Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1919, Page 23

Skírnir - 01.12.1919, Page 23
Skirnir] Jón Thoroddsen. 22.) augum Þórdísar í Hlíð (»Maður og kona«, 24. k.), (minnir á lýsing á Víga-Glúmi). Dottið hefir mér í hug, að gerðar- menn í hýðingarmáli Bjarna á Leiti (»Maður og kona«, 21. kap.) séu afkomendur þriggja frægra bræðra, er Heims kringla kveður verið hafa kæra Olafi Svíakonungi. Talan er sama. Bræðurnir hétu Arnviðr blindi, Þorviðr stami, Frej viðr daufi. Gerðarmenn heita Ögmundur alblindi, ög- mundur hálfblindi og Erlendur »ójú« eða »halelúja». Er- lendur »halelúja« getur vel verið kominn af Þorviði stama, þótt honum sé léttara um niál, er hann etur alt upp eftir öðrum og bætir aðeins við frá eigin brjósti: »já, öldungis rétt« eða þess háttar spakmælum. Sameigin- legt er, að báðir eru auðkendir á málfæri, þótt auðkenn- in séu hvort öðru gagnstæð Jón Thoroddsen gat varla breytt þremenningum sínum minna, ef þessi hugmynd hans er runnin frá bræðrum Heimskr. — Ef sýrukersóhapp Tudda er skáldsmið, hefir það sennilega æxlast af snar- ræði Gizurar Þorvaldssonar í Flugumýrarbrennu. Þá er skáldið reit um svaðilfarir Tudda, mundi hann og vel eftir kerinu góða, er Gizuri bjargaði, þvi að hann getur þess, að engin griðkvenna hafi viljað taka að sér starfa Hallfríðar Garðafylju. En vera má, að skáldið hafi hér haft raunverulegan atburð i huga. Það sem skemtir bezt í sögum Jóns Thoroddsens er kimni hans og gamansemi, er stundum bregzt í galsa.. Flest- ir hafa víst veitt því eftirtekt, að tunglið byrgir sig stund- um svo rækilega bak við ský, að ekki sést svo mikið sem rönd af þvi, en bleikir þó alt landslag, börð og sanda, tún og engjar, hraun og mela, i daufu, blæþýðu skini. Jóni Thoroddsen fer svipað i sögum sínum. Hann. dylst þar undir viðburðum og viðræðum, en litkar þó alt, er kann segir frá persónur, háttu, atburði og jafnvel híbýli ntanna í skopi sinu. Af þessari kimni hans stafar, að oss verður ekki eins kalt til sumra sögukappa hans og þeir vinna t'l- Beri menn sögur sveitunga Jóns Thoroddsens, Gests Pálssonar, saman við sögur hans. Sést þá, hve Gestur hlæs meiri gremju í brjóst. Þó sést á lýsingum Jóns Thor-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.