnig Illionskviða, ef hægt verður að útvega papþír til út-
gáfunnar.
Haldið er áfram undirbúningi að útgáfu íslandslýsingarinnar.
Verður I. bindið sennilega prentað á árinu 1949.
Saga íslendinga í Vesturheimi.
Rit þetta er gefið út af Þjóðræknisfélagi íslendinga ve'stan
hafs. Þrjú bindi eru þegar komin út. Alls munu þau verða fimm.
II. bindi er enn fáanlegt heft, sömuleiðis III. bindi bæði heft
og innbundið.
Til nýrra félagsmanna.
Nýir félagsmenn geta enn fengið allmikið af hinum eldri
félagsbókum við hinu upprunalega lága verði, svo sem hér
segir: Ársbækur 1942: 5 bækur fyrir 10 kr., 1943: 4 bækur fyrir
10 kr., 1944: 5 bækur fyrir 20 kr„ 1945: 5 bækur fyrir 20 krónur
og 1946: 5 bækur fyrir 30 krónur. — Allmargar af bókunum
fást í bandi gegn aukagjaldi.
Hér er tækifæri til að gera sérstaklega góð bókakaup, þrátt
fyrir dýrtíðina. Af sumum þessara bóka eru mjög fá eintök
óseld.
Ókeypis bókaskrá send þeim, sem þess óska.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.