Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 50
STAÐA FOLKS A HEIMILINU
46
Þorsteinn Þorsteinsson
ANDVARI
o
töldum kemst meðalmannf jöldinn á
heimili upp í 6.5. Til þessa fólks svarar
ekkert 1940. Þeir niðursetningar, sem
kunna að hafa verið á heimilum þá,
munu vera taldir meðal ættingja og
mötunauta
í manntalinu 1703 má skipta heimilis-
l'eðrum í hændur, hjáleigumenn, tómt-
húsmenn og húsmenn. Að vísu eru mörk-
in milli þeirra ekki ævinlega glögg. Með
hjáleigumönnum eru taldir grasbýlis-
menn eða grasbúðarmenn, en húsmenn
eru aðallega þeir, sem eru til húsa hjá
öðrum. Heimilastærðin er mjög mismun-
andi í þessum flokkum, en þar verður
aðeins miðað við stærð fjölskyldunnar
með vinnufólki, því að ekki sést, hvernig
sveitarómagarnir skiptast á heimilin. Hjá
hændum er meðalstærð heimilanna
(þannig tekin) 6.0 manns, hjá hjáleigu-
mönnum 4.4, tómthúsmönnum 3.3 og
húsmönnum 2.5, en meðaltalið á öllu
landinu var 5.6, eins og áður segir. Þar
að auki eru svo eins manns heimilin, en
það er mest allt húsmenn og húskonur.
Aliur þorri fjölskylduheimilanna er
bændaheimili, eða 77%, en þar sein þau
eru stærri en hin, þá ná þau yfir 84%
(eða %) af öllum mannfjöldanum.
Algengastar heimilisstærðir 1703, þeg'-
ar sveitarómagar eru ekki taldir með,
voru 4 og 5 manna heimili, og er það eins
í sveitum nú. Þó voru 4 manna heimilin
ívið fleiri 1703 en hins vegar 5 manna
heimilin í sveilum nú. Að meðalstærð
heimilanna varð samt ekki minni en nu,