Skírnir - 01.12.1919, Blaðsíða 38
244
Jón Þorláksson.
[Skírnir
mönnum um ljóðaþýðingar. — Framan við bókina er vand-
að sýnishorn af rithönd Jóns Þorlákssonar 1815, og allur
er frágangur ritsins hinn myndarlegasti. A tveim stöðum
hefir þó viljað til óhapp, er naumast hendir aðrar prent-
smiðjur en þær er vélsetningu hafa — línur hafa ruglast.
Niðurlagið á bls. 185 á að vera svo: og beiðar stjörnur, |
þær er húm boða, | hófust hvervetna | á himinmetum.
Og fyrir efstu línu á bls. 193 á að standa: Eg merki af
relation Sveins Pálssonar, sem bréf.
Dr. Jón Þorkelsson endar bókina með þessum orðum:
»Síi'a Jón Þorláksson var mesti maður sinnar tíðar hér
á landi í sinni iþrótt. En þótt menn sé öðrum fremri á
sinni tíð, eru þó allir börn síns tíma, og bera á sér merki
hans og eins verk þeirra. En timarnir líða og taka ótal
hamskifti. Margt af því, sem nú veður uppi, er eftir einn
mannsaldur gleymt með öllu eða þá orðið svo hjáróma
tímanum, að ekki er hlustað á það. Geta raá því nærri,
hvílík ógrynni af því, sem ort er fyrir meira en 100 ár-
um, þótt það þætti þá bera af öðru, sé nú orðið heldur en
ekki hjáróma vorri öld, eftir þau stakkaskifti sem tírninn
hefir siðan tekið um hugsunarhátt manna, í skáldment, í
málinu sjálfu og allri menningu. I vitund þessa hefir því
hér verið gefið út að eins fátt eitt úr ljóðum síra Jóns og
annað smávegis er hann snertir, í minning þess, að í ár
eru 100 ár liðin síðan hann var lífs. Víst er margt í kveð-
skap hans úrelt nú, öllum þorra rnanna, en þó er þar enn
ýmsu Iíft, og mun lengi verða*.
Það var maklegt að minnast Jóns Þorlákssonar á 100
ára dánardægri hans, og munu flestir kunna bæði útgef-
anda og kostnaðarmanni þökk fyrir bókina, því að þar er
saman komið flest það er þarf til að gera sér mynd af
þeim merkilega manni.
Enginn getur svo öllum líki gert úrval af kvæðum,
því að ekki er einn smekkur allra. Eg mundi t. d. bafa
kosið að sálmurinn *Jesú, sem læknar ]ýði« hefði verið
óskertur í úrvalinu, en af honum eru þar að eins tvö vers.
Varla hefir nokkur sál talað við drottin á dýrara brag-